Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 44
32 12. ágúst 2005 FÖSTUDAGUR EKKI MISSA AF… ...tónleikum hljómsveitarinnar Skakkamanage í garðinum við 12 Tóna, Skólavörðustíg 15 klukkan 17 í dag. ...Kammertónleikum á Kirkju- bæjarklaustri í dag og um helg- ina. ...opnun listahátíðarinnar Krútt, sem fauk niður af Snæfellsnesi um síðustu helgi, klukkan 20 í Nýlistasafninu á morgun. Sara Elísa Þórð- ardóttir opnar myndlistarsýn- ingu klukkan 16.00 í Gallerí Tukt í Hinu hús- inu, Pósthús- stræti 3-5. „Myndirnar eru byggðar á vél- um, yfirleitt raf- orkuvélum, þetta er túlkun mín á vélum og snúast myndirn- ar um orku og afl,“ segir Sara sem er að hefja nám í Edinborough College of Art í Skotlandi í haust. „Ég fer í verksmiðjur og slík húsnæði, tek myndir og skissa upp og svo fer ég á rusla- hauga og næ mér í vélarbúta,“ segir listamaður- inn sem farið hefur víða um lönd sinni í leit að þess konar efnivið, meðal annars til Banda- ríkjanna og Ítalíu. „Mér finnst fólk ekki sjá hið fal- lega í vélum en mér finnst vélar fallegar og ég er að reyna að benda á já- kvæðar hliðar þeirra.“ Þetta er önnur einkasýning Söru og er um sölusýningu að ræða. Sýningin er opin frá klukkan 9 til klukkan 17 alla virka daga. Í kvöld klukkan 21.00 er næstsíðasta sýning á verkinu Penetreitor eftir Ant- hony Neilson. Sýnt er í Klink og Bank (gengið inn frá Portinu) og er miðaverð 500 krónur. Miðapantanir í síma 6990913 & 6617510. Síðasta sýningin er svo á morgun á sama tíma. menning@frettabladid.is Orka í Gallerí Tukt! Fjölbreytt dagskrá verð- ur á kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri um helgina þar sem ólíkir flytjendur blanda saman tónlist úr öllum áttum í fjölbreytilegri þriggja tónleika dagskrá. Árlegir kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri verða haldnir í dag og um helgina fimmtánda árið í röð. Flytjendur í ár verða þau Auður Hafsteins- dóttir fiðla, Bryndís Halla Gylfa- dóttir selló, Edda Erlendsdóttir píanó og listræn stjórnun, Egill Ólafsson baríton, Olivier Mano- ury bandóneon og Gítar Islancio með þeim Birni Thoroddsen gít- ar, Gunnari Þórðarsyni gítar og Jóni Rafnssyni kontrabassa. Þau flytja mjög fjölbreytta efnisskrá þar sem blandast sam- an klassísk tónlist, íslensk þjóð- lög, tangó og djass. Mismunandi efnisskrá er á hverjum tónleikum fyrir sig. Hinir fyrstu sem fara fram í kvöld klukkan 21.00 bera yfir- skriftina Seiðandi slavneskt- ramm íslenskt. Þar verður flutt verkið Ævintýri (Pohadka) fyrir selló og píanó eftir Leos Janacek og dúó fyrir fiðlu og selló op.7 eftir Zoltan Kodaly auk þekktra íslenskra laga eins og Góða veislu gjöra skal, Móðir mín í kví kví og Krummi svaf í klettagjá. Á laugardagstónleikunum, sem hefjast klukkan 17.00 og bera yfirskriftina Tangó og swing á tánum, verða meðal ann- ars flutt verk eftir Chick Corea, Thelonius Monk, Astor Piazzola og Duke Ellington. Á sunnudaginn verður að end- ingu flutt efnisskráin Rómantík og rúsínur og hefjast þeir tón- leikar klukkan 15.00. Robert Schumann verður í aðalhlutverki fyrir hlé þar sem flutt verða tvö verk eftir hann: sónata í a-moll op. 105 nr. 1 fyrir fiðlu og Fantasiestücke op. 88 fyrir fiðlu, selló og píanó. Auk þess verða flutt fimm ljóð op.35 eftir J.Kerner fyrir baríton og píanó. Eftir hlé verður svo farið víða í efnistökum því flutt verða verk eftir Django Reinhardt, Jacques Brel, Emil Thoroddsen og Egil Ólafsson svo eitthvað sé nefnt. ■ Kammertónleikar á Kirkubæjarklaustri VÉLAR Myndin er af vél sem er staðsett í Rafheimum í Elliðaárdal og framleiðir hún rafmagn. Myndin er ein af fjórtán myndum á sýningu sem Sara Elísa Þórðardóttir opnar í Gallerí Tukt í dag. ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00 NÁNARI UPPLÝSINGAR LAUGARD. 13. ÁGÚST ‘05 Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin alla daga frá kl. 12-18 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren • Í samstarfi við Á þakinu Lau 13/8 kl 14, Su 14/8 kl 14, Lau 20/8 kl 14, Su 21/8 kl 14 „Það eru tíu þúsund manns búnir að koma á sýninguna og flestir hafa skrifað í gestabókina og valið sína uppáhaldsmynd,“ segir Hrönn Vil- helmsdóttir en hún og eiginmaður hennar hafa staðið fyrir ansi skemmtilegri ljósmyndasýningu „Brigði birtu og veðurs“ uppi í turni Hallgrímskirkju í sumar. „Þetta eru ljósmyndir sem við tókum af Hall- grímskirkju út um eldhúsgluggann hjá okkur á fimmtán ára tímabili,“ en á sýningunni má sjá Hallgríms- kirkju í alla vega gervum ýmist klædda vetrarfrakka eða umsveip- uð rómantískri kvöldsól. „Þetta byrjaði allt með því að við sáum svo falleg skýjabrigði fyrir aftan kirkj- una að maðurinn minn prílaði upp á eldhúsbekk, setti höfuðið út um gluggann og smellti af mynd. Svo vatt þetta upp á sig og síðustu árin höfum við fylgst spennt með og smellt mynd af kirkjunni þegar tunglið færist nær eða regnbogi birtist.“ Sýningarlok eru um helgina en hjónunum hefur verið boðið að sýna „Brigði birtu og veðurs“ í Frakk- landi. „Það var franskur sýningar- stjóri sem kom á sýninguna í sumar og bauð okkur að sýna myndirnar í Strasbourg þar sem hún skipulegg- ur sýningu um íslenska menningu og náttúru.“ Á sunnudaginn, lokadag ljós- myndasýningarinnar, verður frítt upp í turn Hallgrímskirkju strax að lokinni messu. Annars er turninn opinn alla daga frá klukkan 9.00 til 20.00. ■ Hallgrímskirkja út um eldhúsgluggann SPILA Í SVEITASÆLUNNI Flytjendur á kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri. HALLGRÍMSKIRKJA Vinsælasta myndin að mati sýningargesta í Hallgrímskirkjuturni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.