Fréttablaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 72
Eignir hafa
aukist að
raunvirði
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu hefur hækkað um
20,6% á síðustu sex mánuðum og
tæp 40% frá sama tíma í fyrra.
Hún stendur nú í 282,4 stigum að
því er fram kemur í Vegvísi
Landsbankans. Þar er því spáð að
aukið líf færist í fasteignamark-
aðinn þegar sumarleyfi verði af-
staðin.
Eignaverðsvísitala KB banka
sem vegur saman fasteigna-,
hlutabréfa- og skuldabréfaverð
hækkaði um 1,5% að raunvirði í
júlí síðastliðnum en um 25% á síð-
astliðnum 12 mánuðum. Greining-
ardeild bankans telur eignir
landsmanna hafa aukist um 700
milljarða að raunvirði á einu ári,
eða frá því bankarnir komu inn á
fasteignamarkaðinn í fyrra.
SPURNING
VIKUNNAR
á fasteignavef Visis
69%
Nei
Já
SPURNING SÍÐUSTU VIKU:
Ertu að bíða eftir að fasteignaverð
lækki?
31%
Kemur
þér vel saman við
nágranna þína?
Þóra Sigurðardóttir er fljót að svara þegar hún er spurð út í draumahúsið sitt.
„Það er lítið raðhús á þremur hæðum og með garði. Ég var einmitt að kaupa
svona hús þannig að ég er eiginlega komin í draumahúsið núna eftir að hafa
látið mig dreyma heillengi,“ segir hún og bætir því við að hún vilji búa í raðhúsi
því það sé frábært að geta verið í sérbýli með öllum þeim kostum sem því fylgja
án þess þó að þurfa að kaupa sér risa stórt einbýlishús og steypa sér í skuldir.
„Ég er ofboðslega hrifin af þessu húsi. Það minnir mig á bresku raðhúsin og ég
er í svona hálfgerðum útlandafíling hérna. Líður hálfpartinn eins og ég búi í
London. Íbúðin er mjó og á þremur pínulitlum hæðum. Það er fínt að hafa alla
þessa stiga því þá þarf ég ekki að mæta í ræktina,“ segir hún hlæjandi og kveðst
vera farin að taka tvær tröppur í hverju skrefi til að komast hraðar yfir. „Svo er
náttúrlega garður við húsið sem er frábært. Mér finnst skipta öllu máli að hafa
góðan garð því það er svo gott að vera úti og grilla og dunda sér.“
Ef Þóra væri ekki nýbúin að eignast þetta fallega hús gæti hún vel hugsað sér að
eiga stórt og opið hús sem þrifi sig sjálft. „Ég er hrifin af stílhreinum húsum í
funkisstíl og vil hafa stóra og opna glugga. Annars skiptir útlitið ekki öllu. Svo
lengi sem það er ekki hannað af Kjartani Sveinssyni þá gengur allt. Þetta er ekk-
ert persónulegt sko. Ég ólst bara upp í Grafarvoginum og er með ofnæmi fyrir
svoleiðis húsum.“
DRAUMAHÚSIÐ MITT ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR
Breskt raðhús í Vesturbænum
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
8/7-
14/7
190
15/7-
21/7
161
22/7-
28/7
153
29/7-
4/8
145
5/8-
11/8
173
12/8-
18/8
136
Laugardalslaug var opnuð árið 1968 og er hönnuð af Einari Sveinssyni þáver-
andi húsasmíðameistara Reykjavíkur. Aðallaugin er 50 metra keppnislaug en
við hana standa stórir og miklir áhorfendapallar sem hafa lengi vel einkennt
Laugardalslaugina. Þar er einnig að finna barna- og kennslulaug, og 5 heita
potta, vaðlaug og eimbað. Í byggingunni eru búningsklefar, afgreiðsla, tækja-
salur, júdósalur og karatesalur, auk þess sem þar er nuddsalur. Við upphaf
þessa árs var Laugardalslaugin stækkuð þegar þar opnaði ný 25X50 metra
innilaug með heitum potti og áhorfendapöllum. Í kjölfarið var afgreiðslunni
breytt og inngangurinn færður. Hönnun nýja hlutans var í höndum Ara Lúð-
víkssonar. Forstöðumaður Laugardalslaugarinnar er Stefán Kjartansson.
LAUGARDALSLAUG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
?