Fréttablaðið - 26.09.2005, Page 16
Á sama tíma og bændur og búalið á norðan- og austanverðu
landinu hafa nú um helgina verið að smala fé sínu og bjarga
undan snjó stendur þjóðin á öndinni yfir framvindunni í Baugs-
málinu svokallaða. Ef Fréttablaðið hefði ekki birt ný gögn í
málinu á laugardag snerist umræðan áreiðanlega um snemm-
búið hausthret á landinu kalda.
Það má kannski heimfæra þetta hausthret líka upp á ýmsa þá
sem nú hafa birst sjónum manna í Baugsmálinu með skyndi-
legum hætti, og hvaða afleiðingar þetta kann að hafa í þjóð-
málunum. Það hlýtur að hafa farið kuldahrollur um marga
þegar Fréttablaðið birti stöðugt nýjar upplýsingar um málið um
helgina. Athygli manna hefur óneitanlega beinst að valda-
mönnum innan Sjálfstæðisflokksins og hver þeirra hlutur er í
málinu. Þetta gerist á sama tíma og Davíð Oddsson er að hverfa
úr ríkisstjórn og síðar að yfirgefa forystuhlutverk sitt í Sjálf-
stæðisflokknum. Hann hefur oft átt sælli daga sem ráðamaður
í íslenskum stjórnmálum en einmitt nú – daginn áður en hann
hverfur úr ráðherraembætti.
Þessi atburðarás hlýtur líka að vera samstarfsflokknum –
Framsóknarflokknum – áhyggjuefni, og voru þó áhyggjurnar á
þeim bæ nægar fyrir. Það skyldi því engan undra þótt sumir í
þeim flokki væru farnir að hugsa sér til hreyfings, ekki síst
vegna sífellt lakari stöðu hans í skoðanakönnunum.
Í þessu hausthreti er ábyrgð fjölmiðla mikil eins og
endranær. Hlutverk þeirra er að upplýsa og fræða almenning,
segja frá öllum hliðum mála, svo lesendur, hlustendur og áhorf-
endur þeirra geti myndað sér sjálfstæða skoðun á því sem fram
fer í þjóðfélaginu. En það er líka mikil ábyrgð sem fylgir því
fyrir fjölmiðla að þegja yfir ákveðnum hlutum sem þeir vita
um. Slíkt getur aðeins átt við í einstaka tilfellum, en fyrir því
verða að vera sterk rök, sem varða þjóðarhagsmuni eða
öryggishagsmuni viðkomdi ríkis. Þögn fjölmiðla um það sem
efst er á baugi í þjóðfélaginu er hins vegar erfitt að verja.
Þessir köldu haustdagar verða mörgum áreiðanlega minnis-
stæðir og örlagaríkir – bændum og búaliði á norðanverðu landinu
vegna óvæntrar snjókomu og þeirra erfiðleika sem henni fylgir
fyrir fé og menn, en í höfuðstöðvum stjórnkerfisins og víðar
hljóta menn að hafa áhyggjur af framtíðinni. Davíð Oddsson
utanríkisráðherra hefði áreiðanlega viljað að örlagadísirnar
hefðu spilað eitthvert annað lag fyrir þjóðina nú um helgina en
það sem hljómað hefur í flestöllum fjölmiðlum, þegar hann er að
yfirgefa Stjórnarráðið. Hann hefði verið mörgum minnisstæðari
sem stjórnmálaforingi ef hann hefði stigið fyrr af valdastóli og
ekki þurft að sitja uppi með ýmislegt það sem komið hefur í ljós
varðandi gjörðir nánustu samstarfsmanna hans.
Beðið eftir ráðherra?
Samkvæmt frétt hér í blaðinu í gær
sendi Styrmir Gunn-
arsson, ritstjóri
Morgunblaðsins,
Jónínu Benedikts-
dóttur tölvupóst
sumarið 2002 þar
sem komist er svo að
orði um tafir á því
að skattrannsókn
hefjist á málum
Baugs: „Hugsan-
lega er [Skúli
Eggert Þórðar-
son] skattrann-
sóknarstjóri að
bíða eftir því
að [Geir H.
