Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.09.2005, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 26.09.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 KOSNINGAR Pólverjar búsettir á Ís- landi höfðu kost á að kjósa í utan- kjörstaðakosningu í Alþjóðahúsinu vegna pólsku þingkosninganna. Af þeim rúmlega tvö þúsund Pólverj- um sem búsettir eru hérlendis höfðu 53 skráð sig á kjörskrá. Kjör- sóknin var góð, rúmlega 81 pró- sent. „Það voru ekki margir á kjörskrá núna,“ segir Katrín Guðmundsson, fulltrúi kjörstjórnar. Hún telur ástæðu þess að ekki fleiri skráðu sig meðal annars vera að ekki hafi verið nægilega kynnt fyrir fólki hvernig ætti að bera sig að við skráninguna. „Við ætlum að laga þetta fyrir pólsku forsetakosning- arnar sem verða í byrjun október.“ Kosningarnar í Alþjóðahúsinu gengu vel fyrir sig og margir Pól- verjar litu við þrátt fyrir að vera ekki á kjörskrá. Katrín segir mikil- vægt fyrir Pólverja að kjósa þó þeir séu ekki búsettir í Póllandi. „Það er borgaraleg skylda okkar,“ segir Katrín, „við eigum rétt á að sýna samstöðu við Pólverja í Póllandi og taka þátt í að móta daglega lífið þar.“ Katrín segir marga Pólverja snúa aftur til Póllands eftir nokkur ár og því mikilvægt fyrir þá að geta haft áhrif heima fyrir. - jóa / sjá síðu 4 Pólverjar búsettir á Íslandi nýta kosningarétt sinn: Pólskar kosningar í Alfljó›ahúsi don’t play this Nýja platan er komin í verslanir Skífunnar RIGNING VÍÐA UM LAND en slydda eða rigning á Vestfjörðum. Úrkomu- lítið suðvestan til. Heldur hlýnandi veður í bili. VEÐUR 4 SUNNUDAGUR 26. september 2005 - 259. tölublað – 5. árgangur Þrjú lið með fullt hús Handboltinn er kominn á fullt skrið og önnur umferð DHL- deildar karla fór fram í gær. Aðeins þrjú félög, KA, Fram og Valur, hafa unnið báða leiki sína. ÍÞRÓTTIR 20 Ónefndi maðurinn Guðmundur Andri Thorsson segir orð Styrmis Gunnarssonar í bréfi til Jónínu Benediktsdóttur um „innmúraða“ og „ófrávíkjanlega“ tryggð Jóns Steinars við „ónefndan mann“ segja meira en mörg orð um það andrúms- loft sem fylgdi stjórnar- háttum Davíðs Odds- sonar. UMRÆÐAN 16 Hrifnastur af húsi Máls og menningar HELGI BOLLASON THORODDSEN Í MIÐJU BLAÐSINS • HÚS • FASTEIGNIR ▲ Sígilt sjónvarpsgrín HÓTEL TINDASTÓLL SJÓNVARP 31 BASIL FAWLTY BIRTIST FYRIR 30 ÁRUM ▲ Hefur fulla trú á Svíanum FÉLAG FYLGJENDA DOLPH LUNDGREN FÓLK 34 VILDU TRÖLLIÐ SEM FORSETA ÍSLANDS ▲ SNJÓKARLAFRAMLEIÐSLAN HAFIN Hvítt teppi hefur lagst yfir jörðu víða á Norðurlandi, meðal annars á Akureyri. Börnin klæðast snjógöll- um og litríkum húfum eins og þessir þrír drengir á Akureyri sem hafa greinilega upplifað leiðinlegri tíma. Verksmiðjan er komin í gang, starfsfólkið er á aldrinum tveggja til sextán ára, framleiðslan er af ýmsum toga en hráefnið er snjór og aftur snjór. Hinir fullorðnu fylgjast með og láta sig dreyma um áhyggjuleysið sem fylgir því að búa til snjókarla ásamt vinum sínum. Jón Steinar sendi Styrmi gögn frá Jóni Gerald án samflykkis Jón Steinar Gunnlaugsson, lögma›ur Jóns Geralds í Baugsmálinu, sendi ritstjóra Morgunbla›sins gögn í málinu. Jón Gerald segir fla› hafa veri› án síns samflykkis. Ef svo er flá er fla› brot á si›areglum lögmanna. BAUGSMÁL Jón Steinar Gunnlaugs- son, þá hæstaréttarlögmaður, sendi Styrmi Gunnarssyni, rit- stjóra Morgunblaðsins, afrit