Fréttablaðið - 16.07.2005, Síða 54
Stórsýningin Annie verður frum-
sýnd á sunnudag og undirbúningur
er að ná hámarki. Margt er um
manninn þar sem alls eru þrjátíu
manns á sviðinu á hverri sýningu og
þá eru ekki allir taldir því töluverð-
ur hópur barna skiptist á að koma
fram á sýningum.
„Það er mikið líf og fjör og allir
svo kátir,“ segir Viðar Eggertsson,
leikstjóri sýningarinnar. „Þetta er
skemmtileg saga um bjartsýni og
sjálfsbjargarviðleitni en Annie er
ein af þessum sögupersónum sem
heillar alla í kringum sig.“
Handrit söngleikjarins er samið
eftir teiknimyndasögu sem birt var
í bandarísku tímariti. Ein sjón-
varpsmynd hefur verið gerð eftir
sögunni en kvikmyndin sem kom út
1982 er þó mun þekktari. „Leikhús-
formið er nokkuð ólíkt kvikmynda-
forminu, svo við byggjum ekki sér-
staklega á kvikmyndinni. Persón-
urnar eru sterkt mótaðar í handrit-
inu þó að eiginleikar hvers leikara
setji svo sinn svip á hlutverkið.
Annie fær til dæmis svolítið ís-
lenskt krydd frá stelpunum,“ segir
hann.
Margir kannast við tónlistina úr
Annie og hafa dægurtónlistarmenn
og jafnvel rapparar notast við hana.
„Það eru mjög falleg lög í sýning-
unni og þau eru óvenju mörg sem
orðið hafa vinsæl,“ segir Viðar.
Um leikkonurnar sem skipta
með sér hlutverki Anniear hefur
Viðar allt gott að segja. „Þær eru
flinkar og hressar stúlkur, hver
annarri skemmtilegri. Þetta er gíf-
urleg vinna en stúlkurnar eru af-
burðaduglegar. Þær þurfa allar
þrjár að sitja hverja einustu æfingu
og fylgjast með þótt aðeins geti ein
æft á sviðinu í einu.“
Viðar segir hafa verið mjög
erfitt að velja eina stúlku til að vera
á frumsýningunni. „Listrænir
stjórnendur sýningarinnar settust
niður til að ákveða hver það yrði, en
það var svo mikil glíma að við þurft-
um eiginlega að kasta peningi upp á
það. Fyrir okkur sem vinnum í leik-
húsinu er frumsýningin þó alls ekki
aðalmálið. Allar sýningar eru jafn
mikilvægar því hver sýning er
frumsýning fyrir þann áhorfenda-
hóp sem er í salnum.“ ■
38 16. júlí 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
...tónleikum tríósins B-3 á
Jómfrúnni, Lækjargötu klukkan
16 í dag.
...sýningu Sigrúnar Rósar Sig-
urðardóttur í Gallerí Tukt, hinu
húsinu, Pósthússtræti 3-5 sem
opnar klukkan 16 í dag.
...spunagítarleikaranum og tón-
skáldinu Fred Frith sem heldur
tónleika í Klink og Bank klukkan
21 í kvöld.
Nú um helgina er haldin Skálholtshátíð, en
hún er haldin árlega sunnudaginn sem næst-
ur er Þorláksmessu á sumri sem er 20. júlí.
Á laugardagskvöldið 16. júlí verða orgeltón-
leikar í Skálholtsdómkirkju. Þar leikur þýski
organistinn Henrik Langelahn frá Herfurt. Leik-
ur hann verk eftir Bach og fleiri höfunda, allt
til nútímatónskálda.
Sunnudaginn 17. júlí verður hátíðamessa kl.
14.00 þar sem vígslubiskup predikar. Eftir
messu er boðið til kirkjukaffis í Skálholtsskóla.
Kl. 16.30 er svo samkoma í kirkjunni með
blönduðu efni. Þar flytur Dr. Gunnlaugur Jóns-
son hugleiðingu um bænamál Davíðssálma.