Haarde] fjármálaráðherra komi úr sum-
arfríi. Veit það ekki. Held þó að það sé
alveg ljóst að eitthvað hljóti að fara að
gerast...“
Þarfnast skýringa
Sagt er að fáir menn þekki betur þræði
valda og áhrifa í íslensku þjóðfélagi en
Styrmir Gunnarsson. Það er líka haft á
orði að enginn kunni betur en hann að
hagnýta sér þá. Þess vegna staldra
menn við orðalag sem hann notar í
tölvupóstunum sem gerðir hafa verið
opinberir. Hvernig í ósköpunum stend-
ur á því að Styrmir telur að skattrann-
sóknarstjóri sé að bíða með rannsókn í
hugsanlegu skattsvikamáli vegna þess
að hann þurfi að heyra í fjármálaráð-
herra sem er í sumarfríi? Hugmyndin
virðist fráleit. Ef þessir tveir embættis-
menn stæðu í slíkum samtölum væri
það augljóslega lögbrot. Styrmir þarf
að skýra af hverju í ósköpunum hann
lætur sér detta þetta í hug.
„Ónefndi maðurinn“
Jónína Benediktsdóttir staðfesti í út-
varpsfréttum í gær að Davíð sá föður-
nafnlausi, sem nefndur er í einum
tölvupósta hennar um Baugsmálið,
væri Davíð Oddsson, fyrrverandi for-
sætisráðherra. Nú á bara eftir að fá
staðfest að Davíð sé líka hinn dularfulli
„ónefndi maður“ í tölvupóstunum og
persónan sem ritstjóri Morgunblaðsins
segir að eigi „innmúraða og ófrávíkjan-
lega“ tryggð Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar umfram nafngreinda skjólstæð-
inga lögmannsins.
Það vakti nokkra athygli þegar
Davíð Oddsson sagði á fundi hjá
sagnfræðingum um upplýsinga-
skyldu stjórnvalda að hann notaði
ekki tölvupóst. Nú skiljum við
hvers vegna. Hann virðist líka hafa
bannað erindrekum sínum að
nefna sig á nafn í tölvupóstsam-
skiptum sínum öðruvísi en sem
„ónefndan mann“. Orð Styrmis
Gunnarssonar í bréfi til Jónínu
Benediktsdóttur um „innmúraða“
og „ófrávíkjanlega“ tryggð Jóns
Steinars við „ónefndan mann“
segja meira en mörg orð um það
andrúmsloft sem fylgdi stjórnar-
háttum Davíðs Oddssonar – undir-
lægjuháttinn og þrælsóttann sem
lýsir sér í því að nefna „HANN“
ekki á nafn, leynimakkið og sam-
særishugsunarháttinn sem allt
þetta óhugnanlega múratal sýnir.
En það hlýtur að vera áhyggju-
efni fyrir Og Vodafone, sem hýst
hefur tölvupóst Jónínu Benedikts-
dóttur, að hann skuli koma fyrir al-
menningssjónir með þessum hætti
– þetta eru augljós trúnaðargögn
og þjófnaður á þeim er langt hand-
an alls þess sem siðlegt getur
talist. Maður hálf veigrar sér við
því að leggja út af upplýsingum
sem komnar eru fram af því að
gramsað hefur verið í einkahirsl-
um borgaranna, og þannig verið
gróflega brotið á þeim. Agndofa
fylgist maður með þessum feikn-
um öllum þar sem fólk skirrist ekki
við að grípa til ótrúlegra meðala;
enn sem fyrr er megineinkenni
þessa máls einhver botnlaus gagn-
kvæm heift sem satt að segja er
erfitt fyrir okkur hin að lifa okkur
algjörlega inn í, nema sem áhorf-
endur að sápuóperu.
Hins vegar getur maður ekki
látið eins og ekkert sé. Það er ekki
rétt sem hirðmenn „ónefnds
manns“ halda fram, að þessar upp-
lýsingar breyti engu um kjarna
Baugsmálsins. Við höfum nú miklu
betri hugmynd um tildrög þess og
upphaf – tvær manneskjur í hefnd-
arhug gagnvart Baugsfeðgum snúa
sér með klögumál sín til ýmissa
valdamikilla aðilja í þjóðfélaginu,
sem flestir sýna samúð og skilning,
nema Styrmir: hann stekkur á
þetta. Og setur málið í gang:
Styrmir verður einn helsti gerand-
inn í málinu.
Starfsvið: eitt af því sem vekur at-
hygli manns við að lesa greinar-
gerð Styrmis Gunnarssonar í
Mogganum í gær varðar einmitt
hugmyndir ritstjórans um starf-
svið sitt. Hann virðist telja það
eðlilegan hluta af starfi sínu að
stússa fram og til baka í mála-
rekstri fyrir Jónínu Benediktsdótt-
ur og sækja leynifundi með helstu
trúnaðarmönnum „ónefnds manns“
í þeim erindrekstri en hins vegar
telur hann blaðið ekki eðlilegan
vettvang fyrir þessar upplýsingar.
