Fréttablaðið - 29.09.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,03 63,33
111,28 111,82
75,81 76,23
10,158 10,218
9,69 9,748
8,069 8,117
0,557 0,5602
91,28 91,82
GENGI GJALDMIÐLA 28.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
106,6156%
4 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Yfirlýsing frá Baugi vegna nýrra upplýsinga í Baugsmálinu:
Íhuga a› fara fram á opinbera rannókn
BAUGSMÁL Fyrirsvarsmenn Baugs
munu kanna hvort efni sé til opin-
berrar rannsóknar á gjörðum
Styrmis Gunnarssonar, Jónínu
Benediktsdóttur, Jóns Geralds
Sullenberger, Jóns Steinars Gunn-
laugssonar og Kjartans Gunnars-
sonar. Einnig hvort aðrir tengist
þessum hópi, leynt eða ljóst, að
því er fram kemur í yfirlýsingu
frá félaginu.
„Þá mun félagið meta réttar-
stöðu sína í sambandi við meið-
yrði í þess garð og forsvarsmanna
þess, og þá einnig í tengslum við
skaðabótamál sem félagið hefur
hafið undirbúning að.“
Þá segir: „Aðalatriði málsins er
sú aðför sem sterkar vísbending-
ar eru um að skipulögð hafi verið
á ritstjórnarskrifstofu Morgun-
blaðsins til þess að brjóta Baug
Group og fyrirsvarsmenn þess á
bak aftur í íslensku atvinnulífi, án
þess að skeyta nokkuð um afleið-
ingar þess fyrir félagið, hluthafa
þess og þúsundir starfsmanna.“
Undir yfirlýsinguna ritar
Hreinn Loftsson, stjórnarformað-
ur Baugs. - sda
Fréttirnar voru stór‡ktar
Heimsbygg›in fylltist óhug eftir a› hafa heyrt fréttaflutning af aflei›ingum fellibylsins Katrínar. Nú er
hins vegar a› koma í ljós a› fréttirnar voru í mörgum tilvikum meira í ætt vi› tröllasögur en raunveru-
legar l‡singar á flví sem ger›ist.
BANDARÍKIN
LÖGREGLUSTJÓRINN HÆTTUR
Lögreglustjórinn í New Orlans hef-
ur sagt starfi sínu lausu fyrirvara-
laust. Lögreglan í New Orleans
hafði áður tilkynnt að fram myndi
fara rannsókn á því hvers vegna
um 250 lögreglumenn mættu ekki
til vinnu eftir að fellibylurinn
Katrín reið yfir borgina á dögun-
um, en lögreglumönnunum gæti
hugsanlega verið refsað fyrir það.
BEIN Á ÞAKINU
Verkamenn sem unnu að viðgerð-
um á skýjakljúfi á Manhattan
fundu á dögunum mannabein á
þakinu. Skýjakljúfurinn stóð
nærri Tvíburaturnunum og
skemmdist nokkuð í hryðjuverka-
árásunum 11. september 2001.
Beinin eru því talin vera af fórn-
arlambi þess hildarleiks.
Sjálfmorðssprengja:
Bana›i níu
hermönnum
KABÚL, AP Sjálfsmorðsprengjumað-
ur á mótorhjóli sprengdi vítisvél
sína fyrir utan þjálfunarbúðir
hermanna í Kabúl í gær með þeim
afleiðingum að níu létust og 28
særðust.
Í kjölfar sprengingarinnar lok-
uðu bandarískir hermenn og frið-
argæsluliðar á vegum NATO þeim
hluta höfuðborgarinnar þar sem
árásin var gerð. Enginn hefur lýst
ábyrgð á hendur sér en árásir á
borð við þessar eru fátíðar. Í ágúst
2004 sprengdu talibanar sprengju
við skrifstofur bandarísks fyrir-
tækis og þá dóu tíu manns.
Tíu dagar eru síðan þingkosn-
ingar fóru fram í Afganistan og
því hefur viðbúnaður þar verið
mikill. ■
FJÖLMIÐLAR Rangfærslur og ýkjur
einkenndu fréttir bandarískra fjöl-
miðla af ástandinu í New Orleans
og nágrenni eftir að fellibylurinn
Katrín reið yfir í ágústlok. Ástæð-
an er skortur á samskiptum en
einnig kynþáttafordómar. Þetta er
fullyrt í grein í breska blaðinu The
Independent í gær.
Eftir að fellibylurinn Katrín
gekk á land í sunnanverðum
Bandaríkjunum og flóðgarðar
brustu við New Orleans með þeim
afleiðingum að borgin fór undir
vatn fóru strax að berast óhugnan-
legar sögur af ástandinu þar. Al-
gert niðurbrot siðferðisgilda virt-
ist hafa átt sér stað, stigamenn
fóru um ránshendi og óttast var að
tugir þúsunda hefðu látið lífið. Sér-
staklega átti ástandið að vera
slæmt í Superdome-íþróttahöllinni
og í ráðstefnumiðstöð þar sem
flóttamenn höfðust við innan um
rotnandi lík, saur á gólfum og án
matar og vatns. Þaðan bárust sög-
ur af morðum og nauðgunum, jafn-
vel á börnum.
Nú er hins vegar að koma í ljós
að í Superdome-höllinni dóu ein-
ungis sex manns. Fjórir dóu af
eðlilegum orsökum, einn af of-
neyslu fíkniefna og einn framdi
sjálfsmorð. Engar staðfestar heim-
ildir eru fyrir morðum þar. Í ráð-
stefnumiðstöðinni áttu 24 að hafa
verið myrtir, þar hafa aðeins fund-
ist fjögur lík og virðist eitt dauðs-
fallið hafa verið af manna völdum.
Fjögur morð voru framin í New
Orleans þessa örlagaríku viku, rétt
eins og hverja aðra viku í árinu.
Frásagnir af gripdeildum og ráns-
ferðum voru sömuleiðis ýktar, að
minnsta kosti hefur ekki tekist að
staðfesta nema brot af þeim.
Independent tilgreinir ýmsar
ástæður fyrir því að tröllasögurn-
ar komust á kreik. Í fyrsta lagi
voru fjarskiptakerfi í borginni í
lamasessi af völdum fellibylsins
og flóðanna sem fylgdu í kjölfarið
og því áttu flökkusögur ef til vill
greiðari leið en ella. Önnur ástæða
er sérstakt fjölmiðlaumhverfi þar
sem beinlínis er gert út á að vekja
sem sterkastar tilfinningar áhorf-
enda við fréttaflutningnum. Í
þriðja lagi hefur svo verið bent á
að kynþáttafordómar hafi haft
mikið að segja, að ótti hvítra vel-
megandi íbúa við hina þeldökku og
fátækari nágranna sína hafi orðið
skynseminni yfirsterkari.
sveinng@frettabladid.is
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON OG HREINN
LOFTSSON Í yfirlýsingu sem Hreinn Lofts-
son, stjórnarformaður Baugs, ritar undir
segir að Baugur muni kanna hvort efni sé
til opinberrar rannsóknar á gjörðum fimm
nafngreindra persóna í tengslum við
Baugsmálið.
GRÁIR FYRIR JÁRNUM Norskir friðargæslu-
liðar á vegum Atlantshafsbandalagsins
gættu þess að engir færu inn á svæðið þar
sem árásin var gerð.
Sjónvarpsstöðin TV2:
Skálda›i fréttir
DANMÖRK Danska útvarpsréttar-
nefndin hefur áminnt ríkisreknu
sjónvarpsstöðina TV2 fyrir að
birta fréttir um glæpagengi inn-
flytjenda sem byggðust á rang-
færslum.
Fréttirnar birtust fyrst um
miðjan júlí og var því slegið upp að
„ungir innflytjendur byggju sig
undir stríð“.
Lögregla lýsti því hins vegar
skömmu síðar yfir að unglinga-
gengið væri ekki til. Þar að auki
kom í ljós að stór hluti myndskeið-
anna í fréttunum var úr tónlistar-
myndbandi. ■
STAÐREYNDIR EÐA TRÖLLASÖGUR?
Fréttirnar: Skotárásir og hnífsstungur áberandi í Superdome-höllinni.
Staðreynd: Ef slíkar árásir áttu sér stað voru þær ekki alvarlegar.
Fréttirnar: 24 látnir í ráðstefnumiðstöðinni eftir byssubardaga.
Staðreynd: Fjögur lík hafa fundist, þar af eitt eftir morð.
Fréttirnar: Óþjóðalýður fór ránshendi um auðug úthverfi.
Staðreynd: Ekkert slíkt átti sér stað.
Fréttirnar: Í Baton Rogue gengu flóttamenn berserksgang svo loka varð Louisi-
ana-háskóla.
Staðreynd: Eitt afbrot var tilkynnt til lögreglu, minniháttar hnífsárás í flóttamanna-
skýli. Enginn meiddist.
ÚR SUPERDOME-HÖLLINNI Ófagrar sögur bárust frá höllinni dagana eftir að fellibylurinn geisaði í New Orleans og nágrenni. Ekki virðist
hins vegar fótur nema fyrir litlum hluta þeirra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
FP