Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.08.2005, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 23.08.2005, Qupperneq 36
23. ágúst 2005 ÞRIÐJUDAGUR > Við hrósum ... ... Kjartan Ágústi Breiðdal sem kom inná hjá Fylki í gær, skoraði fyrra markið og lagði upp það seinna og sá til þess að Fylkismenn náðu loksins að vinna leik í Lands- bankadeildinni. Kjartan Ágúst hefur ekki fengið mörg tækifærin í framlínunni í sumar en nýtti það heldur betur í gær. Evrópumeistari ... Jón Oddur Halldórsson varð í gær Evrópumeistar í 100 metra hlaupi á Evrópumóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fer nú fram í Espoo í Finnlandi. Jón sigraði á tímanum 13,5 sekúndum og varði þar með titil sinn frá því fyrir tveimur árum í Assen. Jón Oddur á einnig eftir að keppa í 200 metra hlaupi á mótinu. sport@frettabladid.is 24 > Við furðum okkur á ... .... slæmu gengi íslenska ungmennalands- liðsins á HM í Ungverjalandi. Væntingar voru miklar fyrir mótið og stefndi Viggó Sigurðsson þjálfari óspart á sigur eða verðlaunasæti hið minnsta. Árangur landsliðsins verður að teljast mikill ósigur fyrir Viggó persónulega. Fylkismenn fóru sáttir úr Laugardalnum eftir gó›an 2-1 sigur á Fram í gærkvöldi. Eftir áttatíu markalausar mínútur komu flrjú mörk á lokamínútum leiksins flar sem varamenn Fylkis voru í a›alhlutverkum. Loksins sigur hjá Fylkismönnum FÓTBOLTI Þó að staða liðanna í deild- inni hafi verið nánast sú sama fyrir leikinn hefur gengi liðanna að undanförnu verið ólíkt. Fram hefur unnið hvern leikinn á fætur öðrum á meðan Fylkismenn hafa ekki fengið stig í deildinni síðan 11. júlí er liðið lagði KR í Frosta- skjóli. En báðum liðum var þó mikið í mun að sigra til að losna endanlega við falldrauginn, jafn- tefli voru ekki nógu góð úrslit. Leikurinn var fjörlegur svo ekki sé meira sagt. Það var með ólíkindum að leikmönnum þessara liða tókst ekki að skora mark fyrr en á 80. mínútu því nóg var um marktækifæri. Fjórtán hornspyrn- ur voru til að mynda dæmdar á þessum tíma í leiknum en allt kom fyrir ekki. Vandamálið var að liðin náðu sjaldnast að klára færin sín með skoti á markið og skyldi því engan undra að markið skyldi ekki koma. Vandamál þetta var sérstaklega áberandi hjá gestunum en þeir komu sér þó nokkrum sinnum í ákjósanlega stöðu fyrir framan mark Fram, án þess þó að gera al- mennilega tilraun til þess að skora mark. Danski framherjinn Christi- an Christiansen gerði sig til að mynda sekan um slík mistök í tvígang og var í raun grátlegt að fylgjast með framherja missa svo fótanna fyrir framan mark and- stæðingsins. Framarar voru öllu óheppnari en þeir áttu tvívegis skot í stöng, fyrst Bo Henriksen og svo Andri Fannar Ottósson. Sá síðarnefndi átti reyndar að gera betur en hann var kominn í mjög gott færi. Það kom því ekki á óvart að það þurfti varamann til að skora fyrsta mark leiksins. Það kom í hlut Kjartans Ágústs Breiðdal, sem gerði vel er hann fékk boltann utarlega í vítateignum og skoraði með ágætu skoti í nærhornið. En baráttan hélt áfram í leiknum og átti annar varamaður, Haukur Ingi Guðnason, ágætt skot að marki Fram sem Gunnar Sigurðsson varði vel nokkrum mínútum síðar. Framarar bættu í sóknina í kjöl- farið á kostnað varnarleiksins. Það reyndist dýrkeypt á lokamínútum leiksins er Viktor Bjarki Arnarson skoraði annað mark Fylkis eftir að hafa komist einn inn fyrir vörn Fram. Það skipti svo litlu er Bo Henriksen minnkaði muninn fyrir heimamenn stuttu síðar því leikur- inn var flautaður af litlu síðar. eirikurst@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 20 21 23 23 24 25 26 Þriðjudagur ÁGÚST ■ ■ LEIKIR  17.30 Breiðablik og Valur mætast í VISA-bikarkeppni kvenna á Kópa- vogsvelli.  17.30 KR og Fjölnir mætast í VISA- bikarkeppni kvenna í Frostaskjóli. ■ ■ SJÓNVARP  07.00 Olíssport á Sýn. Endursýnt þrisvar til 9.00 og aftur 15.40.  