Fréttablaðið - 26.09.2005, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Sagan
„Endileysa“
28. sept. – 2. okt. 2005
Reykjavik Jazz Festival
Þ etta er furðuleg saga, enda heit-ir hún ENDILEYSA og gæti
hvergi hafa gerst nema í Leikfanga-
landi þar sem feðgarnir Litli og
Stóri voru leiddir fyrir rétt og
ákærðir fyrir búðahnupl í verslun-
um sem þeir reka.
FORSAGA málsins er sú að Bubbi
formaður Flokksins og kóngur í Leik-
fangalandi kemur háskælandi heim
úr vínberjaveislu í Lundúnum. Hann
segir að Litli hafi ætlað að múta sér
til að vera góður fyrir 300 rúsínur.
Margir vilja hefna foringjans. Jón
Geirharður frá Súlnabergi í Flórída
kemur heim í sumarfrí, en hann var
háseti á sexæringi sem Litli og Stóri
áttu til að veiða hafmeyjar í Kyrra-
hafinu. Súlnabergur vill finna lög-
fræðing eða handrukkara til að ná
sér niður á Litla og Stóra sem hafa
afþakkað meiri viðskipti með sólbak-
aðar hafgúur. Af tilviljun hjálpa Lóa
lipurtá leikfimikennari og fyrrum
vinkona Stóra, Stormur ritstjóri
Flokksmálgagnsins og Lukkutrölli
framkvæmdastjóri Flokksins hinum
bláókunnuga Súlnabergi að finna
staðfastan lögfræðing en enginn
handrukkari vill koma nálægt mál-
inu. Þau benda á briddsfélaga Bubba
kóngs, Jónstein lagaörn sem Bubbi
skrýðir blárri skikkju hæstaréttar-
dómara áður en næsta rúberta hefst.
MEÐ nesti og nýja skó heldur Súlna-
bergur á fund Lögreglustjórans sem
er sonur fyrrverandi ritstjóra
Flokksmálgagnsins, en Leikfanga-
land er lítið land og allir sem máli
skipta eru skyldir öllum sem skipta
máli. Lögreglustjóri sendir sína
menn til að gera innrás hjá Litla og
Stóra og setja bókhald þeirra í
pappakassa. Það tekur sex endur-
skoðendur þrjú ár að tína upp úr
kössunum. Á meðan vinnur lögreglan
nótt og dag að rannsókn málsins og
kemst að því að starfsmaður Litla og
Stóra hafi keypt garðsláttuvél í út-
löndum. Þetta lítur ekki vel út.
MÁLIÐ er lagt fyrir héraðsdóm, en
reynist ofvaxið skilningi dómaranna
sem senda málið áfram til vina og
frænda Bubba í Hæstarétti. Lög-
reglustjóri útskýrir að lögreglan hafi
ekki verið undir áhrifum við rann-
sókn málsins, enda geti áhrifamenn í
Leikfangalandi eingöngu haft áhrif á
hverjir verða embættismenn – ekki á
embættismennina sjálfa.
Og vitleysan tekur engan endi ... ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR