Fréttablaðið - 23.08.2005, Side 34
„Ég er í starfskynningu þessa
dagana til að fá tilfinningu fyrir
starfinu,“ segir Guðmundur G.
Gunnarsson sem á föstudag tekur
við bæjarstjóraembættinu á Álfta-
nesi. Rekstur sveitarfélagsins er
honum ekki með öllu ókunnur því
Guðmundur hefur starfað að mál-
efnum þess í hartnær tuttugu ár og
lengi verið oddviti.
Margt hefur breyst á Álftanesi
síðan Guðmundur og fjölskylda
fluttust þangað fyrir 30 árum. „Þá
bjuggu hér um 340 manns, hænur
voru á vappi og kýr og kindur á
beit,“ rifjar hann upp. Nú eru
íbúarnir um 2.200 og kýrnar farnar
en enn eru haldnar nokkrar rollur á
bænum Sviðholti sem rekur sögu
sína aftur til landnáms.
Guðmundur segir náungakær-
leik og samhug ríkja meðal Álftnes-
inga og þeir sem einu sinni hafi búið
þar sæki þangað aftur. „Við sjáum
það núna að ungt fólk – börn Álft-
nesinga – er að flytja hingað á ný
eftir að hafa þurft að fara frá okkur
um tíma vegna húsnæðisskorts.
Mikið hefur verið byggt að undan-
förnu og bara á þessu kjörtímabili
hafa á annað hundrað íbúðir verið
reistar,“ segir Guðmundur en
dætur hans tvær búa á Nesinu með
sínum fjölskyldum en þriðja dóttir-
in býr í Lúxemborg. „Hún byggi
eflaust á Álftanesi ef hún væri á Ís-
landi,“ segir Guðmundur og hlær.
Forsetasetrið að Bessastöðum
setur vissulega svip sinn á Álftanes
og um einn þriðji alls jarðnæðis
sveitarfélagsins tilheyrir Bessa-
stöðum. Guðmundur segir sambúð-
ina við forsetann ganga vel. „Sam-
skiptin við núverandi forseta eru
mjög góð og þannig hefur það alltaf
verið.“
Guðmundur er vélvirki að
mennt og rak um árabil fyrirtæki
með öðrum bæjarstjóra á höfuð-
borgarsvæðinu; nefnilega Gunnari
I. Birgissyni, bæjarstjóra í Kópa-
vogi. Má heita merkilegt að gömlu
samstarfsmennirnir í verktökunni
séu orðnir bæjarstjórar nágranna-
bæja og taki við störfum sínum
sama árið. „Við skildum að skiptum
1994, hann hélt áfram en ég stofnaði
fiskflutningafyrirtækið Lífæð. Ég
hætti sem sagt að flytja mold og
grjót og flutti fisk í staðinn.“ Með
þeim Guðmundi og Gunnari ríkir
enn góður vinskapur og segir Guð-
mundur að það hafi verið á við há-
skólanám að starfa með Gunnari,
slíkur viskubrunnur sé hann.
Guðmundur er bjartsýnn á
framtíð Álftaness enda uppgangur-
inn mikill nú um stundir. Hann
hlakkar líka til að taka við nýja
starfinu og trúir að áfram verði
blómlegt á nesinu fagra. ■
22 23. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Fetar í fótspor góðvinar
GUÐMUNDUR G. GUNNARSSON VERÐUR BÆJARSTJÓRI Á ÁLFTANESI:
timamot@frettabladid.is
GUÐMUNDUR G. GUNNARSSON Útlit nýja bæjarstjórans á Álftanesi kann að koma
einhverjum á óvart því um helgina tók hann sig til og rakaði af sér skeggið sem prýtt
hefur andlit hans um árabil.
Þennan dag árið 1985 kom í ljós að yf-
irmaður vestur-þýsku öryggisþjónust-
unnar hafði í lengri tíma starfað sem
njósnari fyrir Austur-Þjóðverja. Svik
Hans-Joachim Tiedge komu í ljós þegar
hann flúði yfir til Austur-Þýskalands en
yfirvöld þar í landi tilkynntu um liðhlaup
njósnarans. Einnig greindu þau frá því
að á síðustu átján mánuðum hefðu
nærri 170 vestur-þýskir njósnarar í Aust-
ur-Þýskalandi verið teknir höndum
vegna upplýsinga sem Tiedge veitti.
Þegar öryggissveitir leituðu í híbýlum
Tiedge í Köln komu í ljós ýmis skjöl
sem innihéldu ríkisleyndarmál. Helmut
Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, lýsti at-
hæfi Tiedge sem meiriháttar ógæfu en
fyrir utan Tiedge hurfu þrír aðrir hátt-
settir starfsmenn innan stjórnarinnar á
sama tíma.
Að minnsta kosti sex aðrir voru grunaðir
um að vera í njósnahring Tiedge. Nokkr-
ir ritarar í höfuðborginni Bonn voru
undir eftirliti. Ein þeirra, Herta-Astrid
Willner, sem vann á skrifstofu kanslar-
ans, flúði nokkru síðar ásamt eigin-
manni sínum til Austur-Þýskalands.
Árið áður hafði verið flett ofan af ritara
á skrifstofu forseta Vestur-Þýskalands
sem hafði þá stundað njósnir í yfir
fimmtán ár.
