Fréttablaðið - 29.08.2005, Page 10

Fréttablaðið - 29.08.2005, Page 10
HRESSANDI Þátttakandi í alþjóðlegu mara- þonmóti í Mexíkóborg sem haldið var í gær, kælir sig með því að hlaupa undir vatnsúðara. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 10 29. ágúst 2005 MÁNUDAGUR Sveitarstjórinn í Dalabyggð segir uppgang í atvinnulífinu: Sláturhúsi› aftur í rekstur SVEITARSTJÓRNARMÁL Verið er að leggja lokahönd á breytingar í sláturhúsinu í Búðardal. Dala- land, nýtt félag í eigu sveitarfé- lagsins, hefur tekið við rekstri sláturhússins, en í því var ekki slátrað síðasta haust. Ráðist var í breytingar á húsinu til að það fengi staðist ákvæði reglugerðar um sláturhús. „Landbúnaðarráðuneytið gef- ur löggildingu og embætti Yfir- dýralæknis rekstrarleyfi,“ segir Haraldur Líndal Haraldsson sveitarstjóri sem er í forsvari fyrir Dalaland. Hann segir að ráðist hafi verið í framkvæmdir í samráði við og með samþykki ráðuneytisins. „Við stefnum að því að vera komin með leyfi áður en vígslan fer fram 4. septem- ber.“ Náðst hafa samningar við kjötvinnsluna Norðlenska um kaup á afurðum Dalalands. Haraldur segir uppgang í Dala- byggð og þar spili væntanlega bættar atvinnuhorfur inn í. „Hér er einn að byggja hús, tveir aðrir búnir að fá úthlutað lóðum fyrir einbýlishús og svo er einn úr Reykjavík að hefja byggingu á sex leiguíbúðum í þremur parhús- um.“ Auk vinnslunnar í sláturhúsinu þá fjölgar störfum með fyrirhugaðri stækkun hjúkr- unarheimilisins að Fellsenda í Dölum og með starfsemi ung- mennabúða að Laugum, sem hófu rekstur um áramót. -óká Fjór›ungur er allt of feitur Sílspiku›um Bandaríkjamönnum fjölgar hra›ar en nokkru sinni fyrr og lætur nærri a› fjór›ungur lands- manna glími vi› offitu. 57 prósent íslenskra karla eru yfir kjörflyngd. OFFITA Bandaríkjamenn fitna nú hraðar en nokkru sinni fyrr en talið er að 64,5 prósent þjóðarinn- ar séu yfir kjörþyngd. Áróður fyrir heilsusamlegri lifnaðar- háttum virðist litlu hafa skilað. Bandaríkjamenn eru feitasta þjóð í heimi og ný rannsókn sam- takanna Trust for America’s Health sem sagt er frá á heima- síðu BBC bendir til að þeir bæti enn á sig kílóunum. 119 milljónir Bandaríkjamanna eða 64,5 pró- sent glíma annað hvort við of- þyngd (nokkuð yfir kjörþyngd) eða offitu (umtalsvert yfir kjör- þyngd). Á síðasta ári fjölgaði þeim sem glíma við offitu í 48 ríkjum Bandaríkjanna. Aðeins íbúar Or- egon-ríkis í norðvesturhluta landsins stóðu í stað í þessum efnum en þar er rúmlega fimmt- ungur íbúanna of feitur. Hawaii var ekki með í rannsókninni. Á landsvísu fjölgaði offitu- sjúklingum um tæpt prósentu- stig, árið 2004 voru 24,5 prósent Bandaríkjamanna of feit saman- borið við 23,7 prósent árið 2004. Í tíu ríkjum stríðir ríflega fjórð- ungur íbúanna við sjúklega offitu. Mississippi-búar eru feit- astir allra en íbúar Alabama og Vestur-Virginíu fylgja þeim fast á eftir. Slæmt mataræði og almennt hreyfingarleysi er skýringin á þessu holdafari og virðist áróður stjórnvalda fyrir bættri heilsu hafa jafn mikil áhrif og vatns- skvettur á gæs. Trust for Amer- ica’s Health telur að árið 2008 verði 73 prósent landsmanna yfir kjörþyngd og þá sé voðinn