Dr. Sverrir Jakobsson kynnir rannsóknir sínar
á afstöðu íslenskra fornhöfunda til kirkjuklofn-
ingsins með tengingu við upphaf biskupsstóls-
ins í Skálholti.
Séra Þórir Stephenssen les valda kafla úr há-
tíðarljóðum sr. Sigurðar Einarssonar síðan
1956. Á efnisskrá þessarar samkomu er auk
þessa orgelleikur og söngur.
Í tengslum við hátíðina hefur verið stofnað til
pílagrímagöngu frá Þingvöllum í Skálholt og
stefnir göngufólk að því að koma í tæka tíð til
að taka þátt í messunni og dagskrá hátíðar-
innar á sunnudag.
Kl. 20.00
Bandaríski rapphundurinn Snoop Dogg
heldur tónleika í Egilshöll á sunnudags-
kvöldið klukkan 20 og verður sá hvalreki
á Íslandsstrendur að teljast hápunktur
helgarinnar þótt vissulega sé Snoop ekki
sá hámenningarlegasti og dólgslætin í
honum á köflum yfirgengileg.
menning@frettabladid.is
Hátíð í Skálholti
VIÐAR EGGERTSSON OG THELMA LIND WAAGE Viðar segir gaman að vinna með
börnunum í sýningunni því þau hafi sýnt óbilandi áhuga og þrek.
Stórsýningin Annie
frumsýnd á sunnudag
!
Djassbassaleikarinn Eivind Opsvik
kemur til landsins í næstu viku og
heldur ferna tónleika ásamt píanist-
anum Sunnu Gunnlaugs og banda-
ríska trommuleikaranum Scott
McLemore. Eivind er Norðmaður en
hefur verið búsettur í New York
undanfarin ár. Hann hefur gefið út
tvo geisladiska með eigin tón-
smíðum og á þeim spilar með honum
einvalalið djassleikara frá N.Y.
Hann hefur fengið frábæra dóma
hjá gagnrýnendum hið vestra og var
fyrri diskur hans valinn einn af disk-
um ársins 2003 hjá hinu virta djass-
tímariti Downbeat. Seinni diskurinn
kom út fyrir örfáum vikum.
Eivind hefur verið í samstarfi við
Sunnu um nokkurt skeið og hafa þau
leikið saman bæði í Bandaríkjunum
og Evrópu. Þau stefna að því að leika
frumsamið efni á tónleikunum og
taka svo upp tónlistina að tónleika-
röðinni lokinni. ■
Frábær djassbassaleikari á lei›inni
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Það hefur lengi verið draumur minn að setja upp söngleik og þá helst söngleik fyrir
krakka. Mig langaði mikið að vinna með börnum og gefa þeim tækifæri til að stíga á
svið,“ segir Rakel Kristinsdóttir framleiðandi og framkvæmdastjóri sýningarinnar.
„Þetta er búið að vera mikil vinna og taka lengri tíma en ég átti von á.“
Þrjár ungar stúlkur á aldrinum tíu til ellefu ára deila með sér aðalhlutverkinu. „Upp-
haflega stóð til að hafa tvær ungar leikkonur til skiptis í hlutverkinu og eina til vara
en svo voru þær allar svo hæfileikaríkar að við ákváðum að hafa þær allar þrjár. Það
er líka gaman að gefa fleirum tækifæri á að prófa. Við erum líka með fleiri krakka í
sýningunni en þurfti og við vildum bara að sem flestir fengju að spreyta sig.“
EIVIND OPSVIK Pabbi Eivindar, Peter Op-
svik, hannaði tripp trapp barnastólinn svo
hann á ekki langt að sækja sköpunargleð-
ina.
M
YN
D
/G
AU
TE
G
JO
H
L
D
AH
LE
Tríóið Eivind, Sunna og Scott
spila á eftirfarandi stöðum:
21 júlí: Listasumar Akureyri
klukkan 21:30.
