Fréttablaðið - 29.08.2005, Blaðsíða 86
30 29. ágúst 2005 MÁNUDAGUR
Kvikmyndin sem gera á eftir Mýr-inni, sakamálasögu Arnaldar
Indriðasonar, er í biðstöðu en það
var jafnvel reiknað með að vinna við
hana færi á fullt á næstunni.
Baltasar Kormákur framleiðir
myndina en vinna hans
við spennumyndina A
Little Trip to Heaven
varð að sögn mun
tímafrekari en fyrstu
áætlanir gerðu ráð
fyrir enda mikil
áhersla lögð á að
gera þá mynd sem
best úr garði. Þá
segir sagan að framleiðendur Mýr-
arinnar vilji heldur ekki ana út í
neitt fyrr en skothelt handrit liggur
fyrir. Verið er að prófa leikkonur í
hlutverk dóttur lögreglumannsins
Erlendar en ekkert hefur verið
ákveðið í þeim efnum. Það verður
hins vegar Ingvar E. Sigurðsson
sem mun fara með hlutverk rann-
sóknarlögreglumannsins vinsæla.
Elva Ósk Ólafsdóttir mun leika El-
ínborgu, samstarfskonu Erlendar og
Björn Ingi Haraldsson mun bregða
sér í hlutverk löggunnar Sigurðar
Óla. Reynir Lyngdal mun leikstýra
Mýrinni sem verður fyrsta kvikmynd-
in hans í fullri lengd.
Sjónvarpsþættirnir um Latabæhafa verið að gera það gott á er-
lendri grundu og nú fer loks að
koma að því að aðdáendur Íþrótta-
álfsins, Glanna glæps, Solu stirðu
og allra hinna íbúanna í bænum fái
að bera hetjurnar augum í íslensku
sjónvarpi. RÚV hefur sýningar á
þáttunum föstudaginn 2. september
en í fyrsta þættinum kemur Solla til
Latabæjar og hittir þar fyrir skraut-
legan hóp barna og fullorðins fólks,
þar á meðal latasta ofurþrjót í
heimi, sjálfan Glanna glæp. Það er
Sollu til happs að í Latabæ býr líka
hinn fríski og fjörugi Íþróttaálfur
sem fer í loftköstum um Latabæ og
hjálpar Sollu að velja alltaf þá kosti
sem stuðla að heilbrigðu líferni en
láta óhollustuna eiga sig. Þættirnir
verða sýndir á föstu-
dagskvöldum klukk-
an 20.10 og endur-
sýndir klukkan 10.20 á
sunnudagsmorgnum
og klukkan
18.30 á
fimmtudög-
um.
Ofurtala
2 6 9 19 24
1 4 5 29 34 38
31 46 36
3 2 6 2 7
3 9 2 9 9
27.08. 2005
24.08. 2005
Fjórfaldur 1. vinningur
nk. laugardag.
Tvöfaldur
1. vinningur
nk. laugardag.
Fyrsti vinningur gekk ekki út.
Fyrsti vinningur gekk út.
7
Heimildarmyndin Alive in Limbo
eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur
fékk nýverið sérstök mannrétt-
indaverðlaun á kvikmyndahátíð-
inni í Locarno í Sviss. Hrafnhild-
ur gat þó sjálf ekki verið viðstödd
verðlaunaafhendinguna en sam-
starfskona hennar Erica Marcus
veitti verðlaununum viðtöku. Ali-
ve in Limbo segir sögu Palestínu -
araba sem hafa búið í Líbanon
undanfarin 58 ár, eða síðan þeir
voru hraktir á brott af Ísraels-
mönnum. Myndin var sýnd á
Reykjavík Shorts & Docs hátíð-
inni í fyrra og Hrafnhildur er að
reyna að fá hana sýnda á Ríkis-
sjónvarpinu. „Okkur tókst að
selja hana á PBS, Public Broa-
dcasting Service, í Bandaríkjun-
um en það kerfi nær til 322
landa,” segir Hrafnhildur og
hafði haft spurnir af því að mynd-
in hefði verið sýnd á San Frans-
isco svæðinu. Alive in Limbo er
pólitísk mynd. Hún fylgist með
þriðju og fjórðu kynslóð flótta-
manna sem hafa fæðst ríkisborg-
arlausir í flóttamannabúðum en
Líbanon hefur neitað þeim um
ríkisborgararétt. „Afar og ömm-
ur þessarar kynslóðar voru rekin
frá Palestínu,“ segir hún en talið
er að um tvær milljónir flótta-
manna búi í löndunum við Ísrael.
