Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 2
2 29. september 2005 FIMMTUDAGUR Landspítalinn er yfirfullur og mikið álag er á starfsfólki: Sjúklingar fluttir á Akranes HEILBRIGÐI „Það er mjög erfitt ástand um þessar mundir því við stjórnum ekki aðstreymi sjúk- linga,“ segir Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskóla- sjúkrahúss. „Bæði er verið að taka á móti bráðveiku fólki en líka fólki sem hefur verið á biðlistum. Þetta er háannatími og það leiðir til þess að spítalinn er yfirfullur og rúmlega það.“ Spítalinn hefur verið að leita til annarra sjúkrastofnana á höf- uðborgarsvæðinu og í nágrenn- inu, og einhver dæmi eru um að sjúklingar séu fluttir á Akranes. Anna Stefánsdóttir hjúkrunar- forstjóri segir undanfarna viku hafa verið toppinn á ísjakanum eftir annasaman septembermán- uð. Hún segir enga augljósa ástæðu vera fyrir miklum veik- indum undanfarið og telur að þetta sé ekki haustflensa. „Við höfum þó reyndar á tilfinning- unni að mönnunarekla á hjúkrun- arheimilum í haust hafi hugsan- lega áhrif,“ segir Anna, en fyrir vikið hafi ekki verið hægt að út- skrifa jafnmarga. Það sé þó að- eins hluti vandans. - grs Fundað um framtíð Reykjavíkurflugvallar: Samrá› vi› landsbygg›ina SVEITASTJÓRNARMÁL Stýrihópur um framtíðarskiplag í Vatnsmýrinni hefur uppi áform um að halda kynningarfundi á Ísafirði, Akur- eyri og Egilstöðum um hugsanleg- an flutning Reykjavíkurflug- vallar. Stefnt er að því að kynna málið fyrir notendum utan höfuð- borgarsvæðisins. Fundina stend- ur til að halda í lok október. „Það á að reyna að velta upp mörgum flötum málsins og veita svör við þeim spurningum sem kunna að koma upp,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi. Dagur segir það brýnt að borg- aryfirvöld geti útskýrt sjónarmið sín milliliðalaust. „Það þarf að ná þessu máli upp úr skotgröfunum,“ segir Dagur. Stýrihópurinn hefur hafið samstarf við umhverfis- ráðuneytið um undirbúning fund- anna. Dagur segir að stefnt sé að því að á þessum fundum verði þeir fulltrúar yfirvalda sem geti svarað spurningum sem eðlilegt sé að komi upp hjá þeim sem nýta sér flugvöllinn. Dagur telur að vaxandi skilningur sé fyrir því að breytinga sé að vænta. - saj BAUGSMÁL Jónína Benediktsdóttir átti fund um Jón Gerald og Baug með ráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, Valgerði Sverrisdótt- ur, þremur vikum áður en Davíð Oddsson fundaði með Hreini Loftssyni, stjórnarformann Baugs, í London. Fundur Valgerðar og Jónínu var 4. janúar 2002 en Hreinn og Davíð funduðu 26. janúar sama ár. Hreinn hefur haldið því fram að á þeim fundi hafi Davíð Oddsson nafngreint Jón „Gerhard“ og fyr- irtækið Nordica sem ætti í vafasömum viðskiptum við Baug. Davíð hefur æ síðan neitað því að hafa haft vitneskju um Jón Gerald á þessum tíma. Strax eftir heimkomuna frá London lýsti Hreinn því fyrir stjórnarmönnum í Baugi að á fundi sínum með Davíð í London hefði forsætisráðherra lýst því að spilling ætti sér stað hjá feðgun- um Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og Jóhannesi Jónssyni, stjórnarmanni fyrir- tækisins. Í því samhengi nefndi Davíð, að sögn Hreins, fyrirtækið Nordica og forráðamann þess Jón „Gerhard“. Þegar fjölmiðlar skýrðu fyrst frá fundi Hreins og Davíðs, rúmu ári eftir fundinn, sagðist Davíð ekki hafa heyrt minnst á Jón Ger- ald Sullenberger fyrr en í tengsl- um við lögreglurannsóknina á Baugi. Hreinn varaði aðra stjórnend- ur Baugs við því strax eftir fund- inn með Davíð í London að þess væri að vænta að lögregla eða yf- irvöld samkeppnismála eða skattamála myndu eitthvað aðhaf- ast gagnvart fyrirtækinu á næst- unni. Á stjórnarfundi í Baugi í febrúar í fyrra lýstu stjórnar- menn miklum áhyggjum sínum vegna andúðar forsætisráðherra á Baugi. Stjórnarmenn ræddu málið í þaula og þar kom fram hjá Þorgeiri Baldurssyni, stjórnar- manni og formanni fjáröflunar- nefndar Sjálfstæðisflokksins, að „valdamiklir aðilar í viðskiptalíf- inu hefðu miklar áhyggjur“ vegna forsætisráðherra. Þar var fært til bókar að fyrirtækið Nordica hefði verið tengt Baugi. Aðspurð sagðist Valgerður Sverrisdóttir ekki hafa skýrt Davíð Oddssyni frá fundi sínum og Jónínu. Hún staðfesti að hafa átt þennan fund með Jónínu en sagðist ekki hafa rætt þennan fund efnislega við nokkurn ráð- herra. sda@frettabladid.is Þórhallur Gunnarsson: Flytur sig yfir á Torgi› FJÖLMIÐLAR Þórhallur