Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.08.2005, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 23.08.2005, Qupperneq 16
Litlar fréttir er að hafa af sumar- leyfisævintýrum hjá Jónu Lísu Þor- steinsdóttur, presti á Akureyri. „Ég tók ekkert sumarfrí í ár og sumarið fór því hálfpartinn framhjá mér,“ segir hún. Ástæðan er hvorki frjókornaofnæmi né ótti við geitunga heldur er Jóna Lísa á leið í burtu. „Ég hætti hérna í haust og flyst til Kanaríeyja.“ Seint í október heldur hún í humátt á eftir farfuglunum og ætlar, eins og þeir, að verja vetrarmánuðunum í sól og sumaryl. „Það hefur lengi togað í mig að vera á Kanarí á veturna, sér- staklega eftir að ég fór að vinna fyrir kirkjuna.“ Jóna Lísa telur gott að prestur sé á eyjunum yfir veturinn þegar nokkur þúsund Íslendingar eru þar saman komnir og stefnir að helgihaldi um jól og páska. Hún verður í hálfu starfi hjá Sumarferðum og hyggst svo nýta lausar stundir til göngu- ferða, lesturs og skrifta. Það verður þó ekki auðvelt fyrir Jónu Lísu að hverfa frá Akureyri þar sem hún hefur unnið fyrir kirkjuna í níu ár. „Það verður erfitt að kveðja þegar þar að kemur,“ segir hún. Jóna Lísa kynntist Kanaríeyjum fyrir tæpum 30 árum þegar bróðir hennar var þar fararstjóri hjá ferðaskrifstofunni Sunnu. „Ég heillaðist strax af staðnum og líður mjög vel þar. Loftslagið er yndislegt og ég hef kynnst þar mörgu góðu fólki.“ 16 23. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR Tungl í ljóni gefur lit Áhrifa fulls tungl á föstu- dag gætti enn á laugar- dag, segir Gunnlaugur Guðmundsson stjörnu- spekingur. Fólk verður oft ergilegra daginn eftir fullt tungl, þegar vaxtar- krafturinn minnkar. Tólf sinnum á ári þykjast margir sjá breytingar á fólki og dýrum, með fullu tungli. Geðveikir og flogaveikir voru eitt sinn sagðir þjáðir af tunglsýki. Ljósmæður segjast sjá meira líf í kringum fæðingar á fullu tungli og bænd- ur kíkja í útihúsin. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, hefur oft sagt að það viti ekki á gott fyrir lögregluna þegar fullt tungl er, líkt og var nú um helgina, en mikil átök ein- kenndu Menn- ingarnótt. Það var þó á f ö s t u d a g i n n , rétt fyrir klukk- an 18, sem fullt tungl var, en ekki á laugar- daginn. Gunn- laugur Guð- m u n d s s o n stjörnuspeking- ur segir að áhrif fulls tungls gæti í þrjá daga, dag- inn á undan og á eftir. Stemningin breytist þó þegar fullu tungli sé náð. „Það er meiri gleði þegar tunglið fer í fyllinguna, en þegar vaxtarkrafturinn minnkar verður fólk ergilegra. Þá er farið að fjara undan kraftinum.“ Það ástand á við á laugardagskvöldið þegar komið var fram yfir fullt tungl. Áhrif tungls á líkamann komi til vegna þess að við erum sjötíu pró- sent vatn, og flóð og fjara eigi við vatnið í líkamanum eins og annað vatn. Gunnlaugur segir tunglið almennt opna á tilfinningar, fólk verði opnara og meira örvandi og meira fjör sé á skemmtistöðum. „Mér hefur alltaf fundist skemmtilegra, ef ég á annað borð er að fara út, að fara á fullu tungli.“ Tunglin tólf hafa sín mismun- andi einkenni, eftir því sem Gunnlaugur segir. Í þetta sinn var tungl í ljóni og vatnsbera, en í ljóninu er mikið líf. Hann bend- ir á Menningarnótt og Hinsegin dagar séu haldnir í ljónsmerkinu og þær hátíðir séu mun litríkari en til dæmis 17. júní. „Ef fullt tungl er í nautinu, voginni eða krabbanum, þá er fólk rólegra. Þegar fullt tungl er í steingeit er fólk agaðra.