vís. Offitutengdir sjúkdómar á borð við sykursýki og hjartasjúkdóma myndu sliga heilbrigðiskerfið og kosta skattgreiðendur milljarða dala. Engar líkur eru sagðar á að manneldismarkmið ríkisstjórn- arinnar um að minnka offitu um 15 prósent fyrir árið 2010 náist. Holdafar Íslendinga er aðeins skárra, þó ekki mikið. Sam- kvæmt niðurstöðum Landskönn- unar á mataræði 2002 voru um 57 prósent karla og fjörutíu prósent kvenna á aldrinum 15-80 ára yfir kjörþyngd. sveinng@frettabladid.is FYRSTU SKÓFLUSTUNGURNAR Væntanleg- um nemendum nýs leik- og grunnskóla að Völlum í Hafnarfirði fannst gaman að taka saman fyrstu skóflustunguna að Hraun- vallaskóla. Nýr skóli í Hafnarfirði: Börnin tóku skóflustungu MENNTAMÁL Væntanlegir nemend- ur Hraunvallaskóla í Hafnarfirði tóku fyrstu skóflustunguna að skólanum á föstudag. Viðstaddir voru Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og fulltrúar Hraunmóta sem byggja fyrsta áfanga skólans. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja starfsemi í skólanum strax næsta haust og að skóla- húsið verði fullbúið haustið 2009. Hraunvallaskóli mun þjóna öllum íbúum á Völlum en íbúafjöldi í hverfinu hefur margfaldast undanfarin ár. -aöe DESDÝR Desdýr líkjast köttum og éta allt sem tönn á festir. Þau gefa frá sér sterka moskuslykt. Fuglaflensa í Víetnam: firjú desd‡r hafa drepist VÍETNAM, AP Þrjú desdýr af afar sjaldgæfri tegund hafa drepist úr fuglaflensu í þjóðgarði í Víetnam. Er það í fyrsta skipti sem flensan greinist í þessari tegund dýra, að sögn forstöðumanna þjóðgarðs- ins. Sýni úr desdýrunum, sem drápust um miðjan júní, voru send til ræktunar og upp úr dúrn- um kom að þau voru öll sýkt af H5N1-stofni fuglaflensunnar. Sýni hafa verið tekin úr öðrum dýrum og fuglum í þjóðgarðinum en engin fuglaflensa fundist og enn er upptakanna því leitað. Des- dýrunum var aldrei gefið fugla- kjöt að éta. Vísindamönnum þykir þetta bera vott um það hversu hættuleg fuglaflensan sé. BÚÐARDALUR Sveitarstjóri Dalabyggðar segir heilsársstörf í sláturhúsinu, sem lok- að var í fyrra, hafa verið 25 þegar það var í fullum rekstri. Hann gerir ráð fyrir að slát- urhúsið muni ná fyrri stærð. HLUTFALL OFFITUSJÚKLINGA AF ÍBÚAFJÖLDA RÍKJA 1. Mississippi 29.5% 2. Alabama 28.9% 3. Vestur-Virginía 27.6% 50. Colorado 16.4% ÖRLÍTIÐ YFIR KJÖRÞYNGD Spár benda til að árið 2008 verði 73 prósent Bandaríkjamanna í þessum sporum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /N O R D IC P H O TO S/ G ET TY DANMÖRK DANSKA RÍKISSJÓNVARPIÐ ÁVÍTT Sjónvarpsstöðin TV2, sem rekin er af danska ríkissjónvarpinu, var fyrr í vikunni ávítt fyrir að heimila kostun á veðurfréttum stöðvarinnar, en dönsk lög banna kostanir á fréttatengdu efni. Stöðin var einnig ávítt fyrir að gera hlé á þáttum fyrir auglýs- ingar og birta dulin auglýsinga- skilaboð. SVEITARSTJÓRNAMÁL UMRÆÐUTORG Félagsmálaráðu- neytið hefur opnað umræðutorg á vefnum um sameiningu sveitar- félaga. Þar er hægt að skiptast á skoðunum um tillögur sameining- arnefndar og ræða um kosti þeirra og galla. Slóðin á umræðu- torgið er felagsmalaradu- neyti.is/umraedan.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.