Fréttablaðið - 26.09.2005, Page 22

Fréttablaðið - 26.09.2005, Page 22
26. september 2005 MÁNUDAGUR El ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Á til eða get útvegað næstum því hvað sem er í Old Country Roses. Skipasund 82, 104 Reykjavík – s. 552 6255 www.ammaruth.is • Opið virka daga 14-18 Reykjanesbæ Þú verður bara líka… Sturtuklefar og baðker í úrvali! Ótrúleg verð!!!! Símaþjónusta frá 10-19: 899-4567 Öll viðgerða/varahluta og uppsetningaþjónusta fyrir hendi www.sturta.is allan sólarhringinn! Fossaleyni 8 · 112 Reykjavík Sími 577 2050 · www.formaco.is Gluggar 10 ára ábyrgð 534 1300 w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s Útsýni með stíl Vandað, einfalt og ódýrt Hafðu samband og við komum heim til þín 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 4 Harðgerar haustplöntur setja flottan svip á garðinn og gam- an er að skipta um gróður í beðum og kerjum þegar sumarblómin eru komin á fallanda fót. Garðyrkjustöðvar eru farnar að flytja inn plöntur sérstaklega fyrir haustið. Þær duga fram að jólum eða jafnvel lengur ef ís- lenski veturinn gefur einhver grið og tíðin er góð. Lára Jóns- dóttir, garðyrkjufræðingur í Blómavali, segir haustlyng af ýmsum tegundum mikið tekið á þessum árstíma og nefnir þar hinar vinsælu erikur en einnig kaluna sem er fíngerðara og skyldara íslenska beitilynginu. „Fólk setur lyngið gjarnan í mold úti við, annað hvort í beð eða ker enda halda plönturnar þá betur rakanum og endast lengur, segir hún. Silfurkambur fer vel með lynginu og endist líka vel og svo eru sígrænar plöntur sem heita hebe sem Lára mælir með til að fá fallega litasamsetningu. Þær eru til í ýmsum afbrigðum og sumar þeirra líkjast íslensku sortulyngi. Lára segir svöl gróðurhús vera þeirra eftirlæti en skjólgóðir pall- ar, svalir og vel varnin garðshorn eru líka ákjósanlegir staðir. Svo er skrautkálið harðduglegt en Lára leggur þó áherslu á að viss- ara sé að verja allar þessar haust- plöntur fyrir norðangarranum ef mögulegt sé. Rautt og hvítt fer vel saman. Líka rautt og grænt. Því er fallegt að sjá rauða möl uppi við hvíta veggi og innan um grænan gróður. Ýmsir húseigendur velja það að fá sér rauðamöl í innkeyrsluna í stað þeirrar gömlu gráu, hellna eða malbiks. Rauðamöl er hægt að fá á ýmsum stöðum á landinu en óvíða er hún litsterkari en á Seyðishólum í Grímsnesi. Mölin þar vekur sannarlega athygli veg- farenda þegar þeir aka þar um. Einn þeirra sem hefur aðgang að rauðamölsnámu í Seyðishólum er Jón Ingileifsson, bóndi á Svína- vatni. Hann malar mölina niður í nokkra stærðarflokka og selur hana gegn vægu verði. Ekki lætur hann þar við sitja heldur keyrir hana til viðskiptavina ef um er beðið, að minnsta kosti ef um er að ræða kaupanda á Suður- og Vesturlandi. Lynginu og skrautkálinu lyndir vel saman. Hebe er vinsæl haustplanta. Hún þrífst ágætlega á skjólgóðum stað og fer vel við rautt og grátt lyngið. Sýpristrén í bakgrunninum eru líka seig. Rautt lyng og kál lífga upp á haustið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Endast fram á veturinn Eldrau› möl í innkeyrsluna Blómaker og gróður nýtur sín vel í rauða- mölinni. Möl frá Jóni á Seyðishólum bregður fyrir í borginni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL LI Jón bóndi með tæki og tól í rauðamalar- námunni í Seyðishólum í Grímsnesi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.