Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 84

Fréttablaðið - 26.09.2005, Síða 84
Í Texas ríkir hættuástand. Fellibylurinn ógurlegi ryð- ur sér braut og eirir engu. Fólk tekur saman sínar allra nauðsynleg- ustu föggur og flýr eins og fæt- ur toga. Íslenska sendiráðið í Washington gætir hagsmuna ís- lenskra ríkisborgara og leggur nótt við dag til að útvega þeim til- skilin brottfararleyfi og rútu- miða frá hættusvæðinu og á ör- uggan stað. Allir reyna að komast undan. Það er hreinlega enginn eftir í Houston í Texas. Nema kannski íslenski sjónvarpsfréttamaður- inn sem færði okkur einmitt þær fréttir alvarlegur í bragði í fyrrakvöld. Og hinn íslenski fréttamaðurinn sem flytur frétt- ir fyrir hina sjónvarpsstöðina. Alþjóðlegar fréttastöðvar nást prýðilega hér á Íslandi og þær eru með sína fréttamenn á staðnum. Hvað hefur íslenskur fréttamaður til málanna að leggja? Sök sér ef hann kynni skyndihjálp eða regndansa eða hefði einhverja þá kunnáttu til að bera sem bægði fellibylnum frá. En ég skil ekki að bæði ís- lenska ríkið og íslenskt einka- fyrirtæki skuli þurfa að senda fréttamenn og tæknimenn og förðunarfræðing og skriftu eða hvað þarf nú annars marga til að standa að einni svona útsend- ingu af tómum götunum í Hús- túni. Hvað geta þeir mögulega grafið upp fréttnæmt sem stóru fréttastöðvarnar verða ekki búnar að segja frá langt á undan þeim? Er kannski bara svo óskaplega gaman að vera í lífs- hættu á launum að það er ekki hægt að neita ungum og metnað- argjörnum fréttamönnum um slíkt tækifæri? Eða eru íslensk- ir fréttamenn í lífshættu í Texas bara af því að fréttamenn frá öðrum löndum eru þar líka í lífs- hættu? Finnst kannski öllum bara svona gaman í fellibyl? 24 26. september 2005 MÁNUDAGUR STUÐ MILLI STRÍÐA BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR ÓTTAST UM ÖRLÖG ÍSLENDINGA Í TEXAS. Fjör í fellibyl M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Misþyrmdi manni með trékylfu 18 ára piltur þarf að borga skaðabætur Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli 4 2 9 1 3 9 3 2 8 3 6 4 9 8 1 5 7 1 7 8 2 7 6 5 3 7 2 6 8 5 2 9 3 5 9 6 4 ■ SUDOKU DAGSINS Fylltu út í reitina þannig að hver lína, hver dálkur og hver 3x3 kassi rúmi allar tölurnar á bilinu 1 til 9. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar sinnum í sömu línu, sama dálki eða sama 3x3 kassa. Engin stærðfræðikunnátta er nauðsynleg þó leikið sé með tölum. Þrautin er leyst með rökhugsun og útsjónarsemi. Lausnir, ráðleggingar og upplýsingar eru á www.sudoku.com. Lausn þrautarinnar birtist á sama stað í blað- inu á morgun. 7 5 3 2 8 4 6 1 9 8 9 2 3 1 6 7 5 4 1 4 6 7 5 9 8 3 2 5 8 9 1 6 3 4 2 7 4 2 1 8 9 7 5 6 3 6 3 7 5 4 2 1 9 8 3 6 4 9 7 1 2 8 5 9 1 8 4 2 5 3 7 6 2 7 5 6 3 8 9 4 1 Lausn á gátu gærdagsins Frábært, hann á að mæta í vinnuna en „Village People“ og „Bad Boys“ geta fengið hann til að sofna ei- lífðarsvefninum. Og þá erum við að tala um réttlætanleg forföll! Settu á play! Palli, í 117. skipti, viltu gjöra svo vel að.... Já, já, mamma! Ég skal gera það! Þú þarft ekki að segja þetta við mig svona oft, ha! Það er mjög pirrandi, niður- lægjand og al- gjörlega yfir- þyrmandi. Fínt, gerðu það þá bara!! Gera hvað? Núna er ég búin að gleyma því. Amerískur rauðbrystingur Ég get horft á þau klukkustundum saman. Úff! Ahhh! Jæja, þarna er hann... *Andvarp!* Jább. Hann kallar svo sannarlega fram minningar. Jahá! En jæja, aftur í raunveru- leikann. Sumir fá nostalgíutil- finningu við að horfa á gamlar myndir.. ..við skoðum hins vegar hreina blettinn á teppinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.