Fréttablaðið - 26.09.2005, Qupperneq 24
Sakleysislegur krani getur farið
að sprauta úr sér vatni þeg-
ar minnst varir og þá er
gott að hafa réttu verk-
færin við höndina.
Kortenstál er ryðgað efni sem
í vaxandi mæli er notað í
klæðningar utan á hús.
Breytingar og nýjungar á klæð-
ingum húsa gerast ekki hratt, en
þær gerast þó. Nútíma húsastíll
hefur kallað á áherslubreytingar
í efnisvali og verða hrá efni eins
og steypa og stál oft fyrir valinu.
Eitt það efni sem hefur notið
aukinna vinsælda upp á síðskast-
ið er svokallað kortenstál, sem
eru ryðgaðar veðrunarplötur.
„Plöturnar ryðga upp að vissu
marki, svo hættir það,“ segir
Ólafur Bergmann, sölufulltrúi
hjá Sindra stál sem selur
kortenstál. Hann segir þessar
plötur eiga að standast veður og
vinda, og þær eigi að duga lengi.
„Menn nota þetta mikið, til að
forðast allt viðhald,“ segir Ólaf-
ur. Hann segir efnið hafa verið
til lengi og oftast verið notað í
reykháfa þar sem það er mjög
hitaþolið. Auk þess sé það oft
notað í listaverk. „Það má segja
að það sé nýjung að nota það sem
klæðningu utan á hús og síðustu
eitt til tvö ár hafa vinsældir þess
aukist,“ segir Ólafur og
bætir við
að sömu sögu sé að segja af beru
stáli.
„Kortenstál hentar vel á hús
þar sem menn vilja ekki standa í
því að mála eða gera neitt, því
viðhald á því er ekkert,“ segir
Ólafur. kristineva@frettabladid.is
Allt um heilsu
á þriðjudögum
í Fréttablaðinu.
Allt sem þú þarft
og meira til
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
P
RE
2
80
49
04
/2
00
5
6 26. september 2005 MÁNUDAGUR
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VITA HVAR
VERKFÆRIN ERU EF NEYÐAR-
ÁSTAND SKELLUR Á.
Allt í einu fer rafmagnið, ofninn fer
að leka eða húsgögnin gefa sig. Það
er aldrei að vita hvenær neyðin kall-
ar inni á heimilinu og þá er gott að
hafa verkfærin við hendina. Nauð-
synlegt er að hafa nokkra hluti inn-
an seilingar á vísum stað svo hægt
sé að grípa til þeirra á ögurstundu.
Geymdu nokkur grunnverkfæri í
skúffu í eldhúsinu þar sem þú ert
enga stund að finna þau þegar í
nauðirnar rekur. Ekki gleyma að
ganga svo frá þeim aftur á sinn stað.
Eftirfarandi verkfæri ættu að vera í
skúffunni:
VERKFÆRASKÚFFAN
skrúfjárn
töng
límband
vasaljós
rafhlöður
málband
Algerlega vi›haldsfrítt
Verkfæri í nauðum
Þetta hús stendur í Grafarvoginum og er alklætt kortenstáli.
Víkurskóli er klæddur kortenstáli að hluta, og hér má sjá heilan vegg sem er klæddur
stálinu.
Hér sést í hliðina á stórri kortenstálplötu
sem þekur hluta Víkurskóla.
Hér sést húsið að neðan og hvernig
steypa hefur verið notuð í bland við
kortenstálið.