Fréttablaðið - 26.09.2005, Blaðsíða 20
Stigar og handrið
Teikningar og uppsetning innifalið í verði
Mex ehf.
Lyngháls 3
Árbæjarhverfi
Sími 567 1300 Gsm 848 3215
Einnig er hægt að teikna sjálfur og fá verð á:
www.timberman.dk
Sjá einnig:
www.ftf-trapper.dk
www.plan.dk
www.imex.is
Helgi Bollason Thoroddsen
arkitekt segir hús Mál og
menningar á Laugaveginum
vera eitt af hans eftirlætis-
húsum.
„Í ljósi umræðunnar um Lauga-
veginn má eiginlega segja að stein-
steypuhúsin hafi gleymst en
Laugavegurinn er ekki bara báru-
járnshús. Hús Mál og menningar
er verðugur fulltrúi steinsteypu-
húsanna við Laugaveginn en það,
var teiknað 1957 og tekið í notkun
1962“ segir Helgi Bollason
Thoroddsen, arkitekt hjá Kanon
arkitektum, þegar hann er inntur
eftir eftirlætishúsinu sínu.
„Ég á mér svo sem mörg eftir-
lætishús, en ég geng fram hjá
þessu á hverjum degi. Þar er alltaf
eitthvert líf og fólk að tala saman,“
segir Helgi. Húsið segir hann bera
sterk einkenni höfundar síns, Sig-
valda Thordarsonar, eins merkasta
arkitekts síðustu aldar. Enda einn
af frumherjunum hér á landi.
„Ég minnist þess að húsið hafi
verið kallað rúblan, þar sem sú
saga gekk að það væri byggt fyrir
rússneskt fé,“ segir Helgi og hlær
og segir margt eldra fólk þekkja
húsið undir því nafni.
„Það sem heillar mig helst við
þetta hús, er staða þess við götuna
og hvernig það tengist götunni,“
segir Helgi. Ástæðan fyrir því að
þetta hús varð fyrir valinu tengist
líklega einnig minningum sem
hann eigi þaðan sem barn.
„Andrúmsloftið var öðruvísi
þarna heldur en annars staðar, svo
er verslunarrýmið óvenju glæsi-
legt, með þessari tvöföldu lofthæð
og tengslin við gangstéttina. Hús-
inu hefur þó verið breytt, því ég
man eftir tveimur inngöngum, en
nú er búið að loka öðrum þeirra,“
segir Helgi og samþykkir að húsið
hafi elst vel.
kristineva@frettabladid.is
]
Helgi Bollason Thoroddsen við hús Máls og menningar á Laugaveginum.
Helga finnst tenging Máls og menningar
við götuna mjög heillandi.
Alltaf líf í kringum húsi›
Húsnúmer og aðrar merkingar á húsum eru mikilvægar. Það getur verið erfitt fyrir bréf-
bera að koma póstinum til skila ef hús er hvorki merkt greinilega með númeri né nöfnum
eigenda við inngang.[
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Bank! Bank!
DYRAHAMAR GETUR KOMIÐ SÉR VEL
Það getur verið mjög fallegt að skreyta útidyra-
hurðina með dyrahamri. Það er líka mjög hag-
nýtt ef dyrabjallan bilar. Þegar kalt er úti langar
fæsta til að fara úr vettlingi eða hanska til þess
að berja fast á þykka hurð. Þá getur verið gott
að nota dyrahamarinn og hlífa höndunum.