Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.08.2005, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 12.08.2005, Qupperneq 24
DEAKIN ESTATE SHIRAZ: Ein bestu kaup í áströlskum vínum Heslihnetur Heslihnetur eru hollar og góðar og tilvalið að mylja þær og bæta út í hafragrautinn á morgnana eða blanda út í hreina jógúrt ásamt fersk- um berjum. Auk þess eru hneturnar mjög góðar í súkkulaðikökur.[ ] Með uppskriftina í gröfina Sægreifinn sjálfur, Kjartan Halldórsson. Í verbúð 8 niðri við höfn ræð- ur ríkjum hinn eini sanni sæ- greifi, Kjartan Halldórsson. Í verbúðinni hans fæst ferskur fiskur sem bæði er hægt að grilla á staðnum eða taka með sér heim. Að ógleymdri humarsúpunni sem hlýtur að vera sú besta í bænum. Kjartan opnaði fiskbúðina Sæ- greifann fyrir tæpum þremur árum en í júní síðastliðnum, á sjálfan sjómannadaginn, var opn- uð ný aðstaða við verbúðina. Nú er Sægreifnn hvort tveggja í senn fiskbúð og veitingastaður. „Þetta verður með þessu sniði yfir sumartímann,“ segir Kjartan og sýnir okkur stoltur nýju að- stöðuna fyrir utan verbúðina. „Hér eru borð og bekkir svo fólk getur setið úti í góða veðrinu og borðað fiskspjótin sem það grillar sjálft hér á þessu grilli,“ segir hann og bendir á grillið fyrir end- ann. „Svo býð ég upp á ljúffenga humarsúpu allan daginn.“ Kjartan er algjörlega ófáanleg- ur til að gefa uppskrift að súp- unni, hún er leyndarmál sem hann ætlar með í gröfina. Hann sýnir okkur hins vegar fiskispjótin sem eru af öllum gerðum. „Þorskur, ýsa, skötuselur, steinbítur, hrefnukjöt, bara nefna það, ég er með það allt,“ segir hann. „Nú er ég líka að bíða eftir klakaborði undir ferskan fisk svo það verður jafnvel enn meira úrval.“ Hrognin góð fyrir karlana Úrvalið hjá Kjartani er þó ákaf- lega gott því auk ferska fisksins á spjótunum er Kjartan með rauð- sprettu sem hann hanterar á sér- stakan hátt, svartfugl og langvíu, reyktan rauðmaga, ál og laxa- hrogn sem hann segir algjört sæl- gæti og þar að auki styrkjandi fyrir karlana. „Ég var með eldri hjón hér um daginn og bóndinn vildi ólmur kaupa hrogn en ég sagði við hann, svona í gríni, að hann mætti ekki borða of mikið af þessu. Konan hans kærði sig held- ur ekkert um að hann keypti hrognin,“ segir Kjartan og hristist af hlátri. „Hún hefur ekki viljað hafa hann of fjörugan. En þetta er nú bara svona grín,“ áréttar hann. Það var ekki átakalaust fyrir Kjartan að fá leyfi fyrir staðnum en hann segist hafa haft það á þrjóskunni. „Það var ekkert sér- staklega vel séð að ég færi að starfa hérna, þeir vilja ekkert líf við höfnina. Í fyrrasumar var ég bara með lítið grill fyrir utan og var að þjóna útlendingunum sem voru afar hrifnir af því að fá hér ferskan fisk. Þá var ég með lítið borð inni. Í vor vildi ég breyta úti og fá leyfi fyrir pallinum, en í fyrstu var tekið frekar neikvætt í það hjá borginni. Kannski eru þeir hræddir um að hinir verbúð- arleigjendurnir vilji gera eins, sem væri auðvitað hið besta mál. Það á að vera líf hér við höfnina.“ Vill fá súpuvínið aftur Kjartan segir allt jafn vinsælt hjá sér og aðspurður segist hann úr- valskokkur, hvort sem um er að ræða kjöt eða fisk. „Ég var kokk- ur í sjóhernum fyrir löngu og seinna á togurum og bátum mjög víða. Mér finnst verst að geta ekki boðið upp á vín með fiskinum, ég var að gefa smávegis freyðivín hérna en varð að bakka út úr því. Þeir komu og tóku vínið og líka hvítvínið sem ég nota í súpuna. Þeir ættu nú eiginlega að skila mér súpuvíninu,“ segir hann og dregur blaðamann og ljósmynd- ara út að keri fullu af sprelllifandi álum. „Ég er nefnilega gríðarlegur áhugamaður um álaveiðar. Bænd- ur hafa verið að veiða fyrir okkur og nú er ég að fara í leiðangur í Vestur-Skaftafellssýsu og víðar og tala við bændur og veiðirétt- hafa. Það þarf að hvetja bændur til að veiða álinn. Þetta er ónýtt auðlind sem drýgir tekjurnar þeirra og ekki veitir af. Ég býð hér upp á álinn bæði ferskan og reyktan. En hann er dýr, állinn verður alltaf dýr matur.“ Kjartan er með opið á Sægreif- anum frá átta á morgnana til níu á kvöldin. „Ég er líka með listsýn- ingu í gangi hérna, verk eftir Gunnar Guðjónsson, já, ég er nú hræddur um það.“ ■ Hrefnuspjótin eru sívinsæl hjá Kjartani og ekki síst hjá þeim sem eru að koma úr hvalaskoðunarferðurm, segir hann. Þorskur, ýsa, skötuselur, steinbítur eða bara hvað sem er á spjót- um sem gestir geta grillað á staðnum eða tekið með heim. Álarnir eru sprelllifandi í keri fyrir utan Sægreifann, en steiktir eða reyktir hjá við- skiptavinum. Nýja aðstaðan úti er skemmtileg og ekki amalegt að gæða sér á grilluðum fiski í síðdegissólinni. Áströlsku vínin Deakin Estate, sem nýlega komu á markaðinn hérlendis, hafa vakið mikla athygli og þykja öflug vín á hagstæðu verði. Deakin Estate leggur mikið upp úr því að rækta gæðaþrúgur og framleiða úr þeim vín með ólgandi bragði og af- gerandi karakter. Deakin Estate er framleitt í Victoria, einu frjósamasta og gjöfulasta svæði Ástralíu. Nafnið Deakin er til heiðurs Alfred Deakin, fyrrum forsætisráðherra Ástralíu og frumkvöðli í landbúnaði og víngerð. Hér á landi fást fimm tegundir vína frá Deakin Estate í öllum helstu Vínbúðum. Eitt þeirra er Deakin Estate Shiraz, sem þykir ein bestu kaup í áströlskum vínum í dag. Áströlsk blöð hafa verið óspör á lofs- yrði, The Courier Mail gaf víninu 90 stig og telur það „bestu kaup“ og Herald Sun telur það með bestu vín- um í sínum verðflokki. Verð í Vínbúðum 1.290 kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.