af fjölmörgum gögnum er vörðuðu mál skjólstæðings síns, Jóns Ger- alds Sullenberger, án samþykkis eða vitundar hans. Gögnin vörð- uðu mál Jóns Geralds gegn Baugi og sendi Jón Steinar þau til Styrmis eftir að Jón Steinar hafði formlega tekið að sér mál Jóns Geralds. Í siðareglum Lögmannafélags Íslands segir að lögmaður skuli aldrei án endanlegs dóms- úrskurðar eða lagaboðs láta óvið- komandi aðilum í té gögn sem lögmaður hafi fengið um skjól- stæðing sinn nema að beiðni skjólstæðingsins. Um er að ræða tölvupósta sem innihéldu samskipti Jóns Geralds og Baugsmannanna Tryggva Jónssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og snerust um uppgjör á viðskiptum þeirra og greiðslur vegna bátsins Thee Viking. Samkvæmt tölvupóstum sem Fréttablaðið hefur undir höndum áframsendi Jón Gerald þessa tölvupósta til lögmanns síns hinn 20. júní 2002, um sex vikum áður en kæra hans gegn Baugi var lögð fram. Hinn 6. júlí áframsendi Jón Steinar tölvupóstana til ritstjóra Morgunblaðsins án nokkurra athugasemda af sinni hálfu. Jón Gerald segist aðspurður ekki kannast við að hafa veitt Jóni Steinari leyfi til að senda ritstjóra Morgunblaðsins afrit af gögnum í máli sínu, né að hann hafi vitað af því að lögmaður hans sendi gögn í málinu til þriðja aðila. „Ég treysti Jóni Steinari fullkomlega fyrir því að hann væri að vinna af heilum hug í mínu máli,“ segir Jón Gerald. Aðspurður sagðist hann ekki ætla að leita réttar síns varðandi hugsanlegt brot Jóns Steinar á trúnaði við skjólstæðing. Jón Steinar var spurður hvort það væru eðlileg vinnubrögð lög- manna að senda gögn frá umbjóð- anda sínum til þriðja aðila án vitundar eða leyfis skjólstæðings síns. „Ég hef ekki gert neitt í lög- mannsstarfi mínu fyrir Jón Gerald nema með samþykki hans eða sam- kvæmt hans óskum,“ sagði Jón Steinar. - sda / sjá síðu 2 og 10 VEÐRIÐ Í DAG Hápunktur ársins hjá djassfíklum Kenny Garrett saxófónleikari sækir landann heim og lætur til sín taka á Jazzhátíð Reykjavíkur sem verður sett í fimmtánda sinn í vikunni. MENNING 26 Himnarnir falla á Ástrík Gallvösku kapparnir Ástríkur og Stein- ríkur eru síður en svo dauðir úr öllum æðum og aðdáendur þeirra geta byrjað að telja dagana þar sem ný bók um æv- intýri þessara skæðu óvina Rómaveldis kemur út í næsta mánuði. UNGT FÓLK 26 Friðarferlið á N-Írlandi: Afvopnun IRA loki› NORÐUR-ÍRLAND, AP Vopnaeftirlits- menn munu í dag tilkynna að þeir hafi fylgt eftir afvopnun Írska lýð- veldishersins. Að afvopnun hinna samtakanna, sem hafa verið burðar- ásinn í vopnaðri baráttu norður- írskra lýðveldissinna gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi, sé sannreynd er mikill áfangi í friðar- ferlinu sem hófst fyrir tólf árum. Aðstoðarmaður John de Chast- elain, fyrrverandi hershöfðingja frá Kanada sem haft hefur yfirumsjón með eftirlitinu með eyðingu vopna- búrs IRA, sagði að hann myndi halda blaðamannafund um málið í dag, mánudag. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K ALÞJÓÐAHÚSIÐ Í GÆR Elzbieta Orlowska greiðir atkvæði í pólsku kosningunum. Anna Wojtynska, Anna Rabas og Patrycjusz Marek Kaolzikowski, fulltrúar kjörstjórnar, fylgjast með. LANGÞRÁÐUR ÁFANGI Ungur drengur hjól- ar hjá veggjakroti stuðningsmanna Írska lýðveldishersins í Belfast í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.