Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 46
Umsjón: nánar á visir.is
No Name maðurinn
Það að yfirgefa völl stjórnmálanna gefur mönnum
frelsi til athafna. Ekki þykir til dæmis tilhlýðilegt að
stjórnmálamenn leggi einstökum fyrirtækjum lið
en ekki öðrum eða beri á þau sérstakt lof umfram
önnur. Ónefndi maðurinn í tölvupóstsbréfum rist-
jóra Morgunblaðsins hefur orðið að nokkrum
kaffistofubröndurum síðustu dagana. Það
að þekkt fyrirtæki sækist eftir þekktu fólki
til að auglýsa vörur sínar varð einhverjum
gárunganum að þeirri kenningu að nú
myndi fyrirsætuferill Davíðs Oddssonar
taka flug, því flogið hefði fyrir að snyrti-
vörufyrirtæki sæktist eftir starfskröftum
hans. Snyrtivörulínan sem kynna átti
samkvæmt þessari kenningu var að sjálf-
sögðu No Name.
Á svörtum lista
Sænska ferðaskrfstofan Ticket áætlar að
tapa 30 milljónum íslenskra króna vegna
greiðslustöðvunar fugfélagsins Swe Fly.
Viðbrögð ferðaskrifstofunnar eru þau
að setja nokkur flugfélög á svartan
lista. Þannig mun greiðslustöðvunin
verða til þess að einungis félög með
traustan fjárhag verða í viðskiptum við
ferðaskrifstofuna. Nokkur félög
munu þurfa að gjalda fyrir
þessa ákvörðun. Meðal þeirra
félaga sem nefnd eru í frétt
Dagens Industri af málinu
er Fly Me sem Burðarás á
hlut í. Delta og Northwest
lentu einnig á þessum
svarta lista, en Nort-
hwest slapp af list-
anum eftir að eig-
endurnir, Air
France og KLM,
lögðu fram trygg-
ingar.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.582 Fjöldi viðskipta: 223
Velta: 4.397 milljónir
+0,38%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
> Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt
skiptingu Burðaráss milli Landsbank-
ans og Straums fjárfestingarbanka.
Burðarás verður á morgun afskráð úr
hlutafélagaskrá.
> KB banki seldi 5 milljón hluti í
Mosaic Fashion í gær. Þurfti bankinn
að flagga í Kauphöllinni þar sem eign-
arhlutur hans í Mosaic fór niður fyrir 10
prósent eftir viðskiptin.
> Meðalheimili borgar um 120 þúsund
krónur í vexti á ári vegna yfirdráttar,
segir í morgunfréttum Íslandsbanka. Í
lok ágúst hafi hvert heimili að meðaltali
skuldað 600 þúsund krónur í yfirdrátt.
> Finnar er sú þjóð sem þykir skara
mest framúr hvað varðar samkeppnis-
hæfni. Bandaríkjamenn eru í öðru sæti
og Svíar í því þriðja.
30 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Peningaskápurinn
Actavis 40,90 -0,70% ...
Bakkavör 43,40 -0,20% ... Burðarás 17,90 +0,00% ... FL Group
14,70 +0,00% ... Flaga 3,60 -1,40% ... HB Grandi 9,20 +0,00% ...
Íslandsbanki 14,90 -0,30% ... Jarðboranir 20,60 -0,90% ... KB
banki 588,00 -0,50% ... Kögun 56,00 +3,51% ... Landsbankinn
22,00 +0,00% ... Marel 66,50 +0,00% ... SÍF 4,60 -3,60% ...
Straumur 13,65 -0,70% ... Össur 85,50 +0,00%
Síminn +3,09%
Kögun +3,51%
SÍF -3,56%
Jarðboranir -1,91%
Og fjarskipti -1,88%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Hagnaður SÍF langt undir
væntingum vegna hás af-
urðaverðs. Hlutabréf fé-
lagsins lækka.
„Við mátum það svo að það væri
ekki tilefni til afkomuviðvörunar,
annars hefðum við að sjálfsögðu
sent slíka,“ segir Kristinn Alberts-
son, fjármálastjóri SÍF, þegar hann
var spurður um hvort fyrirtækið
hefði átt að senda afkomuviðvörun
til Kauphallar Íslands eftir að það
birti afkomutölur fyrir annan árs-
fjórðung, sem voru langt undir
væntingum markaðsaðila.
Eftir ágætan fyrsta ársfjórð-
ung skilaði SÍF 33 þúsunda evra
hagnaði á öðrum ársfjórðungi sem
jafngildir 2,5 milljónum króna.
Hagnaður á öðrum ársfjórðungi
er einnig undir rekstraráætlunum
félagsins sem voru birtar fyrr á ár-
inu sem gerðu ráð fyrir að full-
vinnsluhluti SÍF myndi skila rekst-
arhagnaði (EBITDA) upp á 7,1
milljón evrur fyrir annan fjórðung
en varð 1,3 milljónir evra.
Nokkur lækkun varð á verði
hlutabréfa SÍF á markaði í gær.
Bjarki Logason, hjá greiningu
Landsbankans, telur að SÍF hefði
átt að senda frá sér afkomuvið-
vörun. Breyting afurðaverðs hafi
haft miklu meiri áhrif en hann átti
von á. „Í ljósi þeirra afkomuspáa
sem komu fram um ársfjórðung-
inn og þeirra væntinga sem þær
skapa er ekki spurning í mínum
huga að félagið hefði átt að gefa
út afkomuviðvörun. Ljóst er að af-
koman var miklu verri en menn
áttu almennt von á en talsvert tap
varð af hefðbundnum rekstri fé-
lagsins, það er ef litið er fram hjá
söluhagnaði.“
Valdimar Halldórsson, hjá
greiningu Íslandsbanka, segir að
afkoman á fjórðungnum hafi ver-
ið mun lakari en í fyrra.
„EBITDA-framlegðin var bara 1,1
prósent af veltu samanborið við
sjö prósent á sama tíma í fyrra.
Okkar spá var 6,5 prósent. Áhrif
þessara verðhækkana á laxi voru
mun meiri en við gerðum ráð fyr-
ir í okkar spá,“ segir hann.
„Við sáum að það voru blikur á
lofti með hráefnisverð vegna til-
komu innflutningstolla frá Evr-
ópusambandinu, sem nú hafa ver-
ið afnumdir, og bentum markaðn-
um á það við kynningu á þriggja
mánaða uppgjöri. Ég tel að við
höfum gert það nokkuð rækilega
og litum ekki á það sem sérstaka
afkomuviðvörun. Við gerðum
grein fyrir því að það yrðu sveifl-
ur og teljum að þetta séu tíma-
bundnar breytingar sem muni
ekki hafa langvarandi áhrif,“ seg-
ir Kristinn.
Hann segir að SÍF hafi tvívegis
hækkað sín verð og sé nú að skoða
hvort þurfi að hækka verð enn
frekar. „Við sjáum árangur af
þessum aðgerðum í september en
að mestu leyti á komandi mánuð-
um.“ eggert@frettabladid.is
EKKERT TILEFNI TIL AFKOMUVIÐVÖRUNAR Hagnaður SÍF á öðrum ársfjórðungi var
langt undir væntingum markaðarins en kenna má háu afurðaverði þar um. Ekki þótti til-
efni til að gefa út afkomuviðvörun.
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
!
"
%"
" &' ''
(
#
) "
! "# $ %&'% %( "#) !%* "# + , &
-../ % # % & # &0 #"# * Forstjóri Mosaic segir
annan ársfjórðung fram-
úrskarandi í rekstri fé-
lagsins og áætlanir ársins
muni standast.
Breska tískukeðjan Mosaic hagn-
aðist um ríflega 300 milljónir
króna á fyrri árshelmingi rekstr-
arárs félagsins. Á tímabilinu féll
til töluverður kostnaður vegna
kaupa á Karen Millen og Whistles
auk kostnaðar vegna endurfjár-
mögnunar og hlutafjárútboðs. Að
þeim kostnaði frátöldum nam
hagnaðurinn rúmum milljarði á
tímabilinu. Innan félagsins eru
einnig tískukeðjurnar Oasis og
Coast.
Velta félagsins jókst um
sautján prósent á fyrri árshelm-
ingi og um nítján prósent á öðrum
ársfjórðungi, þótt rekstrar-
umhverfi hafi verið óhagstætt í
smásölu í Bretlandi á tímabilinu.
Forstjóri félagsins Derek
Lovelock segir niðurstöðuna
gleðilega og ánægjulegt að geta
birt svo góða niðurstöðu í fyrstu
árshlutaskýrslu sem skráð ís-
lenskt fyrirtæki. Hann segir að
uppbygging á öðrum ársfjórðungi
hafi verið ör. Á fyrri helmingi árs-
ins hafi verið opnaðar 43 búðir
þar af 33 með samstarfsaðilum í
Kína. Meðal þeirra var fyrsta búð-
in í Peking. Stefnt er að áfram-
haldandi skriðþunga í fjölgun
verslana og meðal annars gert ráð
fyrir að flaggskipsbúð Karen
Millen verði opnuð á Regent
Street í miðborg Lundúna á árinu.
Hann segir þriðja ársfjórðung
hafa farið vel af stað og áætlar að
veltuaukning ársins í heild verði
átján prósent og hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði verði
59 milljón pund eða ríflega 6,5
milljarðar króna. - hh
Söluaukning hjá Mosaic
Ísland er í sjöunda sæti yfir sam-
keppnishæfi þjóða í nýrri
skýrslu Alþjóðlegu efnhags-
stofnunarinnar, WEF. Sam-
kvæmt skilgreiningu WEF telst
samkeppnishæfi vera geta þjóða
til að ná viðvarandi vexti í þjóð-
artekjum fyrir hvern íbúa lands-
ins. Annars vegar er lagt er mat
á forsendur framtíðarhagvaxtar
næstu 5-8 ár fram í tímann og
hins vegar er kannaður núver-
andi grundvöllur verðmætasköp-
unar.
Ísland var fyrst með í þessum
samanburði árið 1995 og var þá í
25. sæti en á síðasta ári var Ís-
land í 10. sæti. Ísland hefur ekki
áður náð jafn hátt og nú.
- hb
Ísland í sjöunda sæti
Vöruskiptajöfnuður við útlönd
var óhagstæður um tæplega 11,8
milljarða króna í ágústmánuði. Í
sama mánuði í fyrra var vöru-
skiptajöfnuður óhagstæður um
rúmlega 5,8 milljarða króna. Á
fyrstu átta mánuðum ársins hafa
verið fluttar út vörur fyrir 126,1
milljarð króna en inn til landsins
fyrir 185,3 milljarða. Halli á vöru-
skiptum við útlönd nemur nú um
59,2 milljörðum króna. Á fyrstu
átta mánuðum síðasta árs var
vöruskiptajöfnuður við útlönd
óhagstæður um 24,8 milljarða
króna og munar því 34,4 milljörð-
um á milli ára.
Sjávarafurðir voru 59 prósent
alls útflutnings á fyrstu átta mán-
uðum ársins og iðnaðarvörur 34
prósent.
Vöruskipti í ágúst óhag-
stæ› um 11,8 milljar›a
Ágúst Ágúst
2004 2005
Útflutningur alls 12.637 14.190
Innflutningur alls 18.469 25.943
Vöruskiptajöfnuður -5.832 -11.753
* Milljarðar króna á gengi ársins 2005
Spár og niðurstaða um hagnað SÍF á
öðrum ársfjórðungi – í milljónum evra
Íslandsbanki 6,7
KB banki 6,0
Landsbanki 5,8
Meðaltal 6,2
Niðurstaða 0,033
VETRARTÍSKAN Gert er ráð fyrir að áfram
verði góður vöxtur í rekstri tískukeðjunnar
Mosaic. Hér má sjá dæmi um það sem
verður í búðum Oasis í vetrarbyrjun.
Engin afkomuviðvörun SÍF
Bur›arás afskrá›ur á morgun
Samkeppniseftirlitið telur ekki
tilefni til að aðhafast neitt vegna
skiptingar Burðaráss á milli
Landsbankans og Straums fjár-
festingarbanka. Þá hefur öllum
skilyrðum fyrir sameiningu fé-
lagsins við Straum og Landsbank-
ann verið fullnægt, en áður hafði
Fjármálaeftirlitið gefið grænt
ljós.
Á morgun föstudag mun
Burðarás verða afskráður úr
hlutafélagaskrá eftir að samrun-
inn og viðeigandi hlutafjárhækk-
anir hafa verið skráð. Þá verður
lokað fyrir viðskipti með hluti í
Burðarás í Kauphöll Íslands.
Verður skipt á hlutum Burðaráss
fyrir hluti í Straumi og Lands-
bankanum.