Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 10
MÆTT TIL BRIGHTON Bresku forsætisráð-
herrahjónin Cherie og Tony Blair mæta á
flokksþing Verkamannaflokksins í Brighton
á Suður-Englandi í gær. Þingið stendur yfir
til 29. september.
10 26. september 2005 MÁNUDAGUR
Og Vodafone hyggst skoða réttarstöðu sína:
Vegi› harkalega a› fyrirtækinu
Stefán Jón Hafstein:
Var trúna›ar-
samtal
BAUGSMÁL „Jónína Benediktsdóttir
ræddi þessi mál við mig á sínum
tíma og sýndi mér gögn sem ég
man ekki nákvæmlega hvers eðlis
voru. Ég sagði
henni að ég gæti
ekki tekið málið
upp á mína arma
sem stjórnmála-
maður. Ég benti á
að málið ætti
heima hjá lög-
fræðingi. Ef ég
hefði séð einhverj-
ar sannanir fyrir
saknæmu athæfi í
þessum gögnum
þá hefði ég ráðlagt það sama. Ég
leit á þetta samtal sem trúnaðar-
samtal,“ segir Stefán Jón Hafstein,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.
- saj
Sigmundur Ernir Rúnarsson:
Var ekki
gerandi
BAUGSMÁL „Til mín leitar alls konar
fólk með alls konar erindi. Ég tjái
mig ekki um innihald einkafunda.
Ég hef aldrei haft áhrif á fram-
vindu málsins og
hef aldrei verið
gerandi,“ segir
Sigmundur Ernir
Rúnarsson, frétta-
stjóri Stöðvar 2.
A ð s p u r ð u r
hvort Jónína Bene-
diktsdóttir hafi
leitað til sín vísaði
Sigmundur til
fyrra svars síns.
Sigmundur vildi
ekki svara því hvort hann hefði
vitað eitthvað sem ástæða væri til
að leyna. „Ég er búinn að svara
þessu,“ segir Sigmundur.
- saj
Ásgeir Friðgeirsson:
Jónína leita›i
til Björgólfs
BAUGSMÁL Ásgeir Friðgeirsson,
upplýsingafulltrúi Björgólfs
Guðmundssonar, formanns
bankaráðs Lands-
banka Íslands,
segir að Björgólf
reki ekki minni til
einstakra sam-
ræðna við Jónínu
Benediktsdóttur.
„Jónína hefur
margoft leitað á
náðir Björgólfs,
bæði vegna fjár-
mála sinna og
ekki síður vegna
vináttu Björgólfs og Jóhannesar
Jónssonar,“ segir Ásgeir. „Þetta á
ekki síður við um tímasetningar
einstakra samtala.“ - saj
M
YN
D
/G
ET
TY
BJÖRGÓLFUR
GUÐMUNDSSON
Man ekki innihald
einstakra samtala.
STEFÁN JÓN HAF-
STEIN Málið best
komið hjá lög-
fræðingi.
SIGMUNDUR
ERNIR RÚNARS-
SON Tjáir sig ekki
um innihald
funda.
Tímalína atburða í Baugsmálinu
8. MAÍ 2002
Jón Gerald sendir Jónínu upplýsingar á tölvupósti um hvernig mál
hans gagnvart Baugi standi.
Jónína tilkynnir Styrmi að Jón Gerald hafi fengið tilboð frá Baugs-
mönnum um að þeir greiði skuldir og kaupi hlut hans í bátnum Thee
Viking. Hún stingur upp á því við
Styrmi að Davíð Oddsson hringi í
Jón Gerald og rói hann þannig að
Jóni Gerald finnist hann ekki vera
sekur.
9. MAÍ
Jónína sendir Jóni Gerald tölvupóst þar sem hún varar hann við að
rannsókn sé að hefjast og bendir honum á mikilvægi þess að verða á
undan og biðja um aðstoð. Hún hvetur hann til þess að þiggja hjálp
Jóns Steinars.
20. MAÍ
Styrmir spyr Jónínu hvernig málið standi efnislega og hvort Jóni Ger-
ald hafi verið boðnar hærri greiðslur. Þá spyr hann hvort Jón Gerald sé
tilbúinn að tala við Jón Steinar.
28. MAÍ
Jón Gerald hringir að kvöldi í Jón Steinar, sem á bágt með að tala og
biður Jón Gerald að hringja aftur næsta dag.
20. JÚNÍ
Jón Gerald sendir málsgögn til Jóns Steinars.