Með öðrum orðum, ritstjóri
Morgunblaðsins fær upplýsingar í
hendur og notar þær upplýsingar –
en ekki í þágu lesenda blaðsins eða
blaðsins sjálfs, heldur í þágu
þeirra valdamanna sem þá þegar
áttu í útistöðum við það fyrirtæki
sem upplýsingarnar vörðuðu.
Morgunblaðið er mikið öndvegis-
blað á köflum – en hér virðist
manni sjást óvenju skýrt hvernig
það er nánast í gíslingu stjórnmála-
afla sem standa þróun þess fyrir
þrifum.
Hallgrímur Geirsson, formaður
stjórnar Árvakurs, talaði í hádegis-
fréttum Talstöðvarinnar í gær á
þann veg að fyrirgreiðsla Styrmis
við Jón Gerald og Jónínu snerist
eiginlega um hálfgerða félags-
málaþjónustu sem skilja mátti að
blaðið starfrækti alla daga: þetta
hafi verið fátækt og þurfandi fólk
og nánast allir þeir sem erfiði og
þunga séu hlaðnir geti komið til
Morgunblaðsins og fengið aðstoð
blaðsins – á kostnað blaðsins – og
Styrmir sé þarna nokkurs konar
yfirfélagsráðgjafi. Fleira í þessu
máli er ámóta fjarstæðukenndur
örvæntingarspuni: Þeir Styrmir
Gunnarsson og Kjartan Gunnars-
son hafa reynt að telja okkur trú
um að þeir hafi átt fund með Jóni
Steinari Gunnlaugssyni um
mánaðamótin júní/júlí til að fjalla
um „hæfi“ og „hæfni“ Jóns Stein-
ars til að reka erindi Jóns Geralds
Sullenberger, þrátt fyrir að Jón
Steinar hafi talað við Jón Gerald í
maí. Það er hálf undarlegt að setja
sér slíkan fund fyrir sjónir:
Styrmir: Kjartan, mig langar að
vita hvort þér finnist Jón Steinar
ekki vera afar hæfur lögfræðingur.
Kjartan: Að minni hyggju ert þú
Jón Steinar afburða lögfræðingur.
Styrmir: Ég tek undir þetta,
Kjartan, ég tel að reynsla mín og
Morgunblaðsins bendi til að þú Jón
Steinar sért framúrskarandi lög-
fræðingur.
Jón Steinar: Já, ég tel að ég sé
mjög hæfur lögfræðingur, tryggð
mín er ófrjávíkjanleg og innmúr-
uð.
Og svo framvegis: af hverju var
Jón Steinar í starfsviðtali hjá þeim
Styrmi og Kjartani í máli sem hann
var þegar byrjaður að vinna að?
Það er fyrir neðan virðingu þess-
ara manna að bjóða okkur upp á
slíka vitleysu. Og nóg komið af
slíku fjarstæðutali sem hefur
tíðkast í málinu allar götur frá því
að Davíð Oddsson kastaði Stóru
Bollunni með hinni fráleitu mútuá-
sökun sinni.
26. september 2005 MÁNUDAGUR
SJÓNARMIÐ
KÁRI JÓNASSON
Nýjar upplýsingar Fréttablaðsins í Baugsmálinu
hafa valdið kuldahrolli hjá mörgum.
Snemmbúi›
hausthret
FRÁ DEGI TIL DAGS
fiessi atbur›arás hl‡tur líka a› vera samstarfsflokknum – Fram-
sóknarflokknum – áhyggjuefni, og voru fló áhyggjurnar á fleim
bæ nægar fyrir. fia› skyldi flví engan undra flótt sumir í fleim
flokki væru farnir a› hugsa sér til hreyfings, ekki síst vegna sífellt
lakari stö›u hans í sko›anakönnunum.
Í DAG
BAUGSMÁLIÐ
GUÐMUNDUR
ANDRI
THORSSON
Or› Styrmis Gunnarssonar í
bréfi til Jónínu Benediktsdóttur
um „innmúra›a“ og „ófrávíkj-
anlega“ trygg› Jóns Steinars
vi› „ónefndan mann“ segja
meira en mörg or› um fla›
andrúmsloft sem fylgdi stjórn-
arháttum Daví›s Oddssonar.
www.icelandfi lmfestival.is
MasterCard kynnir:
„Mundi það drepa þetta lið
að halda þetta að sumri til?“
- jökull ii
20% afsláttur af 10 mynda pössum til MasterCard korthafa.
Sjá www.kreditkort.is
40 MYNDIR Á 3 VIKUM
HVERT FER JÖKULL II?
OKTÓBERBÍÓFEST
Í Háskólabíói og Regnboga 26. október - 14. nóvember 2005
Ónefndur ma›ur og hir›menn hans
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI:
Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550
5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprent-
smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum
verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871