Fréttablaðið - 27.08.2005, Síða 48
Sjöunda áratugnum lauk meðkvikmyndinni MidnightCowboy. Jon Voigt og Dustin
Hoffman í hráum veruleika karl-
hórunnar. Það má kannski segja
að með henni hafi verið markað
nýtt upphaf í sögu kvikmynda-
gerðar Hollywood. Blóðugar og
átakanlegar kvikmyndir voru það
sem fólkið vildi. Aðsóknin í kvik-
myndahúsin jókst um helming og
metsölukvikmyndir urðu nýtt fyr-
irbæri. Star Wars-æði og Jaws-
manía tóku inn peningaupphæðir
sem ekki höfðu sést áður.
Kynslóðaskiptin
Margir telja sjálfstæða kvik-
myndagerð hafa hafist á áttunda
áratugnum, segja að þarna séu all-
ar þær myndir sem nauðsynlegt
er að sjá ef fólk ætli á annað borð
að geta tjáð sig af viti um kvik-
myndir. Aðrir vilja meina að þessi
áratugur sé merkilegur fyrir þær
sakir að þarna hafi komið upp ný
kynslóð kvikmyndagerðarmanna
Það séu ekki fréttir í sjálfu sér.
Áttundi áratugurinn var tími
nýjunga, á því leikur enginn vafi.
Arfleifð hans hefur varðveist, um
það verður ekki deilt. En var hann
sá besti?
Í upphafi áratugarins leituðu
stóru kvikmyndaverin að fram-
haldi af Sound of Music. Þau
gerðu sér fljótlega grein fyrir því
að samfélagið var að breytast.
Fólk vildi ekki láta bjóða sér ein-
hverja draumaveröld. Það vildi
raunveruleikann beint í æð. Of-
beldi, nekt og kynlíf. Lífið var
ekki eins auðvelt og kvikmyndirn-
ar létu það líta út fyrir að vera.
Þetta var á þeim tíma þegar
Nixon neyddist til að segja af sér.
Kannski táknrænt. Hann var ekki
beint tákn frjálslyndis. Banda-
ríski herinn varð að snúa aftur
eftir sneypuför sína til Víetnam
og móttökurnar sem dátarnir
fengu voru ekki burðugar. Allir
voru á móti þeim.
Víetnam og Mafían
Nixon varð uppvís að spillingu,
kom fram í sjónvarpi og greindi
frá þeirri ákvörðun sinni að segja
af sér. Hann sagðist þó ekki vera
glæpamaður. Hann hafði orðið
fyrir barðinu á Deep Throat,
innsta manni í búri sem lak upp-
lýsingum í tvo blaðamenn Was-
hington Post. Fjórum árum síðar
kom kvikmyndin All the Pres-
ident’s Men út. Þar var aðdragana
afsagnar Nixons lýst með Dustin
Hoffman og Robert Redford í eld-
línunni.
Travis Bickle var hermaður úr
Víetnam-stríðinu. Þegar hann
kom heim sá hann að New York
var ekki hrein heldur uppfull af
skít og barnungum hórum. Götun-
um var stjórnað af miskunnar-
lausum melludólgum. Þetta var
ekki landið sem Bickle barðist
fyrir í Víetnam svo hann tekur
málin í sínar hendur. Hreinsar til.
Taxi Driver er mögnuð ádeila á
viðtökurnar sem bandarísku her-
mennirnir fengu þegar þeir komu
heim frá Víetnam. Deer Hunter
gefur henni ekkert eftir. Áherslan
er ekki lögð á stríðið sjálft heldur
afleiðingarnar sem það hafði á
sálartetur mannanna. Apocalypse
Now gerði geðveikinni í stríðinu
svo góð skil að það þarfnast ekki
frekari skýringa.
„Ég gerði honum tilboð sem
hann gat ekki hafnað,“ sagði Vito
Corleone við hljómsveitarstjór-
ann. Einhver eftirminnilegasti
fjölskyldufaðir kvikmyndanna.
Þrátt fyrir allt ofbeldið og svikin
hafði áhorfandinn samúð með
glæpamönnunum. Fannst það
ekki sangjarnt þegar Sonny var
skotinn milljón sinnum eftir að
hafa verið svikinn af mági sínum.
Gladdist þegar sá kauði var drep-
inn.
