Fréttablaðið - 12.08.2005, Side 6

Fréttablaðið - 12.08.2005, Side 6
6 12. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR Guðni svarar gagnrýni dýralækna: Mín ákvör›un stendur LANDBÚNAÐUR Guðni Ágústsson furðar sig á gagnrýni dýralækna á ráðningu forstjóra Landbúnaðar- stofnunar og ákvörðun um stað- setningu stofnunarinnar. „Þetta eru ákvarðanir sem ég hef tekið og þær standa,“ segir Guðni. „Ég er ekki síst undrandi á því að hæfni Jóns Gíslasonar sé dregin í efa. Dýralæknar verða að átta sig á því að hann hefur sótt hluta af sínu námi í dýralæknaskóla, hefur mikla reynslu og var valinn sem fremstur meðal jafningja úr 23 manna hópi.“ Guðni segir Embætti yfirdýra- læknis vera varðað með lögum innan Landbúnaðarstofnunar og hann haldi því sinni stöðu sem hinn æðsti sérfræðingur í þeim málaflokki. „Forstjórinn og Yfir- dýralæknir eru sterkt teymi í stofnuninni og munu vinna náið saman.“ Að sögn Guðna var það ákvörð- un Alþingis að stofnunin yrði utan höfuðborgarsvæðisins. „Mín nið- urstaða var að velja Selfoss, sem ég held að allir sjái að sé mjög góður staður. Við horfum björtum augum á framtíðina og förum fljótlega að leita að góðu húsnæði undir stofnunina.“ - grs GRÁSLEPPUKARLAR Á HÚSAVÍK Alls var salt- að í 469 tunnur á Húsavík á vertíðinni í ár. Grásleppuvertíð lokið: firi›jungs samdráttur GRÁSLEPPA Samdráttur í söltuðum grásleppuhrognum á nýliðinni vertíð nam rúmum 35 prósentum miðað við vertíðina í fyrra en alls var saltað í 7.654 tunnur í ár. Ástæða minni veiði er stytting veiðitímabilsins um þriðjung, vegna sölutregðu og verðfalls á mörkuðum, auk þess sem færri bátar voru að veiðum í ár en í fyrra. Mest barst á land af grásleppu á Bakkafirði og Vopnafirði en á hvorum stað var saltað í 718 tunn- ur. Þar á eftir kom Stykkishólmur með 708 tunnur. - kk www.or.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O R K 2 29 05 1 0 7/ 20 05 Laugardaginn 13. ágúst kl. 10:00 efnir Orkuveita Reykjavíkur til fræðslugöngu frá Minjasafninu í Elliðaárdal, upp dalinn að Gvendarbrunnum. Meðal annars verður hugað að ánni, örnefnum, jarðfræði, gróðri og dýralífi. Fjölmargir fræðimenn koma til leiðsagnar. Gengnir verða um 12 km en boðið verður upp á akstur til baka um kl. 16:00. FRÆÐSLUGANGA UM ELLIÐAÁRDAL og upp að Gvendarbrunnum Býður R-listinn fram aftur? SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlarðu að fylgjast með enska fótboltanum í vetur? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 47% 53% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN LÖGREGLUFRÉTTIR SVIPTUR Á STAÐNUM Ökumaður bifhjóls var sviptur ökuréttindum á staðnum eftir ofsaakstur á Sæ- braut í aðfaranótt fimmtudags. Ók maðurinn á 140 kílómetra hraða þar sem löglegur hámarks- hraði er sextíu kílómetrar. ÓK Á TÆPLEGA 150 KÍLÓMETRA HRAÐA Lögreglan á Blönduósi stöðvaði sex ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók reyndist á 144 kílómetra hraða og getur hann átt von á ökurétt- indamissi og hárri sekt þegar mál hans verður tekið fyrir. VEIKTIST Í ELDGJÁ Erlendur ferðamaður var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að hann varð fyrir andnauð við Ófærufoss í Eldgjá á miðviku- dagskvöld. Kalla þurfti til lög- reglu og sjúkrabíl með lækni, auk þess sem þyrla Landhelgisgæsl- unnar var í viðbragðsstöðu. Ekki kom til þess að kalla þyrfti þyrl- una út en líðan mannsins skánaði eftir að læknir kom á staðinn. NOREGUR NÝ OLÍULIND Í NORÐURSJÓ Norska olíufélagið Statoil hefur fundið nýja olíulind á Vigdísarol- íuvinnslusvæðinu í Norðursjó. Talsmenn félagsins segja vinnslu hagkvæma úr lindinni enda þótt þeir viti ekki enn þá hversu stór hún er. Fundurinn er kærkominn, þar sem olíuverð er afar hátt um þessar mundir og hægt hefur á olíuvinnslu í Norðursjó. Ver› á olíu hefur aldrei veri› hærra Heimsmarka›sver› á olíu fór í