Hin tilbúnu landamæri sem skiptu Aust-
ur- og Vestur-Þýskalandi frá árinu 1961
þýddu að tiltölulega auðvelt var fyrir
njósnara að starfa í mörg ár án þess að
vekja athygli.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1914 Japan lýsir stríði á hendur
Þjóðverjum í fyrri heims-
styrjöldinni.
1946 Gunnar Huseby verður Evr-
ópumeistari í kúluvarpi
með allmiklum yfirburðum
á móti í Osló.
1954 Steinkista Páls biskups
Jónssonar, sem lést árið
1211, finnst við uppgröft í
Skálholti.
1967 Íslendingar tapa fyrir Dön-
um í landsleik í knatt-
spyrnu í Kaupmannahöfn
með fjórtán mörkum gegn
tveimur.
1979 Rússneski ballettdansarinn
Aleksandr Godunov flýr til
Bandaríkjanna eftir sýningu
Bolsoj-ballettsins í New
York.
1993 Hendur leikarans Mel Gib-
son öðlast eilíft líf þegar
hann þrýstir þeim í blauta
steypu í Hollywood.
Vestur-fl‡skur njósnari fl‡r
Hjartans þakkir til ykkar allra sem auðsýnduð
okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, mágs
og tengdasonar,
Þorsteins Óskars Guðlaugssonar
bónda og bifreiðastjóra,
Ölvaldsstöðum 4, Borgarbyggð.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Fjeldsted
Ólína Björg Þorsteinsdóttir
Sigurður Ingi Þorsteinsson
Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson
Þórdís Fjeldsted Þorsteinsdóttir
Jóhanna Birna Þorsteinsdóttir Guðlaugur Bjarni Guðmundsson
Guðjón Guðlaugsson Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir
Halldór Guðni Guðlaugsson Guðrún Birgisdóttir
Þórdís Fjeldsted
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Oddný Aðalbjörg Jónsdóttir
Rauðalæk 20, Reykjavík,
áður Sunnuhvoli, Fáskrúðsfirði,
sem lést á Landakotsspítala 12. ágúst sl. verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.00.
Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir Víðir Sigurðsson
Guðný Björg Þorvaldsdóttir Sigurður Þorgeirsson
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
Kristján Þorvaldsson
Ómar Ásgeirsson
Helga Jóna Óðinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
sem andaðist á heimili sínu mánudaginn 15. ágúst, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hinnar látnu er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Höskuldur Elíasson
Sigrún Höskuldsdóttir Antonio Cavaleiro
Elías Höskuldsson María Carolina Skackauskaite
Sigurður Höskuldsson Dagbjört Edda Barðadóttir
Linda Rut, Telma Rós, Alexander Freyr, Ragnar Már, Lilja Björk,
Ragnhildur Sara og Vigdís Karólína.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kolbrún Sigurðardóttir
Álftamýri 2, Reykjavík,
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ægir Ólafsson
verslunarmaður,
er lést fimmtudaginn 18. ágúst á hjúkrunarheimilinu Eir, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.
Guðrún Unnur Ægisdóttir
Gunnar Ingi Ægisson
Ólafur Friðrik Ægisson Guðrún Linda Einarsdóttir
Eva Guðrún Ægisdóttir Jón Oddur Davíðsson
Benno Georg Ægisson Unnur Jóna Sigurjónsdóttir
Marcela Margrét Ægisdóttir Helgi Bergmann Ingólfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
www.steinsmidjan.is
JAR‹ARFARIR
15.00 Halldóra Guðrún Jóelsdóttir,
Skúlagötu 40a, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
15.00 Guðbrandur Sæmundsson, vél-
virkjameistari, Boðahlein 7, Garða-
bæ, verður jarðsunginn frá Garða-
kirkju.
16.00 Þorsteinn Gylfason prófessor
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni.
AFMÆLI
Ingibjörg Aradóttir er sjötug. Hún tekur
á móti gestum föstudaginn 26. ágúst í
samkomuhúsinu Garðaholti, Garðabæ,
klukkan 20.00.
Magnús Leopoldsson fast-
eignasali er 59 ára.
Úlfar Eysteinsson mat-
reiðslumeistari er 58 ára.
Stefán Jónsson
leikari er 41 árs.
Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur um
geðheilbrigði, er 35 ára.
ANDLÁT
Ægir Ólafsson, fyrrverandi forstjóri, lést
á hjúkrunarheimilinu Eir 18. ágúst.
Sigurjón Jóhannsson, blaðamaður og
kennari, andaðist á Landspítalanum 18.
ágúst.
Guðmundur Benediktsson, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu,
lést í Reykjavík 20. ágúst.
Halldór Sigurðsson, útvarpsmaður í
Kaupmannahöfn, lést 20. ágúst.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Snjólaug Magnea Bjarnadóttir
Þelamörk 54, Hveragerði,
lést sunnudaginn 21. ágúst á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði.
Magnús Kr. Guðmundsson Guðrún Reynisdóttir
Gyða Ó. Guðmundsdóttir Kolbeinn Kristinsson
Bjarni R. Guðmundsson Brynja Sveinsdóttir
Ragnheiður Guðmundsdóttir Lars D. Nielsen
Sveinn H. Guðmundsson Erna Þórðardóttir
Hildur Rebekka Guðmundsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.