Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 20
að kaupa
v e n j u l e g t
kjöt eins og
hangikjöt og
skinku og taka fit-
una af, því það er bragð-
meira og bragðbetra,“ segir Guð-
rún, sem er lítið hrifin af kjöt-
áleggi sem er fullt af vatni.
Nefnir hún brauðskinku, sem
hún segir að eigi ekkert sameig-
inlegt með venjulegri skinku.
Nokkrar góðar hugmyndir til
að auka fjölbreytni áleggsins eru
til dæmis að setja rifsberjahlaup
á lifrarkæfuna og ólífur á
kjúklingaáleggið. Soðin egg,
tómatar og grænmeti eru vinsæl
en síðan er hægt að breyta út af
venjunni og setja reyktan silung,
salat úr sýrðum rjóma og sinnepi
og eplabitum, allt eftir smekk.
Annað gott ráð er að elda
meira í kvöldmatinn og taka með
næsta dag. Guðrún á son í smíða-
námi sem finnst best að taka með
sér afganga í boxi og hita í ör-
bylgju. Hún segir að í raun megi
gera slíkt við allan mat, hins veg-
ar séu pottréttir eða eitthvað
með sósu yfirleitt girnilegra.
Ekki eru allir svo skipulagðir
að þeir gefi sér tíma til að útbúa
nesti. Fyrir þá bendir Guðrún á
salatbari eða einfaldlega að fólk
kaupi sér samloku eða langloku.
„Ein samloka gefur þó ekki næga
orku til að dekka hádegið,“ varar
hún við og segir því nauðsynlegt
að fá sér jógúrt eða skyr með.
Mötuneytismatur er misjafn
en Guðrún segir hann þó oft á
t í ð u m
mjög góð-
an. Þá sé
hann oft nið-
urgreiddur og
því hagstæður. Guðrún
segir mikilvægt að fólk sé sátt
við hádegismatinn og hann sé
lystugur því annars sé hætta á að
fólk langi í eitthvað annað og
freistist til að grípa í kex eða
aukabita. „Það er mjög mikið at-
riði að setjast niður og gefa sér
tíma í að borða,“ segir Guðrún og
mælir eindregið með því að fólk
drekki mikið vatn.
Guðrún segir allt of algengt
að fólk borði of lítið í hádeginu.
Hún hafi fengið til sín konur sem
borði eina skyrdós í hádeginu og
fari síðan út að ganga. „Þetta
skilar engu,“ heldur Guðrún
fram enda verði fólk pirrað
þegar það sé illa nært og næring
hafi mikið að segja um andlega
líðan og afköst í starfi.
Nesti fyrir fullor›na
Fólk á að fá þrjátíu pró-
sent af orku dagsins úr
hádegisverðinum. Best er
að búa til eigin hádegis-
mat því það er hollara og
alltaf ódýrara en að
kaupa hann tilbúinn.
Hádegisverður er mikilvæg mál-
tíð. Þar fæst sú orka sem notuð
er til að halda sér vakandi í vinn-
unni og daglegu amstri. Hádegis-
maturinn vefst fyrir mörgum og
oft á tíðum freistast fólk til að
fara út í búð eða á veitingastað
og kaupa sér eitthvað í gogginn
sem til lengri tíma litið er kostn-
aðarsamt. Guðrún Þóra Hjalta-
dóttir næringarráðgjafi hefur
nokkur góð ráð fyrir fólk sem
vill koma lagi á hádegissiði sína
með því að hugsa bæði um heils-
una og fjárhaginn.
„Ég hvet fólk til að útbúa mat-
inn sjálft vegna þess að þá veit
maður hvað maður er að borða
og það er alltaf ódýrara,“ segir
Guðrún og bætir við að úr hádeg-
isverðinum eigi fólk að fá þrjátíu
prósent af orku dagsins. Algeng-
asta nestið og það sem er ávallt
klassískt er að útbúa samloku
ásamt einum ávexti eða jógúrt-
dós, skyri eða skyrdrykk en
hægt er að útbúa nestið annað
hvort kvöldið áður eða að
morgni, eftir því sem hentar.
Nestið þarf þó ekki að vera til-
breytingasnautt enda álegg af
mörgum toga. „Ég ráðlegg fólki
! "
#
!"#$
%&'' ())
*(!"%
Ár Kr.
1980 15 kr.
1985 130 kr.
1990 400 kr.
1995 550 kr.
2000 700 kr.
2003 800 kr.
20 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
NEYTANDINN: SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON VEÐURFRÆÐINGUR
ÚTGJÖLDIN
> VERÐ Á BÍÓMIÐA Á VENJULEGA
SÝNINGU MIÐAÐ VIÐ VERÐLAG Í
NÓVEMBER HVERS ÁRS Þegar ég horfi yfir það sem ég hef keypt yfir ævinafyrir utan náttúrulega heimilið og mat þá eru bestu
kaupin sennilega sumarbústaðurinn minn,“ segir
Sigurður Þ. Ragnarsson hinn kunni veðurfrétta-
maður. Sumarbústaðinn sem er í Borgarfirði keypti
Sigurður fyrir þremur árum og er alsæll. „Þar hitti
ég naglann á höfuðið,“ segir Sigurður sem finnst
tóm sæla að dvelja í sveitinni. „Þarna eyðir maður
öllum sínum bestu stundum með fjölskyldunni,“
segir Sigurður sem dundar sér þar við smíðar og
annað þv um líkt.
„Mér finnst heillandi að komast út í náttúruna. Þar
sem ég er lærður í náttúruvísindum vil ég komast
þangað sem stutt er til fjalla og á vit ævintýranna,“
segir Sigurður og finnst bústaðurinn hverrar krónu
virði.
Sigurður telur sig hafa verið nokkuð heppinn í
gegnum tíðina og var lengi að rifja upp verstu
kaupin. Hann komst þó að þeirri niðurstöðu að
ein verstu kaup hans hefðu verið á tryggingum.
„Fyrir nokkrum árum taldi ég mig vera eins vel
tryggðan og kostur var og síðan var brotist inn í
bílinn minn, nýjan jeppa. Ég rak mig á eintómar
læstar dyr,“ segir Sigurður um viðskipti sín við
tryggingafélagið þegar
hann reyndi að fá bæt-
ur fyrir tjónið. „Það var
mikið svekkelsi,“ segir
Sigurður sem í dag
leitar eftir
þeim trygg-
ingum
sem eru
ódýrastar í
hvert
skipti.
Var› vonsvikinn me› tryggingar Þórunn Högnadóttir sjónvarpsþáttastjórnandi
hringir oft í mömmu sína til að fá góð ráð
sem sú hefur greinilega undir rifi hverju. Þór-
unn setur til dæmis edik í vatn þegar hún
þrífur glugga og segir þá glansandi á eftir. Þá
notar hún matarsóda til
að þrífa innan úr kaffi-
könnum.
„Tannkrem er það besta
sem þú færð á postu-
lín,“ segir Þórunn sem
nýtir tannkremið til fleiri
verka eins og að þrífa
vaska. Annað gott ráð til
að þrífa vaska er að
nota þvottaefni. „Það var fyrir tilviljun að ég
uppgötvaði það. Ég var að leggja í bleyti í
vaskinum og þvoði vaskinn á eftir og hann
varð eins og spegill,“ segir Þórunn sem sækir
bæði ráð til mömmu sinnar og ömmu. Eld-
gamalt ráð sé til dæmis að nota kaffikorg til
að þrífa pela. „Þá setur maður pínu kaffikorg
og vatn, hristir pelann og þá verður hann
hreinn og fínn.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
■ fiórunn Högnadóttir
hagur heimilanna
■ HVAÐ KOSTAR....AÐ LÁTA SKOÐA BÍLINN?
Dýrt að mæta ekki í endurskoðun
Einn af föstum útgjaldaliðum hvers árs er að fara með bílinn í skoð-
un. Ef farið er með bílinn í skoðun hjá Frumherja er aðalskoðunar-
gjald fyrir venjulegan fólksbíl 5.200 krónur en fyrir bíla yfir
fimm tonnum eru það 9.100 krónur. Ef ekki er allt í lagi og
settur er endurskoðunarmiði á bílinn hefur eigandinn 30
daga til að koma með hann í endurskoðun. Það kostar
1.000 krónur fyrir fólksbíl en 1.900 krónur fyrir stærri bíla. Ef hins vegar
er komið með bílinn eftir þennan 30 daga frest eykst kostnaðurinn enda þarf þá að
skoða allan bílinn aftur. Þá kostar það aukalega 3.400 krónur fyrir fólksbílinn en
5.100 krónur fyrir bíla yfir fimm tonnum.
Hjá Aðalskoðun er verðið svipað, aðalskoðunargjald fyrir fólksbíl er 5.150 kr. og
9.150 kr. fyrir stærri bíla.
Samkvæmt óformlegri verðkönn-
un Fréttablaðsins getur kostnaður
við vetrargeymslu á tjaldvögnum,
húsbílum, felli- og hjólhýsum
numið frá 10 og upp í 50 þúsund
krónur. Verðið ræðst af tegund og
stærð hýsisins en einnig af gerð
og staðsetningu geymslunnar.
Segja má að þumalputtareglan
sé sú að verðið lækki í jöfnu hlut-
falli við fjarlægð frá Reykjavík
en þar eru hýsin flest og spurnin
eftir geymslu mest.
Á Suðurnesjum og Árborgar-
svæðinu kostar vetrargeymsla á
stóru fellihýsi í kringum 35 þús-
und krónur. Verðið er
lægra fyrir minni felli-
hýsi og tjaldvagna en
getur farið upp í um 50
þúsund krónur fyrir
geymslu á húsbíl.
Verðið er talsvert
lægra í grennd við Akureyri,
þar kostar frá 10 og upp í 15 þús-
und að geyma fellihýsi.
Víðast hvar eru leigupláss
vetrarins uppseld en sums staðar
er enn hægt að fá inni.
Húsnæði sem reist hefur verið
fyrir margs konar atvinnustarf-
semi er nú nýtt fyrir geymslur
undir
f e l l i -
hýsi og
tjaldvagna. Má
nefna að gömul refa- og svínabú
þjóna nú nýju hlutverki og í stað
fjórfætlinga á fóðrum standa þar
vagnar sem bíða þess að eigend-
urnir dragi þá út í vorið á ný.
- bþs
■ VERSLUN OG ÞJÓNUSTA
RKÍ opnar nýja verslun í Hafnarfirði
Í gær opnuðu deildir Rauða kross Íslands á höfuðborgarsvæðinu verslun með not-
aðan fatnað í Strandgötu 24 í Hafnarfirði. Þar með rekur Rauði krossinn tvær versl-
anir en hin er á Laugavegi 12 í miðbæ Reykjavíkur.
Allt stefnir í að Rauði krossinn taki á móti þúsund tonnum
af notuðum fatnaði í ár en móttakan fer fram á öllum
endurvinnslustöðvum Sorpu þaðan sem fatnaðurinn er
sendur í fataflokkunarstöð í Gjótuhrauni 7.
Allur fatnaður sem berst er nýttur, hluti hans er seldur óflokk-
aður úr landi, hluti fer til hjálparstarfs erlendis og innanlands. Allur ágóði fataflokk-
unarverkefnisins rennur í hjálparsjóð Rauða krossins.
Fiskur spornar við ofþyngd
Fiskneysla er líklegri til að sporna við ofþyngd en kjötneysla. Þetta kom fram í erindi
Ingibjargar Gunnarsdóttur næringarfræðings sem hún flutti á fundi Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins í tilefni af 40 ára starfsafmæli stofnunarinnar.
Ingibjörg vísaði í rannsókn á þyngdarstjórnun þar sem þátttakendur þjáðust af
vægri offitu. Þeim var skipt í fjóra hópa sem allir voru settir á mataræði með jafn-
miklum orkuforða, en sá munur var á að einn hópurinn fékk engan fisk, annar
þorsk þrisvar í viku, sá þriðji lax þrisvar í viku og sá fjórði fiskiolíutöflur. Eftir átta vik-
ur höfðu allir hóparnir lést en heildarþyngdartapið var meira hjá þeim sem fengu
fisk eða fiskiolíu en hjá hópnum sem fékk engan fisk.
Ekki er ljóst hvað veldur því að fiskneysla sporni við ofþyngd frekar en kjötneysla,
en að sögn Ingibjargar munu næstu rannsóknir miðast við að bregða ljósi á það.
NÆRINGARRÁÐGJAFI Guðrún Þóra
Hjaltadóttir.
HOLLT OG GOTT Góð
næring hefur mikið að
segja um andlega líðan.
Góður hádegisverður
getur gert gæfumuninn
á því hvort fólk sé vel
upplagt í vinnunni. Mik-
ilvægt er að gefa sér
góðan tíma til að borða.
SUMIR BORÐA EKKI NÓG Ein skyrdós í
hádeginu er ekki nóg til að fullnægja orku-
þörfinni.
Margir setja tjaldvagna, húsbíla, felli- og hjólhýsi í geymslu yfir veturinn:
Kostar frá 10 upp í 50 flúsund