Fréttablaðið - 26.09.2005, Blaðsíða 88
28 26. september 2005 MÁNUDAGUR
Vá, hvernig er
þetta gert?
Námskeið
Nýjir litir, nýjar aðferðir.
Þriðjudagskvöld 27.9. kl. 20-23.
Þátttökugjald kr 1000 + keramik.
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Keramik fyrir alla
Brad vill ættleiða
börn Angelinu
Britney Spears er búin að skrifaundir samning við tímaritið OK
um að sýna því fyrst myndir af ný-
fæddu barni sínu. Söngkonan, sem
er komin heim til Malibu með son
sinn, Sean Preston, mun sitja fyrir á
fjölskyldumyndum og tala um fæð-
inguna í tímaritinu. Stjórnandi tíma-
ritsins OK sagði: „Við verðum með
Britney og barnið í þessari viku.“
Poppstjarnan á að hafa fengið
fúlgur fjár fyrir að hafa leyft viðtalið
og myndatökuna en hjónin munu
án efa eignast vænan pening á
næstu dögum við
að sýna heiminum
barn sitt og veita
viðtöl og mynda-
tökur. Þau hafa
meðal annars
fallist á að
sýna mynd-
band sem
tekið var af
fæðingu
sonarins í
raunveru-
leikaþætti
sínum,
Britney
and Kevin:
Chaotic fyrir
dágóða
summu.
Leikkonan Jodie Foster segist ekkivilja lifa því stjörnulífi sem ein-
kennir skemmtanabransann. „Það
voru 25 menn með myndavélar að
elta mig, ég þurfti að hafa lífverði
mér við hlið og fólk sem ég varla
þekkti þurfti að fara í viðtöl fyrir mig.
Svo ég fór að
hugsa með
mér að svona
þyrfti ég að
lifa lífi mínu
sem
stjarna og
ég vildi
það ekki.“
Hún sagði
líka að hún
hefði alls ekki
notið þess að
gera allar
myndirnar sín-
ar. „Það að leika er svolítið eins og
sjálfspíning. Á endanum ferðu að
hafa gaman af því af því að þú hefur
eitthvað í höndunum en þetta er
samt sem áður sársaukafullt ferli. Ég
naut mín ekki alltaf í þeim myndum
sem ég lék í þegar ég var 16,17 og
18 ára,“ segir leikkonan.
American Idol stjarnanFantasia fær að taka
þátt í tónleikaferðalagi
rapparans Kanye West
sem kallast Touch the
Sky, en meðal þeirra
sem munu einnig
koma fram eru söng-
konan Keyshia
Cole og rapparinn
Common. Þetta lít-
ur út fyrir að ætla
að vera fullpakk-
að haust hjá
söngkonunni
hæfileikaríku sem
fékk tvenn verðlaun á
Amerísku tónlistar-
verðlaunarhátíðinni,
sem besti besta kven-
kyns listamaðurinn og
bestu soul og r&b
plötu ársins, sem ber
heitið Free Yourself.
Gallvösku kapparnir Ástríkur og
Steinríkur eru síður en svo dauð-
ir úr öllum æðum og aðdáendur
þeirra geta byrjað að telja dag-
ana þar sem ný bók um ævintýri
þessara skæðu óvina Rómaveldis
kemur út í næsta mánuði. Þetta
verður 33. myndasögubókin um
þá félaga, sem komu fyrst fyrir
almenningssjónir árið 1959.
Albert Uderzo, teiknari og
annar höfunda ævintýra Ástríks,
greindi frá útkomu nýju bókar-
innar á blaðamannafundi í
Brussel í Belgíu í síðustu viku en
borgin er sem kunnugt er heimili
og varnarþing Ástríks, Tinna,
Strumpanna og Lukku-Láka.
Uderzo vildi ekki segja mikið um
innihald nýju bókarinar annað en
að hún héti Ástríkur og fallandi
himininn og væri ekki ferðasaga
eins og allar fyrri bækurnar um
Ástrík og Steinrík. Þeir sem
þekkja til Ástríks vita að hann og
félagar hans óttast ekkert meira
en að himininn falli ofan á þá
þannig að íbúar litla
þorpsins í Gallíu munu
væntanlega
þurfa að horfast í augu við
heimsendaótta sinn í þessari bók.