Persónur og leikendur
Á áttunda áratugnum urðu marg-
ar af frægustu kvikmyndapersón-
um sögunnar til. Serpico, Dirty
Harry og Darth Wader.
„Are you talking to me?“ er lín-
an sem flestir drengir segja ein-
hvern tíma fyrir framan spegil-
inn. Annie Hall var fyrsti
femínistinn á hvíta tjaldinu. Hún
sagði Alvy Singer upp og fluttist
til Los Angeles. Þurfti að sinna
eigin starfsframa.
Það er hálf ótrúlegt að horfa
yfir lista leikara sem urðu stór-
stjörnur á þessum tíma. Al Pacino
gerði Michael Corleone ódauðleg
skil í fyrstu tveimur Guðföður
myndunum. Martin Sheen var út
úr dópaður á tökustað Apocalypse
Now og fékk loks hjartáfall. Gene
Hackman gómaði glæpamenn
sem Popey Doyle í French Conn-
ection sem fékk Óskarinn. Linda
Blair var andsetin í The Exorcist
og svona mætti lengi telja. Nánast
ógerlegt að velja hver stendur
upp úr og hver þurfi að vera í
skugganum. Kannski er það Mich-
ael Caine í Get Carter eða Monthy
Python-flokkurinn í myndinni um
hinn Heilaga Kaleik?
Kraftmikilir leikstjórar undir
verndarhendi Corman
Auðvitað er ekkert einum manni
að þakka. Þeir eru hins vegar ansi
margir sem benda á Roger Corm-
an sem skapara þessa áratugar.
Corman hætti afskiptum af kvik-
myndleikstjórn árið 1971 til þess
að einbeita sér að kvikmyndafyr-
irtæki sínu New World og fram-
leiða kvikmyndir. Corman vildi
finna nýja menn, fá ferskt blóð í
Hollywood.
Corman virðist hafa haft ótrú-
lega næmt auga fyrir hæfileika-
fólki og fyrir tilstilli hans, á einn
eða annan hátt, sem leikstjórar á
borð við Francis Ford Coppola,
Martin Scorsese, Peter Bogda-
novich, Jonathan Demme og
James Cameron fengu að láta ljós
sitt skína. Hann vildi að leikstjór-
ar hefðu myndavélina á hreyf-
ingu, smá nekt myndi ekkert
skemma og tónlistin þyrfti ekki að
vera sú vinsælasta. Hún gæti orð-
ið það síðar meir. Corman gaf
þessum mönnum tækifæri.
Quentin Tarantino getur varla
gert kvikmynd án þess að vísa til
28 27. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
G
ET
TY
SI
M
AG
ES
SÁ BESTI? seventies
Áttundi áratugurinn er í hugum margra einhver besti
áratugur kvikmyndanna. A›rir segja áttunda áratug-
inn vera merkilegan fyrir flær sakir a› flar áttu sér
sta› kynsló›askipti. Freyr Gígja Gunnarsson rifja›i
upp nokkrar myndir frá flessum áratugi.
ANNIE HALL Diane Keaton kemur tví-
mælalaust til greina sem leikkona áttunda
áratugarins ekki eingöngu fyrir frammi-
stöðu sína í Annie Hall.
JIMMY „POPEY“ DOYLE Fáir ef einhverjir
voru jafn harðir af sér og Popey Doyle. Hann
elti uppi harðsvíraða glæpamenn og stóð
Dirty Harry ekki langt að baki. William
Friedkin, leikstjóri French Connection, var
hins vegar aldrei hrifinn af þessum áratug
og líkti honum við McDonald’s væðinguna.
ROGER CORMAN Roger er af mörgum
talinn vera upphafsmaður þeirrar hráu og
sjálfstæðu kvikmyndagerðar sem varð
áberandi á áttunda áratugnum.
MICHAEL CORLEONE Hin magnaða
kvikmynd The Godfather hefur mótað allar
mafíumyndir síðan Corleone-fjölskyldan
kom fyrst fyrir augu almennings.
HOFFMAN OG REDFORD Þeir léku Carl
Bernstein og Bob Woodvard í All the Pres-
ident’s Men þar sem sögunni á bak við
Watergate er gerð góð skil
TRAVIS OG IRIS Taxi Driver var
mögnuð en mjög dulin ádeila á þá
vanlíðan sem hermenn úr Víetnam-
stríðinu þurftu að glíma við.