Fréttablaðið - 12.08.2005, Side 25
Í Mosfellsdalnum er græn-
metismarkaður á hverjum
laugardegi. Íbúar dalsins
gera þar ýmislegt til að
skemmta sér og öðrum. Á
morgun verður til dæmis
haldin árleg sultukeppni, sem
er opin öllum áhugasömum.
Á grænmetismarkaðnum í Mos-
fellsdal eru úrvalsvörur til sölu
beint frá bóndanum og í fimm ár
hafa fastagestir lagt leið sína þang-
að um hverja helgi. Jón Jóhannsson
er einn aðstandenda markaðarins
og hann segir að mest sé selt af
grænmeti, en einnig eru í boði sil-
ungur úr Þingvallavatni, pestósósur
úr eldhúsi Diddúar, alvöru frönsk
paté og fleira og fleira.
„Við erum með fastagesti sem
koma á hverjum laugardegi. Það er
samt svo mikið að gerast alls staðar
úti á landi að við þurfum að vera
sýnileg. Við reynum til dæmis að
hnika aðeins til opnunartímunum ef
eitthvað sérstakt er að gerast,“ seg-
ir Jón. Þegar hann er spurður eftir
hverju fólk sem kemur á markað-
inn sé að slægjast stendur þó ekki á
svari. „Fólkið sækist eftir
spriklandi grænmeti.“
Á morgun verður sérstök uppá-
koma þegar árleg sultukeppni
grænmetismarkaðsins verður hald-
in. „Fólk bara mætir með sultu-
krukkurnar sínar á staðinn og upp
úr klukkan tvö fer dómnefndin af
stað,“ segir Jón. „Menn hafa verið
með alls konar experímentasjónir
þarna, bæði súrar og sætar, og ég
veit ekki hvað það allt heitir,“ bætir
hann við og viðurkennir að stund-
um hafi dómnefndinn þurft að
teygja ímyndunaraflið aðeins til að
viðurkenna það sem leyndist í
krukkunum sem sultu.
Grænmetismarkaðurinn er hald-
inn í Mosskógum í Mosfellsdal og
er opinn á hverjum laugardegi frá
hádegi og fram eftir degi. ■
3FÖSTUDAGUR 12. ágúst 2005
NÝTT
Nýjar matarmiklar samlokur í innsigluðum
umbúðum sem tryggir enn meiri ferskleika.
MEIRA Á MILLI
FERSKUR Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI www.somi.is
Sími 533 1020
NÝJAR VÖRUR
Skeifunni 11d
Grænmetismarkaðurinn er haldinn í Mosskógum.
Spriklandi grænmeti
í Mosfellsdalnum
Grænt og gott
Nýjasta tölublað Gestgjafans
er helgað grænmetisfæði.
Það er mun
auðveldara að
vera græn-
metisæta nú
en fyrir tíu til
f i m m t á n
árum. Fjöldi
veitingastaða
og jafnvel
s k y n d i b i t a -
staða hefur
sprottið upp og núna er orðið lítið
mál að fá hjá kaupmanninum á
horninu flest það hráefni sem
þarf til að gera gómsætan græn-
metismat. Jafnframt færist það í
vöxt að fólk blandi grænmetis-
fæði inn í sitt hefðbundna matar-
æði. Það er því alltaf vel þegið
þegar nýjar uppskriftir að græn-
metisfæði líta dagsins ljós.
Nýjasta tölubað hins sívinsæla
tímarits Gestgjafans er allt helg-
að grænmetisfæði. Blaðið er
grænt í húð og hár fyrir utan eina
grein um fiskveiði í vötnum. Ann-
ars er að finna í blaðinu alls
fimmtíu og fjórar girnilegar
grænmetisuppskriftir með sér-
stakri áherslu á kartöflurétti.
Margir geyma sérblöð Gest-
gjafans árum saman og græna
blaðið verður örugglega engin
undantekning á því. ■
FYLGSTU MEÐ!
Á morgun lýkur sumardögum í Vínbúðunum en þeir hafa staðið
frá því í júní. Þar má gera hagstæð kaup á vínum á kynningar-
verði, m.a. Turning Leaf Zinfandel. Turning Leaf-vínin frá Gallo
hafa verið vinsæl hérlendis, enda fjölbreytt og á hagstæðu verði.
Zinfandel er án efa þekktasta afurðin í Turning Leaf-línunni,
þéttur ávöxtur og mikil kryddflóra, svartur pipar, súkkulaði og
kaffi einkenna oft stærstu zinfandel-vínin. Er afbragð með lambi
og er eitt af fáum vínum sem ráða við reykt kjöt, er til að mynda
mjög gott með svínakjöti.
Gallo er öflugasta vínfyrirtæki í veröldinni og hefur unnið til
fjölda verðlauna á liðnum árum. Til dæmis hefur Gallo unnið tit-
ilinn besti vínframleiðandinn þrjú ár í röð á VinItaly-vínsýning-
unni í Verona á Ítalíu. Gallo hefur verið í stöðugri þróun og á síð-
ustu árum hefur verið lögð gífurleg vinna og fjármagn í að gera
fyrirtækið að tákni gæðaframleiðslu.
Kynningarverð á sumardögum í Vínbúðum 1.090 kr.
TURNING LEAF ZINFANDEL:
Sumardögum lýkur á morgun
Matartorgið Just-Eat hefur
bætt þjónustu sína til muna
og sinnir kalli notenda sinna.
Heimasíðan just-eat.is er matar-
torg á netinu sem opnaði í október
á síðasta ári og hefur vakið mikla
lukku.
Á vefsíðunni er hægt að panta
mat af netinu og fá hann sendan
heim eða sækja hann. Nú hefur
síðan bætt þjónustu sína til muna
með því að bjóða upp á heimsend-
ingu frá öllum stöðunum sem eru
inni á síðunni.
„Við sjáum um heimsendingar
til þeirra sem panta í gegnum
heimasíðuna fyrir þá veitinga-
staði sem ekki bjóða sjálfir upp á
slíkt. Með því erum við einfald-
lega að uppfylla óskir notenda
okkar, en mikið hefur verið beðið
um meiri fjölbreytni í heimsend-
um mat,“ segir Þröstur Már
Sveinsson, annar eiganda Just-
Eat, en áður voru aðeins þrír af
hverjum tíu veitingastöðum sem
buðu upp á heimsendingar á mat.
Ekki þarf að panta fyrir neina
lágmarksupphæð til að fá heim-
sent frá Just-Eat og meira að
segja er hægt að panta Take-
Away tilboð í heimsendingu. Þetta
gildir þó eingöngu fyrir þá staði
sem Just-Eat sér um heimsend-
ingar fyrir, sem eru um sjötíu
prósent þeirra sem eru inni á síð-
unni og eru þeir sérstaklega
merktir á heimasíðunni með
„Just-Delivery“ lógói. ■
Heimsendur matur frá öllum stöðum
Þröstur Már er gífurlega sæll með viðtök-
urnar sem Just-Eat hefur fengið á Íslandi.