Teiknarinn Uderzo er orðinn
78 ára gamall en hann kynntist
höfundinum Rene Goscinny árið
1950 og saman skópu þeir per-
sónur Ástríks og Steinríks. Frá
því þeir félagar hófu samstarf
sitt hafa bækurnar um Ástrík og
Steinrík selst í 300 milljónum
eintaka um allan heim og verið
þýddar á í það minnsta 107
tungumál.
Goscinny lést árið 1977 en
Uderzo hélt áfram að teikna og
skrifa sögur um Ástrík og hefur
gert átta bækur frá því með-
höfundur hans féll frá. Sú síð-
asta, Ástríkur og leikkonan, seld-
ist í tíu milljónum eintaka.
Uderzo sagði þó á blaðamanna-
fundinum að hann vildi ekki að
aðrir tækju við
af sér. „Ég hef komist að þeirri
niðurstöðu og ég veit að Rene
Goscinny yrði mér sammála um
að þegar ég hætti muni bækurn-
ar um Ástrík ekki verða fleiri.“
Hann bætti því við að Ástríkur
gæti lifað áfram í kvikmyndum,
teiknimyndum og leikritum en
bækurnar yrðu ekki fleiri.
„Ég held að ég sé sá eini sem
get haldið þessu áfram vegna
þess að það gengur ekki upp að
aðrir séu að taka við vegna þess
að þeir munu óhjákvæmilega
fyrr eða síðar breyta þessum
persónum sem ég hef unnið svo
náið með. Ég vil ekki að lesendur
mínir verði fyrir vonbrigðum.“
Uderzo fullvissaði viðstadda
jafnframt um að þessi nýjasta
Ástríks bók yrði ekki hans síð-
asta. „Ég hef gaman að þessu
þrátt fyrir aldurinn og á meðan
ég fæ góðar hugmyndir mun ég
gera fleiri bækur.“ ■
Nýj plata með hinni kjaftforu
hljomsveit The Bloodhound Gang
kemur í verslanir í dag. Platan
heitir Hefty Fine og sver sig í ætt
við eldri verk sveitarinnar þannig
að textarnir eru ruddalegir og
yfirgengilegir, alveg eins og aðdá-
endur sveitarinnar vilja hafa þá.
Það eru fimm ár síðan sveitin gaf
síðast út breiðskífuna Hooray for
Boobies þannig að eftirvæntingin
eftir nýju plötunni er töluverð.
Sveitin troðfyllti Laugardals-
höllina sumarið 2000 á Reykjavík
Music Festival og gerði allt vit-
laust á tónleikunum með ögrandi
sviðsframkomu sinni.
Fyrsta smáskífa nýju plötunn-
ar er Foxtrot Uniform Charlie
Kilo en í kjölfarið kemur lagið
Uhn Tiss Uhn Tiss Uhn Tiss út á
smáskífu en það verður jafnframt
notað í væntanlegri auglýsinga-
herferð þýska bíltækjaframleið-
andans Blaupunkt. ■
Leikarinn Brad Pitt hefur hug á
því að ættleiða börn Angelinu
Jolie. Pitt segist hafa mikinn
áhuga á því að ganga börnunum
tveimur í föðurstað og hann er
búinn að sannfæra Jolie um að
hann muni alltaf styðja hana og
börnin hennar, sama á hverju
gengur. Brad Pitt er nýskilinn
við leikkonuna Jennifer Aniston
en skilnaðurinn gengur að fullu í
gegn í næsta mánuði. Hann hefur
staðið sig vel í föðurhlutverkinu
síðan hann kynntist Jolie og
börnum hennar. Nýlega sást til
kappans þar sem hann var að
kenna Maddox litla að hjóla.
Maddox er sagður kalla Brad
„pabba“ og þeir sem þekkja til
segja að heyrst hafi til hins
þriggja ára Maddox hrópa upp
yfir sig „Hvar er pabbi minn?“ á
meðan tökur stóðu yfir hjá
mömmunni, Angelinu Jolie. ■
BRAD OG ANGELINA Pitt virðist hafa full-
an hug á að verða fastur liður í lífi Jolie og
vill nú ganga börnum hennar í föðurstað.
FRÉTTIR AF FÓLKI
BLOODHOUND GANG
Enn jafn kjaftfor og fyrir
fimm árum.
ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR Hafa ferðast um víða veröld, lent í ýmsum ævintýrum og lamið á Rómverjum. Þrítugasta og þriðja mynda-
sögubókin um þessa kostulegu félaga kemur út í næsta mánuði.
Himnarnir falla á Ástrík
Bloodhound Gang sn‡r aftur