22 júlí: Gamli Bærinn Mývatn, á
milli 22:00 og 00:00.
23 júlí: Jómfrúin Reykjavík á milli
16:00 og 18:00 ókeypis inn.
24 júlí: Pravda Reykjavík á milli
22:00 og 24:00 ókeypis inn.
SKÁLHOLT Um helgina er haldin í Skálholti svokölluð
Skálholtshátíð en hún er haldin árlega hinn sunnudag
sem er næstur Þorláksmessu að sumri.
Þriðja ljóðabók Halldóru Krist-
ínar Thoroddsen sem ber heitið
Gangandi vegfarandi er komin
út hjá Máli og menningu. Í
bókinni er fjallað um lífið og til-
veruna á grátbroslegan hátt.
Eitt ljóðanna í bók Halldóru er
hér fyrir neðan.
HALLDÓRA KRISTÍN THORODDSEN
„Ég hef ekki einu sinni gert upp við mig
hvort þetta eru ljóð eða bara hugsanir. En
markaðurinn heimtar flokkun svo ég kalla
þetta ljóðabók,“ segir ljóðskáldið.
VIÐ HÉRNA VESTRA
og nú er það pedófíllinn
einnig hann er upprunninn í Afríku
enn um hríð
getur allt verið honum að kenna
þrátt fyrir ótakmarkað veiðileyfi
fjölgar honum í kjörlendinu
við laugum okkur í sári hans
eins og hvítþvegin börn
getum við (guði sé lof) enn um stund
haldið áfram
að haga okkur eins og skepnur
Gangandi vegfarandi
Flest ykkar hafa líklegast sjaldan
eða aldrei heyrt um Bill Callahan
þrátt fyrir að maðurinn hafi verið
einn afkastamesti tónlistarmaður
síðustu 13 ára. Á þeim tíma hefur
manninum tekist að gefa út 12
breiðskífur undir nafninu Smog og
er mikilvægur listamaður í heimi
tónlistargrúskrara um allan heim.
Callahan hefur mjög djúpa og
sérstaka rödd. Innhverfir textar
hans um lífið, ástarsorgir og aðra
undarlega hluti sem hreyfa við
skáldinu eru svo stór hluti af tón-
listarsköpun hans. Tónlistin sjálf
er svo oftast mjög hrá, lífræn og
einföld húð utan um létt gítar eða
píanóspil. Allt er svo hljóðritað og
unnið á mjög einfaldan hátt.
Fyrstu útgáfur sínar vann Calla-
han á fjögurra rása upptökutæki,
og hann hefur þróast mjög langt í
vinnuaðferðum í gegnum árin.
Lög hans bera það öll með sér
að vera samin á rólegum einveru-
stundum. Oft mjög falleg, eins og
besta lag nýju plötunnar Rock
Bottom Riser sem er einlægur
ástaróður Callahan til móður sinn-
ar, föður og systra.
Callahan er án efa hæfileika-
ríkur og magnaður tónlistarmað-
ur. Það eina sem ónáðar mig er
hversu einhæfur hann er. Hvert
lag er líkt öðru, og eftir 13 útgáfur
og bóhem-líferni að minni hálfu er
orðið svolítið erfitt að greina á
milli verka hans. Alltaf hef ég þó
unun af að renna plötum hans í
gegn, og þessi nýja er engin und-
antekning. Þetta er eins og fá
góðan vin í heimsókn sem mætir
alltaf með kassagítarinn sinn og
leikur nýju lögin sín yfir tebolla.
Og Smog er alltaf velkominn í
mínu húsi.
Og einu sinni enn...
FLYTJANDI: SMOG
TITILL: A RIVER AIN'T TOO MUCH
NIÐURSTAÐA: Þrettánda breiðskífa Smog
hljómar svolítið eins og hinar tólf. En það er
allt í lagi, því eins og þær er um afbragðs grip
að ræða. Smog gerir einfaldlega ekki slæmar
plötur, þó þær séu ótrúlega einhæfar.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR