Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 53
37 Fjórir af fimm bestu leikmönnum Íslandsmótsins koma frá FH Allan Borgvardt er besti leikma›ur Landsbankadeildar karla ári› 2005 a› mati íflróttafréttamanna Frétta- bla›sins. Íslandsmeistarar FH eiga fjóra af fimm bestu leikmönnum sumarsins. FÓTBOLTI Daninn Allan Borgvardt fór hreinlega á kostum með FH í sumar. Skoraði 13 mörk í 15 leikj- um og lagði upp 6 önnur. Hann fiskaði þar að auki víti sem skilaði marki. Frábært sumar og viðeig- andi endir á glæstum ferli hans hjá FH. Rétt á eftir Allan í ein- kunnagjöf Fréttablaðsins komu félagar hans í FH, Auðun Helga- son og Tryggvi Guðmundsson, og fjórði FH-ingurinn, Guðmundur Sævarsson, er svo í fimmta sæti. Fréttablaðið heyrði í þjálfara FH, Ólafi Jóhannessyni, og bað hann um gefa álit sitt á þessum læri- sveinum sínum. Besti framherji landsins „Allir þessir strákar áttu frábært sumar með FH. Allan var besti framherji landsins í sumar og ég hef margoft sagt að hann sé frá- bær fótboltamaður. Hann er þar að auki einstaklega góður félagi og féll mjög vel inn í okkar hóp. Hann er kærulaus og þægileg týpa. Lífið er ekki flókið hjá hon- um og það er heldur enginn hroki í honum,“ sagði Ólafur, sem þarf að fylla skarð Allans í vetur enda er hann farinn til Noregs. Komu ekki heim til að deyja Þeir Auðun og Tryggvi komu báð- ir úr atvinnumennsku fyrir tíma- bilið og mörgum knattspyrnu- manninum hefur reynst það þrautin þyngri að spila á ný hér á landi eftir að hafa verið í atvinnu- mennsku til margra ára. Það vandamál glímdu Auðun og Tryggvi ekki við enda með haus- inn á réttum stað. „Margir þessara atvinnu- manna hafa komið heim til að deyja og fyrsta árið er oft erfitt. Þess vegna ræddi ég þetta við strákana fyrir mótið og gerði þeim grein fyrir þessu. Þeir fóru báðir beint í vinnu og héldu sér á jörðinni. Voru með rétt hugarfar og þess vegna tókst þeim svona vel upp í sumar. Auðun er mikill leiðtogi og Tryggvi er frábær knattspyrnumaður og stór- skemmtilegur fýr. Ég vil meina að þetta sé besta endurkoma at- vinnumanna í íslenska boltann á ný. Báðir komust þeir líka í lands- liðið, sem segir ýmislegt,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH. henry@frettabladid.is FÓTBOLTI Fréttablaðið var með einkunnagjöf í fyrsta sinn í sum- ar og var öllum leikmönnum leikjanna 90 gefin einkunn á bil- inu 1 til 10. Yfirburðir FH-inga á Íslandsmótinu kristölluðust einnig í einkunnagjöf blaðsins en það voru hins vegar Fylkir og Þróttur sem léku betur en árang- ur liðanna gaf til um ef marka má frammistöðumat Fréttablaðs- ins. FH-ingar léku liða best í júní (6,66) og ágúst (6,30) auk þess að vera í öðru sæti bæði í maí (6,19) og júlí (6,13). Þeir slökuðu á í lok mótsins og voru aðeins í 5. sæti yfir frammistöðuna í lokaum- ferðum mótsins. FH-liðið lék líka liða best bæði á heimavelli (6,20) sem og útivelli (6,41) og sömu sögu var að segja þegar skoðuð er spilamennska liðanna eftir fyrri (6,45) eða seinni umferð (6,16). Valsmenn voru í 2. sæti á bæði heima- og útivelli líkt og í fyrri umferðnni en góð spila- mennska Skagamanna seinni hluta sumarsins kom þeim í 2. sætið yfir bestu frammistöðu leikmanna liða í seinni umferð. Góð byrjun Vals Valsmenn byrjuðu mótið af feiknakrafti og léku best sam- vkæmt einkunnagjöfinni í bæði maí (6,56) og júlí (6,32) auk þess að vera í öðru sætinu á eftir FH- ingum í júnímánuði. Þeir gáfu hins vegar mikið eftir og fengu fæst stig allra liða í deildinni síð- ustu fimm vikur Íslandsmótsins. Þróttarar áttu ekki að falla ef marka má frammistöðumat íþróttafréttamanna Fréttablaðs- ins en samkvæmt einkunnagjöf- unni voru Þróttarar í 7. sætinu en ekki því síðasta. Þar sitja hins vegar Eyjamenn sem björguðu sér frá falli á markatölu en stóðu sig verst allra liðanna tíu sam- kvæmt einkunnagjöf Frétta- blaðsins. Eyjamenn voru upp og niður í sumar. Þeir voru langlélegasta liðið í maí (4,70) samkvæmt ein- kunnagjöfunni en voru hins veg- ar komnir upp í 2. sætið í ágúst- mánuði en stigin sjö sem Eyja- menn nældu sér í næstsíðasta mánuði tímabilsins áttu mestan þátt í því að liðið bjargaði sér frá falli. ooj@frettabladid.is FIMMTUDAGUR 29. september 2005 Fjalar Þorgeirsson Grétar Sigfinnur Sigurðsson Gunnlaugur Jónsson Auðun Helgason Guðmundur Sævarsson Tryggvi Guðmundsson Allan Borgvardt Sinisa Valdimar Kekic Baldur Ingimar Aðalsteinsson Ásgeir Gunnar Ásgeirsson Guðmundur Benediktsson Lið ársins í Landsbankadeild karla sumarið 2005: Fimm FH-ingar í li›inu FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH eiga fimm fulltrúa í liði ársins hjá íþróttafréttamönnum Fréttablaðs- ins. Spútniklið Vals kemur einnig sterkt inn með þrjá fulltrúa. Liðinu er stillt upp í leikkerf- inu 4-4-2 með svokallaðri dem- antaútfærslu þar sem hinn fjöl- hæfi Sinisa Valdimar Kekic leysir stöðu varnarsinnaðs miðjumanns á meðan Valsarinn Guðmundur Benediktsson er framliggjandi miðjumaður sem styður við fram- herjana úr FH, Tryggva Guð- mundsson og Allan Borgvardt, sem áttu frábært tímabil með FH. Þeir röðuðu inn mörkum allt sumarið og Allan var valinn besti leikmaður mótsins hjá Fréttablaðinu en Tryggvi fékk gullskóinn sem hann gulltryggði sér með frægri þrennu í 18. umferð Íslandsmótsins. Botnlið Þróttar á einn fulltrúa sem er markvörðurinn Fjalar Þor- geirsson en hann átti frábært sumar og var fjórði besti leikmað- ur Íslandsmótsins samkvæmt ein- kunnagjöf íþróttafréttamanna blaðsins. Skagamenn eiga að lok- um einn fulltrúa í fyrirliða sínum, Gunnlaugi Jónssyni. Grétar Sigfinnur Sigurðsson leysir stöðu bakvörðs í liðinu og Baldur og Ásgeir þétta síðan miðjuna. ÞJÁLFARATAL Ólafur Jóhannesson og Leifur Garðarsson náðu frábærum árangri með FH-liðið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Meðaleinkunn liða í einkunnagjöf Fréttablaðsins: FH-ingar léku allra li›a best MEÐALEINKUNN LEIK- MANNA: Allan Borgvardt 7,07 (15 leikir) Auðun Helgason 6,89 (18) Tryggvi Guðmundsson 6,88 (17) Fjalar Þorgeirsson 6,83 (18) Guðmundur Sævarsson 6,72 (18) BESTA MEÐALEINKUNN LIÐA: 1. FH 6,35 2. Valur 6,10 3. Fylkir 5,84 4. ÍA 5,77 5. Keflavík 5,64 6. KR 5,54 7. Þróttur 5,46 8. Grindavík 5,43 9. Fram 5,42 10. ÍBV 5,35 BESTU LEIKMENN EIN- STAKRA LIÐA: FH Allan Borgvardt 7,07 Auðun Helgason 6,89 Tryggvi Guðmundsson 6,88 Guðmundur Sævarsson 6,72 Freyr Bjarnason 6,39 Valur Grétar Sigfinnur Sigurðsson 6,56 Guðmundur Benediktsson 6,39 Bjarni Ólafur Eiríksson 6,39 Atli Sveinn Þórarinsson 6,35 Baldur Ingimar Aðalsteinsson 6,29 ÍA Gunnlaugur Jónsson 6,59 Reynir Leósson 6,35 Igor Pesic 6,27 Pálmi Haraldsson 6,00 Bjarki Guðmundsson 6,00 Keflavík Jónas Guðni Sævarsson 6,22 Hólmar Örn Rúnarsson 6,17 Baldur Sigurðsson 5,89 Guðmundur Steinarsson 5,78 Hörður Sveinsson 5,59 Fylkir Valur Fannar Gíslason 6,38 Björgólfur Takefusa 6,33 Helgi Valur Daníelsson 6,28 Bjarni Þórður Halldórsson 6,28 Viktor Bjarki Arnarson 6,19 KR Ágúst Þór Gylfason 6,17 Kristján Finnbogi Finnbogason 6,06 Grétar Ólafur Hjartarson 5,94 Sigurvin Ólafsson 5,92 Sigmundur Kristjánsson 5,64 Grindavík Sinisa Valdimar Kekic 6,43 Óli Stefán Flóventsson 5,88 Boban Savic 5,83 Óskar Örn Hauksson 5,78 Robert Niestroj 5,56 ÍBV Birkir Kristinsson 6,50 Ian Jeffs 6,00 Atli Jóhannsson 5,76 Páll Hjarðar 5,56 Bjarni Hólm Aðalsteinsson 5,36 Fram Andri Fannar Ottósson 5,93 Gunnar Sigurðsson 5,78 Hans Mathiesen 5,76 Gunnar Þór Gunnarsson 5,72 Þórhallur Dan Jóhannsson 5,50 Þróttur Fjalar Þorgeirsson 6,83 Páll Einarsson 6,00 Halldór Arnar Hilmisson 5,89 Jens Elvar Sævarsson 5,80 Ingvi Sveinsson 5,43 BESTU OG VERSTU LIÐIN Í MAÍ: 1. Valur 6,56 2. FH 6,19 –––––––––––- 9. Þróttur 5,17 10. ÍBV 4,70 BESTU OG VERSTU LIÐIN Í JÚNÍ: 1. FH 6,66 2. Valur 6,31 –––––––––––- 9. ÍBV 5,28 10. Fram 5,27 BESTU OG VERSTU LIÐIN Í JÚLÍ: 1. Valur 6,32 2. FH 6,13 –––––––––––- 9. KR 5,06 10. Grindavík 5,04 BESTU OG VERSTU LIÐIN Í ÁGÚST: 1. FH 6,30 2. ÍBV 5,96 –––––––––––- 9. Þróttur 5,24 10. Grindavík 4,97 BESTU OG VERSTU LIÐIN Í SEPTEMBER: 1. Fylkir 6,33 2. ÍA 5,96 –––––––––––- 9. Keflavík 4,96 10. Fram 4,50 ÍSLANDSMEISTARAR FH-ingar voru mjög áberandi meðal efstu manna í einkunnagjöf Fréttablaðsins enda unnu þeir yfirburðasigur í Landsbankadeild karla í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.