Gunnarsson hefur flutt sig frá Stöð 2, þar sem hann hefur séð um þáttinn Ísland í dag, yfir til Ríkissjónvarpsins. Þar á bæ verður Þór- hallur ritstjóri nýs dægurmála- þáttar sem hefur nú vinnuheitið Torgið í stað Op- ins húss og verður á dagskrá í kjölfar kvöldfrétta. Þórhallur fyllir þarna skarð Loga Bergmanns Eiðs- sonar sem í fyrradag hætti hjá Rík- issjónvarpinu og gekk til liðs við Stöð 2. - saj Vaxtaákvörðun Seðlabankans: Spá› mikilli hækkun EFNAHAGSMÁL Bæði greiningardeild KB banka og Landsbankans spá því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína um hálft prósent í dag þegar Peningamál verða gefin út. Stýri- vextir Seðlabankans munu þá fara í tíu prósent og hafa þá tvöfaldast frá því að vaxtahækkunarferlið hófst í maí í fyrra. Verði af hækkun munu bankar líklega fylgja í kjölfarið og hækka vexti á inn- og útlánum sínum. Sérfræðingar rökstyðja vaxta- hækkun með því að vaxandi ótti sé við aukna verðbólgu og þenslu í samfélaginu. Meiri hækkun en sem nemur hálfu prósenti mun að öllum líkindum styrkja gengi krónunnar en minni hækkun verka öfugt. - eþa ÞÓRIR GUÐMUNDSSON Yfirgefur Rauða krossinn og fer til Stöðvar 2. Þórir Guðmundsson: N‡r vara- fréttastjóri FJÖLMIÐLAR Þórir Guðmundsson var í gær ráðinn varafréttastjóri Stöðvar 2. Hann mun stýra gæða- og þróunarstarfi á fréttastofunni auk þess að flytja erlendar fréttir. Undanfarin sex ár hefur Þórir starfað sem yfirmaður útbreiðslu- sviðs Rauða kross Íslands. Hann mun gegna því starfi þar til í októ- ber en starfa á Stöð 2 samhliða því. Þórir mun starfa við hlið Þórs Jónssonar varafréttastjóra. Þórir var meðal fyrstu starfsmanna Stöðvar 2 þegar hún hóf starf- semi. - saj STURLA BÖÐVARSSON SAMGÖNGURÁÐ- HERRA Segir viðurlög vera hörð við því að brjóta gegn friðhelgi einkalífsins. Samgönguráðherra: Vill sérstök vi›brög› BAUGSMÁL Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra hefur skipað Póst- og fjarskiptastofnun að bregðast sérstaklega við vegna frétta í Fréttablaðinu sem byggja á skjöl- um sem blaðið hefur komist yfir. Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með fjarskiptafyrirtækj- um og starfsmönnum þeirra. Í bréfi til stofnunarinnar segir Sturla að tölvupóstur og önnur gögn um einkamálefni fólks njóti ríkrar verndar í stjórnarskrá og fjarskiptalögum. Hann segir við- urlögin hörð. - saj SPURNING DAGSINS Valgeir, er Spilverki› gerandi í Baugsmálinu? „Nei, en það er fagnaðarefni að jafn músíkalskur maður og Tryggvi Jónsson skuli vitna í gott kvæði eftir Þorstein Valdimarsson við lag eftir sjálfan mig.“ Valgeir Guðjónsson lék á gítar og söng í Spilverki þjóðanna en í meintu hótunarbréfi til Jón Geralds Sullenberger vitnaði Tryggvi Jónsson, fyrrum for- stjóri Baugs, í texta úr lagi Spilverksins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ANNA KRISTINSDÓTTIR, DAGUR B. EGGERTSSON OG HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR Stýrihópur um málefni Vatnsmýrarinnar áætlar að kynna málið á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR VIÐSKIPTARÁÐHERRA Staðfestir að hún hafi átt fund um mál Jóns Geralds Sullenberger með Jónínu Benediksdóttur 4. janúar 2002. Rá›herra vissi af Jóni Gerald í janúar 2002 Jónína Benediktsdóttir funda›i me› vi›skiptará›herra um mál Jóns Geralds og Baugs flremur vikum á›ur en Daví› Oddsson funda›i me› Hreini Loftssyni um máli› í London. Hreinn hefur sagt a› Daví› hafi flá nefnt Jón „Gerhard”. JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR Ræddi mál Jóns Geralds við viðskiptaráðherra þremur vikum áður en Davíð Oddsson og Hreinn Loftsson ræddu um Baug í London. LANDSPÍTALINN Miklar annir hafa verið þar síðasta mánuðinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SVEITARSTJÓRNARMÁL BÆJARSTJÓRN HAFNARFJARÐAR VILL SAMEININGU Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir stuðn- ingi sínum við sameiningu Hafn- arfjarðar og Vatnsleysustrandar- hrepps í kosningum 8. október. Þá hvetur bæjarstjórnin íbúa í Hafnarfirði til að kynna sér vel þær upplýsingar sem liggja fyrir og jafnframt að taka þátt í kosn- ingunum. Í skýrslu ráðgjafafyrir- tækisins ParX um áhrif samein- ingar segir að fjölmargir þættir bendi til þess að sameining þess- ara sveitarfélaga sé góður kostur fyrir íbúa beggja sveitarfélag- anna. ÞÓRHALLUR GUNNARSSON Nýr ritstjóri Torgsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.