Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 18

Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 18
Níutíu ár eru síðan minnis- varði af Kristjáni níunda Danakonungi var afhjúpað- ur á norðanverðum stjórn- arráðsblettinum á afmælis- degi Kristjáns konungs tí- unda sem varð 45 ára þann 26. september árið 1915. Þegar konungur andaðist í janúar árið 1906 skrifuðu íslensku blöðin einkar hlý- lega um hann enda var hann á þeim tíma afar vinsæll meðal Íslendinga. Hann þótti hafa sýnt Íslandi mikinn vinarhug enda var hann eini konungurinn sem sótt hafði landið heim. Segja má að heimsókn hans hér á þúsund ára afmælis- hátíðinni árið 1874 hafi verið upphaf þjóðhylli hans en allir hrifust af ljúf- mennsku hans, góðvild og yfirlætisleysi. Efnt var til sorgar- athafna víða um land þegar konungur dó. Þá héldu nokkrir menn í Reykjavík fund með sér til þess að ræða um hvað best væri að gera til að halda uppi minn- ingu Kristjáns konungs og varð niðurstaðan sú að reisa honum minnisvarða og var nefnd kosin til þess að standa fyrir samskotum. Þessi hugmynd lagðist misvel í fólk enda fór á sama tíma fram söfnun vegna sjóslysa en 68 menn létust þegar þrjú skip fór- ust úti fyrir landinu. Nokk- ur umræða varð um að hætta við söfnunina en að lokum var fundin leið sem ekki spillti fyrir samskotum vegna sjóslysanna. Ástsældir Kristjáns reyndust það miklar að þrátt fyrir andmæli safnað- ist talsvert fé víða, til dæm- is úr Vesturheimi, sem reyndist nægilegt til að gera minnisvarðann. Hins vegar dróst málið nokkuð af ýmsum ástæðum. Til dæmis var sett upp stytta af Jóni Sigurðssyni við stjórnarráð- ið árið 1911 auk þess sem verið var að safna fyrir styttum Jónasar Hallgríms- sonar og Ingólfs Arnarson- ar á sama tíma. Einar Jónsson mynd- höggvari var fenginn til þess að gera myndastyttuna en hann gerði bæði styttuna af Jóni Sigurðssyni og Ingólfi Arnarsyni. Styttan var úr eir og sett á stein- varða. Konungur er í að- mírálsbúningi, berhöfðaður og heldur á hattinum í vinstri hendi en með hægri hendi réttir hann fram skjal sem á að tákna stjórnar- skrána 1874. Þetta átti að minna á orðin í kvæði Matthíasar Jochumssonar „Með frelsisskrá í föður- hendi“. Mikill mannfjöldi var samankominn allt í kringum stjórnarráðsblettin þegar afhjúpunin fór fram. Lúðra- flokkur lék þjóðsönginn og Klemens Jónsson landritari hélt ræðu þar sem fram kom að þrátt fyrir vinsæld- ir kóngsins hefði aðal- ástæða þessa minnisvarða verið sú að hann hefði lagt grundvöllinn undir sjálf- stæði Íslendinga og frelsi. Geir Zoega kaupmaður svipti hjúpnum af líknesk- inu og lúðrar léku lagið Kong Christian stod ved höjen mast, meðan danskt varðskip skaut nokkrum fallbyssuskotum á höfninni. Heimild: Stjórnarráð Ís- lands 1904-1964, annað bindi eftir Agnar Klemens Jónsson. 18 26. september 2005 MÁNUDAGUR MILES DAVIS (1926-1991) lést þennan dag. Lagði grundvöllinn að sjálfstæði okkar og frelsi MINNISVARÐI AF KRISTJÁNI KONUNGI NÍUNDA AFHJÚPAÐUR FYRIR 90 ÁRUM „Ekki hræðast mistök, þau eru ekki til.“ Miles Davis var bandarískur trompetleikari og djasstónlistarmaður sem þótti hafa mikil áhrif á tónlistarþróun tuttugustu aldar. timamot@frettabladid.is SÝNDI ÍSLANDI VINARHUG Kristján níundi var vinsæll meðal Íslendinga og þegar hann lést árið 1906 var efnt til sorgarathafna víða um land. Á þessum degi árið 1960 áttust bandarísku forsetaframbjóðend- urnir John F. Kennedy og Richard Nixon við í einum frægustu sjón- varpskappræðum allra tíma. Þetta var í fyrsta sinn sem forsetafram- bjóðendur mættust í sjónvarps- kappræðum í Bandaríkjunum en þeim var einnig útvarpað. Þetta voru fyrstu