Fréttablaðið - 26.09.2005, Side 96

Fréttablaðið - 26.09.2005, Side 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Sagan „Endileysa“ 28. sept. – 2. okt. 2005 Reykjavik Jazz Festival Þ etta er furðuleg saga, enda heit-ir hún ENDILEYSA og gæti hvergi hafa gerst nema í Leikfanga- landi þar sem feðgarnir Litli og Stóri voru leiddir fyrir rétt og ákærðir fyrir búðahnupl í verslun- um sem þeir reka. FORSAGA málsins er sú að Bubbi formaður Flokksins og kóngur í Leik- fangalandi kemur háskælandi heim úr vínberjaveislu í Lundúnum. Hann segir að Litli hafi ætlað að múta sér til að vera góður fyrir 300 rúsínur. Margir vilja hefna foringjans. Jón Geirharður frá Súlnabergi í Flórída kemur heim í sumarfrí, en hann var háseti á sexæringi sem Litli og Stóri áttu til að veiða hafmeyjar í Kyrra- hafinu. Súlnabergur vill finna lög- fræðing eða handrukkara til að ná sér niður á Litla og Stóra sem hafa afþakkað meiri viðskipti með sólbak- aðar hafgúur. Af tilviljun hjálpa Lóa lipurtá leikfimikennari og fyrrum vinkona Stóra, Stormur ritstjóri Flokksmálgagnsins og Lukkutrölli framkvæmdastjóri Flokksins hinum bláókunnuga Súlnabergi að finna staðfastan lögfræðing en enginn handrukkari vill koma nálægt mál- inu. Þau benda á briddsfélaga Bubba kóngs, Jónstein lagaörn sem Bubbi skrýðir blárri skikkju hæstaréttar- dómara áður en næsta rúberta hefst. MEÐ nesti og nýja skó heldur Súlna- bergur á fund Lögreglustjórans sem er sonur fyrrverandi ritstjóra Flokksmálgagnsins, en Leikfanga- land er lítið land og allir sem máli skipta eru skyldir öllum sem skipta máli. Lögreglustjóri sendir sína menn til að gera innrás hjá Litla og Stóra og setja bókhald þeirra í pappakassa. Það tekur sex endur- skoðendur þrjú ár að tína upp úr kössunum. Á meðan vinnur lögreglan nótt og dag að rannsókn málsins og kemst að því að starfsmaður Litla og Stóra hafi keypt garðsláttuvél í út- löndum. Þetta lítur ekki vel út. MÁLIÐ er lagt fyrir héraðsdóm, en reynist ofvaxið skilningi dómaranna sem senda málið áfram til vina og frænda Bubba í Hæstarétti. Lög- reglustjóri útskýrir að lögreglan hafi ekki verið undir áhrifum við rann- sókn málsins, enda geti áhrifamenn í Leikfangalandi eingöngu haft áhrif á hverjir verða embættismenn – ekki á embættismennina sjálfa. Og vitleysan tekur engan endi ... ■ BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.