Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 12.08.2005, Blaðsíða 51
Unglingatilbo› Margaríta Pizza og Pepsi á kr. 800 Láttu sjá flig www.pizzahut.is • 533 2000 Nordica • Sprengisandi • Smáralind Tilbo›i› gildir einungis í veitingasal Í kvikmyndinni Fantastic Four neyðist vísindamaðurinn Reed Ric- hards til að kyngja stolti sínu. Hann er gjaldþrota og þarf því að fá fyrr- um keppinaut sinn, Victor Von Doom, til að styrkja vísindaleiðang- ur. Tilgangurinn er að rannsaka undarlegt ský sem myndast hefur úti í geimnum. Með þeim fara Susan Storm, fyrrum kærasta Richards, og bróðir hennar Johnny auk nán- asta vinar Richards, Ben Grimm. Leiðangurinn fer úrskeiðis og fimm manna hópurinnn verður fyrir áhrifum af skýinu sem veldur því að þau öðlast yfirnáttúrulega krafta. Einn þeirra Von Doom ákveður að beita sínum til ills og hin fjögur verða að standa saman til að sigrast á honum. Kvikmyndin Fantastic Four er byggð á hasarblöðum frá Marvel- fyrirtækinu. Það er hinn goðsagna- kenndi Stan Lee sem er höfuðpaur- inn á bak við sögurnar en hann gerði einnig Spiderman. Færri vita kannski að hasarblöðin um Fantast- ic Four eru meðal þeirra elstu í heiminum og því kannski ráð í tíma tekið að festa sögurnar á filmu. Kvikmyndagerðarmennirnir hefðu þó mátt eyða meiri tíma í handritið því að það er hvorki fugl né fiskur. Get ekki ímyndað mér að Stan Lee sé ánægður með útkom- una, sérstaklega ef hann ber mynd- ina saman við Spiderman-myndir Sam Raimi. Myndin er uppfull af fúlum fimm aura bröndurum sem nánast allir koma út úr munni Johnny Storm. Fantastic Four líður fyrir hversu vel hefur tekist að útfæra hetjur hasarblaðanna að undanförnu. Það líðst engin meðalmennska, sem er einmitt helsta einkenni hennar, og myndin nær ekki þeim hæðum sem hana langar í. Hún er dæmigerð sumarskemmtun, kemur engum á óvart, góð meðan á henni stendur en skilur ekkert eftir. Freyr Gígja Gunnarsson Ætti ekki a› koma neinum á óvart FANTASTIC FOUR LEIKSTJÓRI: TIM STORY AÐALHLUTVERK: IOAN GRUFFUDD, JESSICA ALBA OG MICHAEL CHIKLIS. NIÐURSTAÐA: Fantastic Four líður fyrir hversu vel hefur tekist að útfæra hetjur hasarblaðanna að undanförnu. Það líðst engin meðal- mennska, sem er einmitt helsta einkenni henn- ar, og myndin nær ekki þeim hæðum sem hana langar í. Hún er dæmigerð sumar- skemmtun, góð meðan á henni stendur en skilur ekkert eftir. [ KVIKMYNDIR ] UMFJÖLLUN Slúðurblöð í Bandaríkjunum hafabirt myndir af Jennifer Aniston og Vince Vaughn í faðmlögum en þau leika saman í myndinni The Break Up. Skiptar skoðanir eru um það hvort þau séu bara svona góðir vinir og séu að æfa sig fyrir hlutverkin í bíómyndinni eða hvort þau séu byrj- uð saman. Jennifer og Vince neita því að um ástarsam- band sé að ræða og segja slúður- blöðin bara svona æst í að skrifa eitthvað um ástarlíf Jennifer eftir skilnað hennar og Brad. Catherine Zeta-Jones og MichaelDouglas eru sennilega samrýmd- ustu hjónin í Hollywood en nú þurfa þau að taka á stóra sínum. Þau hafa verið skráð til leiks í golf- mótinu All Star Cup, sem fram fer í Skotlandi og sýnt verður frá á Sky One, hvort í sitt liðið. Catherine verður meðal annarra frægra í Team Europe en eiginmaður hennar verð- ur í Team USA. Mót- ið fer fram í lok ágúst og skartar fjöldanum öllum af frægu fólki. Leikkonan Jamie Lee Curtis erbúin að segja lýtaaðgerðum stríð á hendur. Hún sat fyrir í myndatöku hjá blaði á nærfötunum án farða og bannaði að myndirnar yrðu lagfærð- ar í tölvu í mótmælaskyni við feg- urðardýrkunina í Hollywood. Leik- konan kallað botox hrukkumeðalið „faraldur sem farinn er úr böndun- um“ í Daily Mail og sagði: „Fólk er farið að líta út eins og frosnar geim- verur eftir allar þessar sprautur.“ FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.