Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 8

Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 8
1Hvað heitir „Gillzenegger“ réttunafni? 2Hvaða flokkur missti sæti sitt í fjár-laganefnd Alþingis sökum hlutkestis? 3Hvaða forseti var að sverja embættis-eiðinn í fimmta sinn? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 29. september 2005 FIMMTUDAGUR Könnun Fjölmenningarseturs á Ísafirði meðal innflytjenda á Vestfjörðum og Austurlandi: Innflytjendur vilja taka flátt í stjórnmálum FÉLAGSMÁL Um 70 prósent innflytj- enda á Vestfjörðum og Austurlandi hafa áhuga á að taka þátt í starfi stjórnmálaflokks eða stjórnmála- samtaka á Íslandi fengju þeir tæki- færi til þess. Elsa Arnardóttir, framkvæmda- stjóri Fjölmenningarsetursins á Ísafirði, segir þetta vera eina af niðurstöðum úr umfangsmikilli könnun sem gerð var á viðhorfum og aðstæðum þessa fólks síðastliðið haust. Þessi niðurstaða var nýverið unnin úr könnunargögnunum. „Það er jafnframt athyglisvert að innflytjendurnir sem eru af asískum uppruna virðast vera ákveðnari í að taka þátt heldur en hinir sem komið hafa frá Evrópu- löndum,“ segir Elsa. „Það er mark- tækur munur á því hve miklu fleiri af fyrrnefnda hópnum vilja taka þátt í stjórnmálastarfi.“ Elsa segir að þessi mikli munur á fyrirhugaðri kosningaþátttöku aðspurðra innflytjenda stafi trú- lega einkum af því hvaða forsendur þeir hafi fyrir dvölinni hér. „Þeir sem eru komnir hingað til að vinna í einhvern fjölda ára, en ætla ekki að setjast hér að til fram- búðar líta allt öðrum augum á þessa hluti heldur en hinir sem eru komn- ir til að vera,“ segir hún. „Hinir síð- arnefndu vilja fremur hafa áhrif í samfélaginu.“ -jss Vegtollar í Kaupmannahöfn: Meirihluti fylgjandi DANMÖRK Ökumenn og eigendur bifreiða í Kaupmannahöfn gætu þurft að greiða vegtolla í framtíð- inni. Samkvæmt nýrri könnun sem birt er í Kaupmannahafnarpóstin- um sýnir að sextíu prósent að- spurðra telja rétt að ökumenn greiði sérstaklega fyrir afnot af vegum. Fjörtíu prósent bifreiðaeig- enda eru hugmyndinni hlynntir. ■ ÍSAFJÖRÐUR Þar búa margir innflytjendur sem vilja láta til sín taka í stjórnmálastarfi. fieir sem kaupa Nissan Pathfinder í september fá 32" dekk, krómstigbretti og dráttarkrók í kaupbæti. 250.000 krónum flottari! F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 Hrísm‡ri 2a 800 Selfossi 482-3100 Eyrarlandi 1 530 Hvammstanga 451-2230 Sæmundargötu 3 550 Sau›árkróki 453-5141 Holtsgötu 52 260 Njar›vík 421-8808 Dalbraut 2b 300 Akranesi 431-1376 Víkurbraut 4 780 Höfn í Hornafir›i 478-1990 Bú›areyri 33 730 Rey›arfjör›ur 474-1453 Óseyri 5 603 Akureyri 461-2960 Sindragötu 3 400 Ísafjör›ur 456-4540 Pathfinder fer allt á fjórhjóladrifinu, er flægilegur í öllum sjö sætunum, lipur innanbæjar og rúmar farangur til fleiri mána›a. Pathfinder ey›ir einungis 10 dísil-lítrum á hundra›i› í blöndu›um akstri. Hann er öflug listasmí›, traustur og vanda›ur. En fyrst og fremst sameinar Nissan Pathfinder fla› grófa og fla› fína í frábærum útivistarbíl fyrir sumar jafnt sem vetur. SKIPT_um landslag ÉG ÆTLA EKKI A‹ HANGA INNI Í VETUR PATHFINDER NISSAN Gott gengi á Nissan Pathfinder í september 2005. • fiokuljós • Króma› grill • Le›urklætt st‡ri og gírstöng • Króma›ar höldur inni í bíl • Hiti í speglum • Áttaviti í baks‡nisspegli • Lita› gler • 7 sæta • Birtuskynjari í spegli • Útvarpsfjarst‡ring í st‡ri • Innbyggt loftnet (loftnet í afturrú›u) • Regnskynjari • Hra›astillir (Cruise Control) STA‹ALBÚNA‹UR USD 63.04 JPY 0.56 EUR 75.68 Gengi› eftir hádegi 28. september 2005 LÆKKA‹ VER‹ Ver› Fyrir Eftir Pathfinder XE beinskiptur 3.990.000.- 3.790.000.- Pathfinder SE beinskiptur 4.450.000.- 4.290.000.- Pathfinder SE sjálfskiptur 4.650.000.- 4.490.000.- Pathfinder LE sjálfskiptur 4.990.000.- 4.990.000.- Pathfinder LE IT sjálfskiptur 5.350.000.- 5.190.000.- England dæmd fyrir misþyrmingar í Abu Ghraib: firiggja ára fangelsisdómur Lenti í klónum á svikafyrirtæki Ung kona sem rekur líti› gistiheimili á fiórshöfn á Langanesi lenti í klónum á svikafyrirtæki. fia› rukkar hana nú ítreka› um 300 flúsund krónur. BANDARÍKIN Herréttur í Texas dæmdi í fyrrakvöld Lynndie Eng- land í þriggja ára fangelsi fyrir að niðurlægja og misþyrma föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. England, sem var sakfelld af sex af sjö ákæruliðum á mánudag- inn, hlýddi svipbrigðalaus á dóms- uppkvaðninguna. Áður en hún var leidd út úr fangelsinu, járnuð á fótum og höndum, eyddi hún stundarkorni með 11 mánaða gömlum syni sínum. England kvaðst við réttarhöld- in hafa verið leiksoppur unnusta síns, James Graner, sem fékk hana til að niðurlægja fangana á meðan hann tók af þeim myndir. Graner var sjálfur dæmdur í tíu ára fangelsi. ■ SVIKAMYLLA Karen Rut Konráðs- dóttir, sem rekur lítið gistiheimili á Þórshöfn á Langanesi, lenti í klónum á svikafyrirtæki, sem nú rukkar hana í sífellu um háar fjár- hæðir. „Í september í fyrra fékk ég sent eyðublað frá hótelvefsíðu sem heitir Hot- elguide,“ segir Karen Rut. „Þar var ég beðin um að uppfæra skráningu mína á vefnum. Ég vissi raunar ekki að g i s t i h e i m i l i ð væri skráð á þessum vef. En allt um það, skráningin fylgdi með plagginu og þar voru ýmsar upplýsingar sem voru rangar. Ég sendi í sakleysi mínu leiðréttingu á skráningunni þar sem hún var á vefnum og ekki vildi ég hafa hana ranga. En með því að fylla hana út og senda til baka var ég um leið að undirrita samning um auglýsingu í þrjú ár upp á 300 þúsund krónur.“ Karen segir að skuldbindingin hafi staðið í smáu letri neðst á eyðublaðinu, þó svo að tekið hafi verið fram efst á því að hún gæti sent inn leiðréttingu á skráning- unni án þess að kaupa auglýsingu. Eyðublaðið hafi því verið mjög villandi og auðvelt að misskilja það. „Þetta fyrirtæki hefur svo sent mér rukkanir reglulega og alltaf hækkar upphæðin,“ bætir Karen Rut við. „Nú síðast var mér svo boðið að greiða þriðjung af upp- hæðinni til að loka málinu og fékk til þess frest í einn dag. Eftir það verður upphæðin aftur sú sama og við bætist nú enn frekari lög- fræðikostnaður og innheimtu- gjöld, að sögn talsmanna fyrir- tækisins.“ Hún hefur leitað ráða hjá Sam- tökum verslunar og þjónustu eins og ótal fleiri sem hafa lent á „aug- lýsingasamningi“ hjá vefsíðufyr- irtækjum af þessari tegund. Hún fékk þar sömu ráðleggingar og aðrir, að láta innheimtuhótanir sem vind um eyru þjóta og borga ekki fyrir þjónustu sem hún hafi verið göbbuð til að kaupa. Hún segist ætla að fylgja þeim ráðum. jss@frettabladid.is Á LEIÐ ÚR RÉTTARSALNUM Nafn Lynndie England verður ávallt tengt einum ömur- legasta kafla hernámsins í Írak. M YN D /A P GISTIHEIMILIÐ Svikafyrirtækið þefaði uppi þetta litla gistiheimili og sendi „skráningar- gögn“ til rekstraraðilans. KAREN RUT KON- RÁÐSDÓTTIR Hefur verið rukkuð bréflega og sím- leiðis. ÞÓRSHÖFN Á LANGANESI Þangað hefur svikafyrirtæki teygt klær sínar til að verða sér úti um nokkur hundruð þúsund krónur. BANDARÍKIN HEPPINN INNFLYTJANDI Innflytj- andi frá Kenía datt í lukkupottinn daginn sem hann fékk bandarísk- an ríkisborgararétt. Skömmu eftir að hann sór borgaraeið sinn uppgötvaði hann að á lottómiða sem hann hafði keypt kom vinn- ingur upp á um 117 milljónir króna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.