gær yfir 65 dali fati› og hefur flví aldrei veri› hærra. Margvíslegar ástæ›ur eru fyrir háu olíuver›i en búist er vi› flví a› fla› haldist í flessum hæ›um enn um sinn. OLÍA Ekkert lát er á hækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu en í gær fór verðið á fatinu í fyrsta sinn yfir 65 dali. Fellibyljir í suðurhöfum og kjarnorkuáætlun Írana eru á með- al orsaka hækkananna, að ógleymdri hryðjuverkaógninni. Síðastliðin ár hefur verð á hrá- olíu í heiminum sexfaldast. Árið 1999 kostaði fatið tíu dali en í fyrra fór það upp í 40 dali og þótti þá mörgum nóg um. Í gær var svo verðið komið upp í 65 dali. Í fyrradag var greint frá því að birgðaskrár í Bandaríkjunum, mesta olíuneytanda heims, sýndu að olíubirgðir hafa dregist tals- vert saman en það er afleiðing af lokun olíuhreinsistöðva í landinu. Þær fregnir urðu ekki til að auka fólki bjartsýni um að toppnum væri náð. Hins vegar kynnti Al- þjóðaorkumálastofnunin IEA júlí- skýrslu sína í gær og þar kom fram að olíunotkun það sem af er ári væri 150.000 fötum minni en búist hafði verið við. Sömuleiðis virðist vera að draga úr olíunotk- un Kínverja en þriðjungur hráol- íuframleiðslu heimsins er fluttur þangað. Það eru því ekki eingöngu slæmar fréttir af þessum vett- vangi. Margvíslegar skýringar eru á þessum miklu hækkunum. Lokanir olíuhreinsistöðva í Venesúela og Bandaríkjunum eru ein þeirra og fellibyljir í sunnanverðu Atlants- hafi. Þá stendur ferðamannatíminn sem hæst og því er spurn eftir þotueldsneyti afar mikil. Í Mið- Austurlöndum varð dauði Fahds, konungs Sádi-Arabíu, til þess að hækka verðið á fatinu og óróinn sem hefur skapast vegna kjarn- orkuáætlunar Írana hefur ekki bætt úr skák. Þá er ótti um hryðju- verkaárásir, bæði í olíufram- leiðsluríkjunum sem og annars staðar, stór þáttur í verðhækkun- um. Flestir spá því að olíuverð haldist hátt að minnsta kosti eitt- hvað fram á næsta ár, fyrirtækj- um og almenningi til sárrar gremju. Ef olíuverð mánaðanna eftir klerkabyltinguna í Íran 1979 er hins vegar framreiknað til dagsins í dag kemur í ljós að það var um níutíu dalir fatið þannig að ef til vill mega olíunotendur prísa sig sæla þrátt fyrir allt. sveinng@frettabladid.is GUÐNI ÁGÚSTSSON Landbúnaðar- ráðherra segir Yfirdýralækni og for- stjóra Landbúnaðarstofnunar verða teymi innan stofnunarinnar. BENSÍNIÐ KOSTAR SITT Það er víðar en á Íslandi sem bíleigendur kaupa bensínið dýrum dómum. Þessi bensínstöð í Mílanó seldi bensín- ið á rúmar hundrað krónur en dísilolían var aðeins ódýrari. LÖGREGLUAÐGERÐIR Ólafur Páll Sig- urðsson, annar tveggja Íslend- inga sem handteknir voru vegna mótmæla gegn Kárahnjúka- virkjun og álveri í Reyðarfirði, segir að þótt mótmælendur séu komnir til höfuðborgarsvæðis- ins þá fylgist lögreglan enn með þeim. „Sími minn er hleraður og í fyrradag voru óeinkennisklædd- ir lögreglumenn fyrir utan húsið mitt og vöktuðu ferðir mínar,“ segir Ólafur. Þórir Oddsson vararíkislög- reglustjóri segir að lögreglan gefi ekki upp hverjir séu undir eftirliti en segir að lögreglan hafi í mörg önnur horn að líta en eingöngu að fylgjast með and- stæðingum virkjunar og álvers. „Það er engin ástæða fyrir mótmælendur að óttast að í hvert sinn sem þeir sjá lög- reglubifreið þá sé verið að fylgj- ast með þeim sérstaklega,“ seg- ir Þórir. Birgitta Jónsdóttir, einn tals- manna mótmælenda, segir að næstu aðgerðir andstæðinga virkjunar og álvers muni verða á höfuðborgarsvæðinu en mót- mælendurnir muni einnig koma til með að gera vart við sig víðar um land. - kk Mótmælendur virkjunar og álvers á Austurlandi: Segja lögreglu vakta fer›ir sínar LÖGREGLUVAKT Ólafur Páll Sigurðsson segir óeinkennisklædda lögreglumenn hafa lagt þessari bifreið nærri heimili hans síðastliðinn miðvikudag og vakað yfir öllum hans ferðum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.