18.55 Liverpool og CSKA Sofia mætast í Meistaradeild Evrópu á Sýn.  21.00 Ensku mörkin á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.30 Leikur Liverpool og CSKA Sofia endursýndur á Sýn.  00.10 Strandblak á Sýn. Þegar blaðamenn hópuðust að Tryggva Guðmundssyni eftir að sigur FH var í höfn á sunnudaginn hafði kappinn lítið að segja og virtist í mikilli sigurvímu. Hann lét þó ekki sitt eftir liggja í fagnað- arlátunum eftir leikinn og dansaði hinn svokallaða rækjudans fyrir káta stuðn- ingsmenn FH, sem ærðust af fögnuði. Þegar Fréttablaðið hafði sam- band við Tryggva í gær og spurði hann út í tilþrifin kom í ljós að hann hafði feng- ið heilahristing eftir að boltanum var skotið í höf- uð hans í leiknum og þurfti því að fara á slysadeild í athugun. „Ég man bara eiginlega ekkert eftir þessum leik í gær og mér skilst að ég hafi bara bullað tóma steypu í viðtölum eftir leikinn,“ sagði Tryggvi, sem var enn ekki alveg búinn að ná sér eftir höggið. „Þetta var mjög skrítinn dagur í gær. Ég var farinn að fara verulega í taugarnar á fólki, því ég var alltaf að spyrja hvernig leikurinn hefði farið og hverjir hefðu skorað. Ég var víst með einhver skemmtiatriði á slysadeild- inni líka en ég man bara ekk- ert eftir því,“ sagði Tryggvi hissa á öllu saman. Þegar hann var spurður út í dansinn sem hann tók liggjandi á vellinum fyrir áhorfendur í leikslok, útskýrði hann að þar hefði verið á ferðinni „rækjudans- inn“. „Þennan dans bjó ég til þegar ég var úti í Tromsö á sínum tíma og ég kenndi strákunum í FH þennan dans þegar við vorum í æfingabúðunum úti í Portúgal í vor. Ég sagði þeim að ef við yrðum Íslandsmeistarar skyldi ég taka þennan dans og ég varð auðvitað að standa við það,“ sagði Tryggvi, sem er áreiðanlega einn af fáum mönnum sem hafa skorað mörk í Lands- bankadeildinni án þess að muna eftir því. TRYGGVI GUÐMUNDSSON: Í ANNARLEGU ÁSTANDI EFTIR HÖFUÐHÖGG Í LEIKNUM GEGN VAL: Dansa›i rækjudansinn og man ekki neitt *MAÐUR LEIKSINS FRAM 4–4–2 Gunnar 6 Eggert 6 (86. Þorbjörn Atli –) Þórhallur Dan 5 Kristján 6 Gunnar Þór 8 Daði 6 (46. Ómar 6) Mathiesen 6 Ingvar Þór 6 Víðir 5 (63. Kristófer 5) Andri Fannar 7 Henriksen 5 FYLKIR 4–4–2 Bjarni Þórður 7 Ragnar 6 Hrafnkell 6 Valur Fannar 7 Arnar Þór 5 Viktor Bjarki 7 Helgi Valur 6 Jón Björgvin 5 (57. Tranberg 6) Eyjólfur 6 (75. Kjartan Ágúst 8*) Björgólfur 6 Christiansen 3 (70. Haukur Ingi 7) Aron Kristjánsson að gera góða hluti sem þjálfari í danska handboltanum: HANDBOLTI Danska handknatt- leiksliðið Skjern, sem Vignir Svavarsson, Vilhjálmur Hall- dórsson og Jón Jóhannesson leika með og Aron Kristjánsson þjálfar, bar sigurorð af spænsku Evrópumeisturunum Barcelona í æfingleik á sunnudagskvöldinu með einu marki, 29–28. Vignir skoraði fimm mörk, Vilhjálmur tvö og Jón eitt. 2000 manns mættu á völlinn og var húsfyllir. Skjern varð fyrir mikilli blóðtöku þegar Finninn Patrik Westerholm sleit hásin og verður frá í níu mánuði. „Þetta er mikill missir fyrir okkur því hann er mjög góður og meiðslavandræðin hægra megin halda áfram,“ sagði Vignir í sam- tali við Fréttablaðið en nú eru allar skytturnar þar meiddar. „Ég hef boðist til þess að leysa þessa stöðu,“ bætti hann við í léttum dúr en fékk víst ekki miklar undirtektir. Sjálfur var Vignir nokkuð sáttur við sitt og sagðist vera bú- inn að koma sér vel fyrir í þess- um litla bæ. „Ég er að komast í betra form en ég hef áður verið. Er búinn að lyfta markvisst í fyrsta skipti á ævinni og við erum búnir að hlaupa og æfa mjög vel,“ sagði Vignir sem kann greinilega vel við sig á móti Barcelona en hann var einmitt í liði Hauka sem gerði jafntefli við Börsunga í meistaradeildinni fyrir tæpum tveimur árum. -fgg Íslendingali›i› Skjern vann Barcelona LANDSBANKADEILDIN FH 15 15 0 0 46–6 45 VALUR 15 10 1 4 27–11 31 ÍA 15 7 2 6 18–18 23 KEFLAVÍK 15 5 6 4 24–28 21 FYLKIR 15 6 2 7 25–26 20 KR 15 6 1 8 18–22 19 FRAM 15 5 2 8 16–22 17 ÍBV 15 5 1 9 17–26 16 GRINDAVÍK 15 3 3 9 16–36 12 ÞRÓTTUR 15 2 4 9 16–28 10 MARKAHÆSTIR: Allan Borgvardt, FH 13 Tryggvi Guðmundsson, FH 13 Garðar Gunnlaugsson, Val 8 Hörður Sveinsson, Keflavík 8 Matthías Guðmundsson, Val 7 RÓLEGUR, ÞÓRHALLUR Gísli Hlynur Jóhannsson, dómari leiks Fram og Fylkis, róar hér Þórhall Dan Jóhannsson, fyrirliða Fram og fyrrum leikmann Fylkis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1-2 Laugard.v., áhorf:834 Gísli Hlynur Jóhannss.(6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–14 (3–6) Varin skot Gunnar 4 – Bjarni 0 Horn 6–8 Aukaspyrnur fengnar 9–14 Rangstöður 2–5 0–1 Kjartan Ágúst Breiðdal (81.) 0–2 Viktor Bjarki Arnarsson (90.) 1–2 Bo Henriksen (90.) Fram Fylkir VIGNIR SVAVARSSON Var í fremstu víglínu hjá Skjern þegar liðið bar sigurorð af Barcelona í æfingaleik.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.