Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 16
87 ára me› Mitt kort Yfir fjögur flúsund manns á öllum aldri hafa sótt um svokalla› Mitt kort Landsbankans sem fólk getur myndskreytt sjálf. Sérstök nefnd fer yfir kortin til a› tryggja a› höfundarréttar sé gætt sem og velsæmis. „Kortin hafa fengið afar góðar viðtökur,“ segir Rebekka Ólafs- dóttir, hjá markaðsdeild Lands- banka Íslands, um nýja þjónustu bankans, Mitt kort, sem er þeim kostum búin að fólk getur mynd- skreytt sjálft. Auglýsingar fyrir kortin hafa verið áberandi undan- farið og sjálfsagt ekki farið fram- hjá neinum sem horfir á sjónvarp að staðaldri. Að sögn Rebekku hafa ríflega fjögur þúsund manns sótt um debet- og kreditkort sem fólk get- ur myndskreytt sjálft og kortin virðast höfða til breiðs aldurs- hóps; elsti handhafi debetkorts af þessu tagi hingað til er 69 ára en sá elsti sem hefur fengið sér kreditkort er hvorki meira né minna en 87 ára. Ekki fylgir sög- unni hvernig þeir myndskreyttu kortin sín enda er starfsfólk bund- ið bankaleynd. Að ýmsu er að huga þegar kort- um sem þessum er útdeilt, til dæmis hvort myndirnar brjóti í bága við höfundarréttarlög eða misbjóði velsæmiskennd fólks. Til þess var sérstök nefnd sett á laggirnar sem fer yfir kortin eftir samræmdum stöðlum og sker úr um þau vafaatriði sem upp kunna að koma. Þrír sitja í nefndinni, þar á meðal Rebekka. „Það kemur vissulega fyrir að við synjum kortum en í flestum, ef ekki öllum, tilfellum er það vegna höfundarlaga. Það er ekki óalgengt að ungir strákar vilji nota vöru- merki uppáhaldsfótboltaliðsins síns í ensku deildinni, en þau njóta höfundarréttar. En ef viðkomandi fær leyfi frá félaginu þá er það að sjálfsögðu í góðu lagi.“ Hún tekur þó fram að litlu broti af umsóknum sé synjað vegna mynda. Nefndin ver allt að hálfri klukkustund á dag í að fara yfir kortaumsóknir og Rebekku rekur ekki minni til þess að hafa þurft að synja ósæmilegri mynd. „Það koma í mesta lagi sárasaklausar myndir af fólki í kossaflensi, en ekkert sem fær mann til að súpa hveljur,“ segir Rebekka. bergsteinn@frettabladid.is Landhelgisgæslan: Málfræ›i fyrir fjölmi›la Landhelgisgæslan hefur sent fjöl- miðlum ábendingar um hvernig nöfn flugfara hennar skulu fall- beygð. Gæslan á tvær þyrlur og eina flugfél og eru nöfn þeirra fengin úr goðafræðinni. Syn er flugvél Landhelgisgæsl- unnar og hefur einkennisstafina TF-SYN. Hún heitir eftir gyðjunni Syn sem varnar óviðkomandi inn- göngu í hallir ása og mælir á þing- um gegn þeim sem henni þykir sanna mál sitt með ýkjum og lyg- um. Sums staðar er hún kölluð dyravörður Fensala, bústaðar Friggjar. Beyging nafnsins er: Syn um Syn frá Syn til Synjar. Sif er minni þyrla Gæslunnar og hefur einkennisstafina TF-SIF. Hún heitir eftir Sif sem er sögð vera gyðja hins gullna akurs og er hún ein af ásynjunum, kona ássins Þórs. Beyging er: Sif um Sif frá Sif til Sifjar. Líf, stærri þyrlan hefur ein- kennisstafina TF-LIF. Hún heitir eftir Líf, goðsögulegri kvenveru sem lifði af Ragnarök. Einnig er hún sögð vera sú sem hjúkrar. Beygingin er: Líf um Líf frá Líf til Lífar. - bþs Logi Bergmann Eiðsson er hættur á Fréttastofu RÚV eftir fjórtán ára starf hjá stofnuninni. Um árabil hefur hann lesið kvöldfréttir fyrir landsmenn en mun nú lesa fréttir á Stöð 2. „Þetta kemur á óvart, ég hélt hann væri svo ánægður yfir að fá Pál Magnússon upp á RÚV,“ segir María Reyndal leikstjóri um skyndilegt brotthvarf Loga. Ákvörðun hans kem- ur henni ekki síst á óvart í ljósi þess að Logi hafði nýlega verið ráðinn rit- stjóri á nýjum sjónvarpsþætti. „Hann var svo glaður í blöðunum yfir þess- um nýja þætti.“ María kveðst ekki eiga eftir að sakna hans sérstaklega af RÚV því hann verði áfram í sjónvarpinu og býst ekki við að horfa meira á Stöð 2 í kjölfar breytinganna. Stærstu tíðindin telur María þó felast í því að Logi mun væntanlega gegna hlutverki spyrils í Gettu betur áfram. „Það er áfall. En það er fínt að nota tækifærið og stokka þá keppni aðeins upp. Fá konu sem spyril og kannski karl sem stigavörð. Það væri ágætt.“ MARÍA REYNDAL LEIKSTJÓRI Áfall LOGI BERGMANN HÆTTUR Á RÚV SJÓNARHÓLL 16 29. september 2005 FIMMTUDAGUR „Það er allt gott að frétta, við erum nýbúin að taka upp næstu seríu okk- ar,“ segir bakarinn og sjónvarpskokk- urinn Jói Fel. „Við ljúkum þessu alltaf á haustmánuðum svo það fer lítill tími í þetta á veturna.“ Jói hefur yndi af skotveiðum og fer alltaf á gæs þegar færi gefst. „Ég er búinn að fara tvisvar í haust og þær hafa nokkrar fallið.“ Gæsin segir hann að sé fyrst og fremst haustmatur sem hann eldi jöfnum höndum fram yfir áramót. En gæsir eru ekki það eina sem Jóa finnst gaman að skjóta. „Ég ætla líka á rjúpu. Ég grét mikið þegar sett var veiðibannið á rjúpuna en mest var grátið þegar ég komst ekki á hreindýr. Það finnst mér skemmtileg- ast að veiða. Ætli það sé ekki vegna þess að mesta „machoið“ er í kring- um það, testósterónið fer á fullt,“ segir hann og hlær. Um skeið hefur Jói glímt við þrálát bakmeiðsl og fyrir fjórum mánuðum fór hann í sína þriðju brjósklosaðgerð. Hann er hins vegar óðum að jafna sig og byrjar senn að æfa aftur. „Það er aðalmálið hjá mér núna að komast aftur í ræktina,“ segir hann og þver- tekur fyrir að hafa hlaupið í spik með- an á veikindunum stóð. „Ég er alltaf í góðu formi. Ég hef lyft í 20 ár og hef góðan grunn, en því er ekki að neita að ég missti mig aðeins í bjórinn og grillið í sumar,“ segir Jói og kveðst ekki verða lengi að losa sig við alla umframbyrði um leið og hann byrjar að taka á því. Byrjar aftur a› taka á flví HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓI FEL BAKARI OG SJÓNVARPSKOKKUR nær og fjær OR‹RÉTT„ “ Ástrí›an drífur áfram „Þrátt fyrir að nota búningana úr sjónvarpinu þegar við skemmtum úti í bæ er alltaf eitthvert vesen í kringum það.“ JÓHANN G. JÓHANNSSON LEIKARI Í DV UM ÞÆR RAUNIR SEM FYLGJA BARNASKEMMTUNUM. Smekklegt „Þú varst nú starfandi á Þjóð- viljanum og þekktir þetta vel. Þér er mikið í mun að koma þessu máli yfir á Sjálfstæðis- flokkinn.“ DAVÍÐ ODDSSON, FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, RIFJAR UPP STARFSREYNSLU G. PÉTURS MATTHÍ- ASSONAR FRÉTTAMANNS Í UMRÆÐU UM BAUGSMÁLIÐ Í FRÉTTABLAÐINU.                   ! "#        ! $#            % &      ! "'               Bílafloti ríkisstjórnarinnar er metinn á 70 milljónir: Opinberar glæsikerrur Það var tilkomumikil sjón að sjá glæsikerrur ráðherranna renna í hlað við stjórnarráðið í Lækjar- götu þegar ríkisstjórnin kom saman til fundar á þriðjudag. Bílarnir eru meðal annars af gerðunum Audi, BMW, Mitsubis- hi og Volvo og kveðst bílaáhuga- maður telja að hver vagnanna kosti að meðaltali um sex millj- ónir króna. Lætur því nærri að bílafloti ráðherranna kosti um 70 milljónir. Ráðherrabílarnir eru jafnan vel þrifnir og bónaðir, þess gæta bílstjórar þeirra sem hugsa um þá líkt og ungabörn. Sést það glögglega þegar þeir pússa af þeim rykkorn og fingraför með- an beðið er eftir ráðherrunum á fundum í Alþingishúsinu eða annars staðar. - bþs FLOTTIR Ráðherrar Íslands ferðast á milli skrifstofubygginga í Reykjavík í glæsikerrum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M REBEKKA ÓLAFSDÓTTIR Ver allt að hálfri klukkustund á dag í að fara yfir kortaumsóknir og skera úr um vafaatriði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.