“ svanborg@frettabladid.is fia› ver›ur erfitt a› kve›ja HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓNA LÍSA ÞORSTEINSDÓTTIR, PRESTUR Í AKUREYRARKIRKJU nær og fjær „fieir voru víst alveg foxillir yfir flessu í Warner Bros.“ JÓN PÁLL ÁSGEIRSSON, STÝRIMAÐUR Á ÓÐNI, Í FRÉTTABLAÐINU. „Ég ætla a› reyna a› bæta mig sem skák- ma›ur og svo kemur í ljós hversu langt metn- a›urinn drífur mig.“ HANNES HLÍFAR STEFÁNSSON, ÍSLANDSMEISTARI Í SKÁK, Í FRÉTTA- BLAÐINU. OR‹RÉTT„ “ GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON Stjörnuspekingur. ÝLFRAÐ TIL TUNGLSINS Á fullu tungli bregður fyrir auknu lífi og tilfinningum. Stundum verða það jákvæðar og skemmtilegar tilfinn- ingar. Á öðrum stundum brjótast þær út í ergelsi og ofbeldi. Ellefu dagar í Landsmót hagyrðinga á Hótel Sögu: Hagyr›ingar eru skríti› fólk Hagyrðingar landsins bíða þess nú að laugardagurinn 3. september renni upp en þá halda þeir árlegt landsmót sitt. „Undirbúningur geng- ur vel en það getur verið erfitt að ná hagyrðingum saman því sum okkar eru jú stórskrítin,“ segir Sigrún Har- aldsdóttir hagyrðingur, sem stendur í undirbúningi ásamt fleirum. Þetta er í sautjánda sinn sem Landsmót hagyrðinga er haldið en fyrst var það á Skagaströnd árið 1989. Þátttakendur eru jafnan á bil- inu 100 til 200 en metfjöldi var á mótinu 1995 sem haldið var í Reykjavík, það sóttu á milli 300 og 400 manns. Hefð er komin á mótshaldið og verða stefin kunnugleg þeim er til þekkja; Matur, mjöður, ávarp heið- ursgests, kveðskapur og kvæða- mennska og dans að lokum. Ógjörn- ingur er að toga upp úr Sigrúnu hver heiðursgestur kvöldsins verð- ur enda ekki frágengið að fullu. Fréttablaðið hefur þó vonir um að geta skýrt frá því síðar í vikunni. Sigrún hvetur hagyrðinga nær og fjær til þess að sækja mótið og leggur til að fólk taki sig saman og komi til samkomunnar á langferða- bifreiðum. „Það skapast alltaf svo skemmtileg stemning í rútum og oft verða til góðar vísur,“ segir hún til útskýringar. Fólk er vitaskuld hvatt til að láta ljós sitt skína á Landsmótinu en réttast væri af viðkvæmum að láta það ógert. „Menn verða nefnilega að una því að sitja undir gagnrýni, ef illa er kveðið.“ - bþs MÆLIR MEÐ RÚTUNNI Sigrún Haralds- dóttir hvetur fólk til að sækja Landsmót hagyrðinga í langferðabifreiðum. „Það skapast alltaf svo skemmtileg stemning í rútum og oft verða til góðar vísur.“ Í tilefni af komandi mótshaldi orti Davíð Hjálmar Haraldsson á Akureyri: Hagyrðinga háttalag hláturs, vekur óma. Látum annan laugardag ljóð og stökur hljóma. M YN D / G VA Landbúnaðarsýningin: M‡sla mar›i sigur Kýrin Mýsla frá Efra-Ási í Hjalta- dal bar sigur úr býtum á kúasýn- ingunni Kýr 2005 sem haldin var í tengslum við Landbúnaðarsýning- una Fluguna í Skagafirði um helg- ina. Mýsla er fimm ára og undan nautinu Krossa og kýrinni Hvít- kollu. Hún er brandkrossótt og hin glæsilegasta í alla staði. Með- alnyt Mýslu eru 6.987 kíló mjólk- ur, fituprósentan er 4,49 og próteinprósentan 3,50. K y n - b ó t a - m a t Mýslu er mjög hátt eða 124 stig og í útlits- einkunn hlaut hún 86 stig. Í öðru sæti í keppninni varð kýrin Lind frá Birkihlíð og í þriðja sæti varð Padda frá Sólheimum. - bþs Á BRATTANN AÐ SÆKJA Keppendur í svissneska fjallahjólreiðamaraþoninu þurftu að kljást við snjó og kulda í keppn- inni miklu um helgina. 4.000 keppendur voru skráðir til leiks en talsvert færri skil- uðu sér í mark.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.