kappræðurnar af fjór- um og tekist var á um innanlands- mál. Sjónvarp var nýjung á þessum tíma og fæstir stjórnmálamenn höfðu leitt hugann að því hvernig þeir gætu nýtt það sér í vil. Kenn- edy var einn af þeim fáu sem höfðu gert það. Þegar hann mætti í sjónvarpið var hann nýkominn af framboðsfundum í Kaliforníu og var sólbrúnn og hraustlegur. Nixon var á hinn bóginn nýrisinn úr rekkju eftir að hafa legið á spítala um nokkurra vikna skeið vegna hnémeiðsla. Hann var horaður og fölur og þvertók fyrir að láta farða sig fyrir sjónvarpið. Yfirgnæfandi meirihluti sjónvarpsáhorfenda taldi að Kennedy hefði borið sigur úr býtum en þeim sem hlýddu á kappræðurnar í útvarpi fannst vera mjótt á mununum. Lengi var það viðtekin skoðun að sjónvarpskappræðurnar hefðu valdið straumhvörfum í kosninga- baráttunni og Kennedy átt sigur sinn þeim að þakka. Það er senni- lega ofmat, en ljóst er að Kennedy átti vinsældir sínar sannarlega sjónvarpi að einhverju leyti að þakka. NIXON OG KENNEDY Í 4. KAPPRÆÐUNUM ÞETTA GERÐIST > 26. SEPTEMBER 1960 MERKISATBURÐIR 1580 Francis Drake lýkur hring- ferð sinni um hnöttinn. 1942 Bifreiðaeinkasala ríkisins er lögð niður. 1965 Fyrsti bandaríski hermað- urinn lætur lífið í Víetnam. 1957 Söngleikurinn West Side Story eftir Leonard Bern- stein er frumfluttur í London. 1970 Fokker Friendship-flugvél frá Flugfélagi Íslands hf. ferst á Mykinesi í Færeyj- um. Átta manns létust, þar af einn Íslendingur. 1973 Concorde-þota flýgur í fyrsta sinn yfir Atlantshafið á mettíma. 1984 Ákveðið er að Bretar muni afhenda Kínverjum Hong Kong árið 1997. Kennedy og Nixon mætast í sjónvarpi Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›ar- farir í smáletursdálkinn hér a› ofan má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Innilegar þakkir og kveðjur til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigríðar Gunnarsdóttur Dalbraut 27, áður Bogahlíð 10, Reykjavík. Sérstaklega er þökkuð umhyggja og vinátta starfsfólks og heimilisfólks á Dalbraut 27. Þórunn Nanna Ragnarsdóttir Jóhann Hólmgrímsson Ingunn Ragnarsdóttir Már Óskar Óskarsson Gunnar Ragnarsson Ásthildur Ágústsdóttir Heiðar Ragnarsson Sigrún Guðjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir afi og langafi, Jón J. Waagfjörð Frá Garðhúsum Vestmannaeyjum, Holtsbúð 16 Garðabæ, sem lést laugardaginn 17. september, verður jarðsung- inn frá Vídalínskirkju í Garðabæ, miðvikudaginn 28. september, klukkan 11.00. Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð Már V. Jónsson Halldór Waagfjörð Ásta Þorvaldsdóttir Kristinn Waagfjörð Hjördís Sigmundsdóttir Grímur Rúnar Waagfjörð Helga Gunnarsdóttir Þorsteinn Waagfjörð Sigrún Logadóttir Rósa María Waagfjörð Hreiðar H. Hreiðarsson barnabörn og barnabarnabörn www.steinsmidjan.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma 550 5000. AFMÆLI Reynir Jónasson harmonikkuleik- ari er 73 ára. Hermóður Sigurðsson setjari er 60 ára. Hann tekur á móti gest- um í Kiwanishúsinu við Engjateig á klukkan 18 til 20. Ásgerður Júníusdóttir söngkona er 37 ára. Ólafur Jó- hann Ólafsson rithöf- undur er 43 ára. Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona er 33 ára. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI ANDLÁT Guðrún Jóna Þórðardóttir, Stigahlíð 28, Reykjavík, lést föstu- daginn 16 september. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Gyða Steinsdóttir frá Flatey lést föstudaginn 23. september. Lilja Gréta Þórarinsdóttir lést fimmtudaginn 22. september. JAR‹ARFARIR 13.00 Bálför Geirlaugs Magnús- sonar skálds verður í Foss- vogskapellu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.