„ Myndin er önnur vídd inn í þá
atburðarrás sem nú á sér stað á
Gaza ströndinni,” segir hún.
Hrafnhildur fór sex sinnum til
Líbanon og segist hafa orðið mjög
hrifin af landinu. „Ég gerði mér
þá grein fyrir þeim falsáróðri sem
dunið hefur yfir okkur frá Ísrael
og þeirra helsta bandamanni,
Bandaríkjunum,“ segir hún.
Næsta verkefni Hrafnhildar er
heimildarmynd um réttindabar-
áttu samkynhneigðra á Íslandi í
þrjátíu ár, tíu ára viðfangsefni
sem hún hefur átt erfitt með að
losa sig við. „Þetta er búið að vera
hvíti fíllinn í mínu lífi en nú verð
ég að láta hana frá mér,” segir
Hrafnhildur. ■
Var› ástfangin af Líbanon
HRAFNHILDUR GUNNARSDÓTTIR Ætlar loksins að klára heimildarmynd sem hún hef-
ur verið með í gangi í tíu ár. Hún fjallar um réttindabaráttu samkynhneigðra á Íslandi síð-
astliðin þrjátíu ár.
Leikmyndasmiðurinn og húsa-
smíðameistarinn Ólafur Ingimund-
arson frá Hólmavík er um þessar
mundir upptekinn við gerð leik-
myndar fyrir stórmynd Clints
Eastwood, Flags of Our Fathers.
„Ég er að smíða og dressa upp
þessar leikmyndir sem eru til stað-
ar. Þetta er nú ekki mikil smíði,“
segir Ólafur, hógværðin uppmáluð.
„Við búum til vélbyssuhreiður og
allt í kringum þau. Núna vorum við
líka að setja upp staðinn þar sem
flaggið verður reist. Það er ekki
mikil smíði heldur en einhverjir
verða að gera það.“
Að sögn Ólafs fara menn í fram-
haldinu upp á fjallið í Krísuvík þar
sem flaggið verður sett upp, breiða
risastóran dúk yfir það og setja síð-
an jarðveg yfir allt saman. Meðal
annars kom þyrla á staðinn fyrir
skömmu með moldarpoka og jukk-
ur innanborðs til að nota við leik-
myndina. Aðspurður segir Ólafur
að vélbyssuhreiðrin séu einnig
mjög einföld smíð. „Þau eru gerð
úr krossviði og timbri. Síðan er
þetta múrað og gerð steypuáferð.“
Ólafur byrjaði fyrir tveimur
árum að fást við leikmyndasmíði
að einhverju ráði. Árið 2000 kynnt-
ist hann mönnum sem komu að
gerð leikmyndar á galdrasafninu á
Ströndum, þar sem Ólafur er einn
af rekstraraðilum. Í kjölfarið
komst hann inni í kvikmyndabrans-
ann sem leiddi til þess að hann fékk
á endanum að starfa við stórmynd
Eastwood. Einnig hefur hann ný-
lokið störfum við myndina Bjólfs-
kviðu.
Ólafur, sem hóf störf við Flags
of Our Fathers fyrir fjórum vikum,
hefur í nógu að snúast þessa dag-
ana því hann er með eina eða tvær
nýjar myndir í farvatninu sem fara
í framleiðslu á næstunni. Nú er
áherslan þó á Flags of Our Fathers
og að ýmsu að hyggja þar.
freyr@frettabladid
ÓLAFUR INGIMUNDARSON Leikmyndasmiðurinn og húsasmíðameistarinn Ólafur Ingimundarson hefur í nógu að snúast um þessar
mundir vegna stórmyndarinnar Flags of Our Fathers.
TRÉSMIÐUR FRÁ HÓLMAVÍK: STARFAR VIÐ FLAGS OF OUR FATHERS
Smíðar vélbyssuhreiður
fyrir Clint Eastwood
FRÉTTIR AF FÓLKI
Í dag er vika liðin síðan grunnskólar landsins tóku til
starfa og vetrarstarf víðast hvar hafið af fullum þunga. Í
Fellaskóla eru skráðir rúmlega 400 nemendur sem ekki
hafa allir skilað sér í skólastofurnar.
