Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Fanga- grúppíur Það er orðið langt síðan ég lasSjálfstætt fólk, en það er eins og mig minni að Bjartur í Sumar- húsum hafi sagt eitthvað á þá leið að aumt væri mannfólkið, en aumara væri kvenfólkið. Kenningin sú situr pikkföst í hausnum á mér þessa dagana, þegar sjónvarps- stöðvar í Ameríku keppast um að finna upp nýjasta hjólið; það er að segja, svarið við því hvers vegna konur giftast morðingjum og nauðgurum, sem sitja í fangelsum, jafnvel bíðandi eftir að dauðadómi verði fullnægt. Strákarnir á dauða- deildinni eru vinsælastir. Fram að þessu hafa fanga-grúppíur þótt fyndnar. En ekki lengur. Það er ger- samlega gengið fram af mann- skapnum. TIL að byrja með var eitt atriði sem vafðist fyrir ykkar einlægu: Hvernig í fjáranum komast mann- fýlur sem sitja í grjótinu fyrir óhugnanlega glæpi í samband við konur utan múranna? Auðvitað, í gegnum netið. Svo byrja þær að heimsækja þá, ástin blossar upp í hjörtunum, svo er gift sig og lifað í hamingjusamri fjarbúð, með áköf- um heimsóknum, þar til yfir lýkur. Sumt af þessu fólki eignast börn. Föngunum líður betur. Svo mannúð- legt. KALLIÐ mig harðbrjósta ef þið viljið en ég skil ekki svona vitleysu. Fyrir mér er þetta mannúðar-rang- staða. Mig hefur alltaf grunað að einn daginn myndi hið fullkomna gæfuleysi í þessu fyrirkomulagi birtast okkur. Og, vei ó vei, hvað gerðist ekki í fyrradag? Ein af grúppíunum, skaut lögreglumann og bjargaði sínum einkaglæponi úr klóm réttvísinnar í rúman sólar- hring. Sú er fyrrverandi hjúkka í fangelsinu og hefur greinilega orð- ið svo hrifin af lífinu á því heimili að hún varð sjálfri sér úti um ævi- langa vist þar. ÞAR sem verstu glæponarnir eru vinsælastir, hlýtur maður að bíða spenntur eftir því að Saddam Hussein verði dæmdur. Það verður æsispennandi að sjá hver hlýtur hnossið í kjölfarið. Eitt er víst. Samkeppnin verður hörð því þeir gerast varla ömurlegri en hann. Þangað til bíðum við spennt eftir svarinu við því hvað sé eiginlega að þessum konum sem sýna þeim mannúð sem hafa sjálfir aldrei skilið hvað felst í því hugtaki. ■ SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR BAKÞANKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.