MÁNAÐAMÓT JÚNÍ/JÚLÍ
Styrmir Gunnarsson, Kjartan Gunnarsson
og Jón Steinar Gunnlaugsson hittast á
ritstjóraskrifstofu Morgunblaðsins til að
ræða hæfi og hæfni lögmannsins Jóns
Steinars í tengslum við Baugsmálið.
1. JÚLÍ
Styrmir fullvissar Jónínu um að hún og Jón Gerald þurfi ekki að hafa
áhyggjur af Jóni Steinari. Tryggð hans við ónafngreindan mann sé inn-
múruð og ófrávíkjanleg.
6. JÚLÍ
Jón Steinar áframsendir gögn Jóns Geralds til Styrmis án samþykkis
eða vitundar Jóns Geralds.
24. JÚLÍ
Jónína biður Styrmir um gögn frá Jóni Gerald sem hún sendir áfram til
Snorra Olsen, tollstjóra í Reykjavík. Styrmir segist ætla að senda henni
gögnin en hún verði að taka hans nafn út. Snorri Olsen kemur gögn-
um áfram til Skattrannsóknarstjóra.
26. JÚLÍ
Styrmir lætur blaðamann Morgunblaðsins þýða gögn fyrir Jón Gerald
yfir á ensku, sendir þau til Jónínu sem á að koma þeim áfram og
biður hana að „eyða fingraförum Morgunblaðsins“ af skjalinu.
30. JÚLÍ
Styrmir talar við Jón Gerald og segist vilja hitta hann þegar hann komi
til landsins.
31. JÚLÍ
Jónína segir að Tryggvi Jónsson sé að laga til úti um allt og því sé vont
að rannsóknin geti ekki hafist strax. Spyr Styrmi hvort hann haldi ekki
að eitt skjal sé nóg og upplýsingar um hvar hin er að finna. Hún biður
Styrmi um að taka viðtal við Jón Gerald í Morgunblaðið.
Styrmir svarar og segist telja að eitt gagn nægi. Hins vegar gæti hann
trúað því að fjármálaráðherra sé að bíða eftir því að skattrannsóknar-
stjóri komi úr sumarfríi.
6. ÁGÚST
Jón Gerald og Jón Steinar hittast.
28. ÁGÚST
Efnahagsbrotadeild rannsóknarlög-
reglunnar lætur framkvæma húsleit í
höfuðstöðvum Baugs í kjölfar kæru
Jóns Geralds á hendur forsvars-
mönnum Baugs.
BAUGSMÁL Fjarskiptafyrirtækið
Og Vodafone ætlar að skoða
réttarstöðu sína í kjölfar um-
mæla Jónínu Benediktsdóttur á
Bylgjunni í gær um að fyrirtæk-
ið tengdist ólögmætri dreifingu
persónulegra gagna viðskipta-
vina. „Hún hefur með orðum
sínum vegið harkalega að fyrir-
tækinu með ómaklegum hætti,“
segir í yfirlýsingu frá Og Voda-
fone. Fyrirtækið vísar fullyrð-
ingum Jónínu alfarið á bug og
telur málið vera háalvarlegt.
Í yfirlýsingunni kemur fram
að beinn aðgangur að póstþjóni
Og Vodafone einskorðist við
mjög fáa starfsmenn og sé ein-
göngu vegna kerfisumsýslu og
viðhalds. Þessir starfsmenn hafi
allir undirritað trúnaðaryfirlýs-
ingu. „Í raun er ekki einungis
um að ræða ásakanir á hendur
eigendum Og Vodafone heldur
ennfremur því starfsfólki sem
starfar hjá fyrirtækinu,“ segir í
yfirlýsingunni.
Viðbragða Jónínu Benedikts-
dóttur var leitað í gærkvöldi en
hún kaus að slíta samtalinu áður
en hægt var að bera málið undir
hana. - saj
ÁRNI PÉTUR JÓNSSON Forstjóri Og
Vodafone telur að ráðist sé að fyrir-
tækinu með ómaklegum hætti.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Sá gögn á
tölvuskjá
BAUGSMÁL „Eins og áður hefur
komið fram bauð Jónína til matar á
heimili sínu. Hún ræddi þar um
Baug og ýmsa
stjórnunarhætti
innan fyrirtækis-
ins. Okkur voru
sýnd einhver gögn
á tölvuskjá. Ég var
ekki í neinni að-
stöðu til þess að
meta málið eins og
því var lýst og
benti á að það
þyrfti að hafa sína
réttu boðleið,“ segir Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar. - saj
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
Ekki í aðstöðu til
að meta málið.