Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 33
A-vítamín hefur góð áhrif á húð, hár, bein og tennur
auk þess sem það er gott fyrir sjónina. Egg, lifur, fitu-
snauðar mjólkurvörur og gult og dökkgrænt grænmeti,
auk gulróta og spínats, innihalda A-vítamín.[ ]
ROPE YOGA
Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfjörður / 3. hæð
Skráning er hafin í síma 555-3536 GSM 695-0089
ropeyoga@internet.is • www.ropeyoga.net
stöðin Bæjarhrauni 22
NÝ BYRJENDANÁMSKEIÐ
Við mælum
blóðfitu
Pantaðu tíma
í Lágmúla í síma 533 2308
Smáratorgi í síma 564 5600
Benedikt Bjarki Ægisson
tannlæknir segir skipulega
tannburstun lykilinn að góðri
tannhirðu. Einnig er tann-
þráður nauðsynlegur og sting-
ur Benedikt upp á því að fólk
þræði tennurnar yfir fréttum.
„Mikilvægt er að bursta sig
skipulega, byrja á ákveðnum stað
og þrífa síðan hverja tönn fyrir
sig,“ segir Benedikt Bjarki Ægis-
son tannlæknir og bætir því við
að almennileg tannburstun skipti
miklu fyrir góða tannhirðu. Nota
skal mjúka tannbursta fremur en
þá hörðu þar sem þeir þrífa tenn-
urnar betur. Mjúk hárin leggjast
vel að tönnunum á meðan harði
burstinn skoppar af þeim. Einnig
geta þeir sem samviskusamir eru
einfaldlega burstað tannholdið
burtu, slitið vefinn og upplifað
þannig óþægindi svo sem óþol
fyrir hita og kulda.
Benedikt telur einnig mikil-
vægt að skola ekki munninn eftir
tannburstunina. „Það skiptir máli
að leyfa tannkremsflúorinu að
liggja á tönnunum yfir nóttina. Ég
persónulega bursta
mig yfir sjónvarp-
inu, kyngi svo bara
öllu saman og fer að
sofa.“
Eitt sem mjög
margir gleyma er að
bursta tunguna.
„Tungan er alsett
litlum skorum sem
eru gróðrarstía fyrir
bakteríur og matar-
leyfar. Til eru sér-
stök áhöld til að
hreinsa tunguna en
tannburstinn er ekk-
ert síðri,“ segir Benedikt.
Notkun tannþráðar er einnig
mjög góð viðbót við tannburstann
og eiginlega nauðsynleg til að ná
tannsýklu sem er á milli tann-
anna. Tannskemmdir byrja helst
þar sem bakteríur fá að vera í
friði, til dæmis á snertifleti tann-
anna, en burstinn nær ekki til
þeirra svæða. Aðrir fletir eru
nánast sjálfhreinsandi, svo sem
bitflöturinn sem
alltaf er í núningi.
„Vandamálið hjá
okkur er fyrst og
fremst að fá fólk til
að nota þráðinn.
Finna verður ein-
hverja leið til setja
þetta inn í rútínuna
svo sem þegar horft
er á fréttir. Ef við-
komandi situr með
tannþráðsboxið við
hlið sér er miklu lík-
legra að hann noti
þráðinn.“
Benedikt brýnir það einnig
fyrir foreldrum að bursta börn
sín upp að tíu ára aldri. Þau mega
gera það sjálf einstaka sinnum en
passa verður að það sé gert í um-
sjá fullorðinna.
Gáfaðir drekka helst léttvín en hafa minni smekk
fyrir bjór og sterkum drykkjum. Sú er niður-
staða nýrrar danskrar rannsóknar. Vís-
indamaðurinn sem komst að þessari
merku niðurstöðu fylgdist með
drykkjuvenjum 1800 manna
hópi ungs fólks sem einnig var
sett í greindarpróf. Rannsóknin
leiddi í ljós að uppáhaldsdrykk-
ur þeirra greindustu var léttvín.
Fylgst var með drykkjuvenjum
hópsins í nokkur ár og samkvæmt
Politiken þá héldu þeir greindustu
einnig mest upp á léttvínið
nokkrum árum síðar.
„Það hefur lengi verið talið bera
vott um góðan smekk að drekkar
fremur vín en öl,“ sögðu prófessorarnir
Morten Grönbæk og Thorkild I. A. Sör-
ends sem vinnaa á Lýðheilsustofnun Dana
í samtali við Politiken. Tekjuháir einstak-
lingar og vel menntaðir drekka einnig frekar
vín en bjór.
Gáfa›ir drekka vín
Samhengi á milli greindar fólks og vals á áfengistegund.
Verðandi feður
forðist mengun
Mengun dregur úr sæðisgæðum.
Karlmenn sem eru að reyna að eign-
ast barn ættu að forðast mengun til
að tryggja sem mest gæði sæðisins.
Bresk rannsókn sýnir bein tengsl á
milli mikillar mengunar og lélegs
sæðis hjá karlmönnum. Rannsóknin
sýnir enn frekar fram á mikilvægi
þess að karlmenn hugi almennt að
heilsunni ef þeir eru að reyna að
eignast barn. Greint er frá rannsókn-
inni á vef BBC og bætt við að sífellt
fleiri rannsóknir sýni að gæði sæðis
verði meiri því hollara líferni væntan-
legir feður temja sér. Hollur matur
og lítil áfengisneysla eykur til að
mynda líkur á gæðasæðisframleiðslu
karla.
Greint fólk er ekki spennt fyrir sterkum drykkjum og vill heldur léttvín.
Benedikt Bjarki Ægisson að störfum.
Hreinsa skal tunguna en
sleppa munnskolun
GÓÐ TANNHIRÐA
FELUR Í SÉR AÐ:
● tannbursta sig skipulega
minnst einu sinni á dag
● nota mjúkan tannbursta
● skola ekki munninn eftir
tannburstun
● ekki gleyma að bursta
tunguna
● nota tannþráð daglega