Fréttablaðið - 29.08.2005, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
fijó›aríflróttin
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Öldum saman var þjóðaríþrótt Ís-lendinga sú að lyfta grjóti. Úti
um allt land liggja steinhellur sem
forfeður okkar roguðust með sér til
skemmtunar. Hinir pastursminni
stunduðu flóknar rímþrautir og ortu
um veðrið og ástina undir þúsund
bragarháttum sem enginn kann skil
á til hlítar. Í hinum efnaðri byggðar-
lögum landsins þar sem til var band-
spotti gerðu menn sér dagamun að
því á stórhátíðum að fara í reiptog.
Einnig stunduðu menn glímu á
þæfðum ullarnærbuxum og lögðu
hver annan með hryggspennu og
mjaðmahnykk sem nú þyrfti há-
skólamenntaðan sjúkraþjálfa til að
lækna.
NÚ Á DÖGUM er þjóðaríþrótt Ís-
lendinga að horfa á ensku knatt-
spyrnuna sem felst í því að alþjóð-
legir auðmenn safna saman strákum
víðsvegar að úr heiminum og láta þá
sparka bolta og selja aðgang. Svo
þjóðleg er enska knattspyrnan að
leikmenn í miðlungsliði eins og
Bolton eru frá öllum heimsálfum og
af 16 mismunandi þjóðernum. Félög-
in sem keppa kenna sig við byggðar-
lög eins og Manchester United sem
er í einkaeigu amerískra feðga sem
skilja ekki af hverju leikmenn vilja
ekki nota hornaboltahúfur á vellin-
um. Chelsea sem heitir eftir borgar-
hverfi í Lundúnum er í einkaeigu
rússnesks olíufursta og knatt-
spyrnuklúbburinn í Stoke í eigu ís-
lensks sægreifa.
AÐEINS ein íþrótt er jafn undir-
lögð af peningagræðgi og enska
knattspyrnan og það er hin þjóðarí-
þrótt Íslendinga, Formúla I
kappaksturskeppnin, þar sem manni
gefst kostur á að sjá Schumacher-
bræðurna og félaga aka hring eftir
hring á malbikuðum brautum og að-
stoðarmenn þeirra keppa um hver
sé fljótastur að skipta um dekk.
SPENNANDI? Hvert mannsbarn
veit að Arsenal, Chelsea og
Manchester United munu raða sér í
efstu sætin. Svo kemur Liverpool.
Eitt hinna 10-12 liða um miðbik
deildarinnar mun koma á óvart, hin
ekki. Og eitt hinna nýju liða í deild-
inni mun falla strax aftur. Fyrir að
fylgjast með þessum ósköpum borga
íþróttaunnendur hærri upphæðir en
áður hafa verið greiddar fyrir að fá
að fylgjast með íþróttum. Af hver-
ju? Jú, þetta er sennilega skárra en
að rembast sjálfur við að lyfta
grjóti. ■