„Stemningin er góð en auðvitað heyrir maður talað um
að skólaárið hefjist heldur snemma,“ segir Þorsteinn
Hjartarson skólastjóri í Fellaskóla, en þar vantar enn all-
stóran hóp nemenda í skólastofurnar.
„Hér eru ansi margir enn þá í sumarfríi og margir að
biðja um leyfi fyrir nemendur í útlöndum. Íslendingar
hafa lengi litið á júní, júlí og ágúst sem sumarleyfismán-
uði og greinilegt að þessi breyting á skólaárinu er ekki
komin alveg inn í samfélagið,“ segir Þorsteinn, en form-
legar reglur gilda um sumarleyfi nemenda þar sem for-
eldrar þurfa að sitja fund með skólastjóra þar sem for-
eldraábyrgð er útlistuð og námsefni áætlað meðan á fríi
stendur.
„Ætlast er til þess að grunnskólanemendur hefji nám á
þessum tíma og börn sem enn eru í sólarlöndum eiga í
raun að læra, enda ábyrgð á námi alfarið á höndum for-
eldra, vilji þeir undanþágu frá skólasókn,“ segir Þorsteinn
sem þó hefur skilning á aðstæðum fólks.
„Að fara til útlanda er nám í sjálfu sér, en nemendur sem
missa úr hálfan mánuð missa af töluvert miklu náms-
efni,“ segir Þorsteinn sem býður nú upp á nýtt og spenn-
andi þróunarverkefni, tengt bættri heilsu og lífsháttum.
„Nemendum er boðið upp á hafragraut í morgunmat og í
leikfimihúsinu höfum við innréttað líkamsræktaraðstöðu.
Þá verðum við með stofuleikfimi og vinnum saman að
hollum matseðli, en nemendur hafa tekið þessu vel og
yfir hundrað börn mætt í grautinn á morgnana,“ segir
Þorsteinn glaður í bragði.
Í Fellaskóla eru tíu prósent nemenda af erlendum upp-
runa og fer hlutfallið hækkandi.
„Nú eru fjörutíu prósent nemenda í fyrsta bekk af erlend-
um uppruna og tuttugu prósent í öðrum bekk. Börnin
koma frá fimmtán löndum og bætast sífellt við ný andlit;
nú frá Nepal og Búlgaríu. Úr verður ákveðin menning þar
sem nemendum þykir sjálfsagt að fólk sé mismunandi í
útliti og að hörundslit, en svona hátt hlutfall stuðlar að
meira umburðarlyndi,“ segir Þorsteinn sem viðurkennir
að starfið sé krefjandi. „En það er skemmtilegt og það
mikilvægasta sem til er.“
...fær Hörður Áskelsson, listrænn
stjórnandi Kirkjulistahátíðarinn-
ar 2005, fyrir fjölbreytta og frá-
bæra dagskrá.
HRÓSIÐ
SKÓLASTJÓRI FELLASKÓLA SEGIR LENGRA SKÓLAÁR EKKI ENN Í TAKTI VIÐ SAMFÉLAGIÐ
SÉRFRÆÐINGURINN ÞORSTEINN HJARTARSON
Hafragrautur á morgnana í bo›i Fellaskóla
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
LÁRÉTT: 1 jafningi 5 skítur 6 smáorð
7 tveir eins 8 vafi 9 samskonar 10 ryk
12 rönd 13 regla 15 skóli 16 elska 18
tuddi.
LÓÐRÉTT: 1 einskisverður 2 mynt
3 króna 4 tímabundið brjálæði 6 niður-
felling 8 málmur 11 hætta 14 greinir
17 samtök.
LAUSN
LÁRÉTT: 1Maki,5Aur, 6Að,7Rr, 8Efi,
9Eins,10Ló,12RÁK,13Agi, 15Ma,
16Unna,18Naut.
LÓÐRÉTT: 1Marklaus,2Aur, 3Kr,
4Æðiskast,6Afnám,8Eir, 11Ógn,14
Inn,17Aa.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Kerinu.
Brennisteinssýru.
Kristinn Óskar Haraldsson.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI