Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 34
Sítrónur má nota til þess að þrífa örbylgjuofninn. Skerið eina sítrónu
niður og hitið í skál með vatni í örbylgjuofninum í um það bil tíu mínútur.
Þurrkið síðan innan úr ofninum með rökum klút.[ ]
Haustvörur
2005
Lene Bjerre - Bæjarlind 6, Kópavogi. - Simi: 534 7470
Opið virka daga frá 10-18 - Laugardaga frá 10-16 - www.feim.is
Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504
Opið frá 11-18 virka daga.
Laugardaga 11-15
HAUST 2005
KOMIÐ
www.bergis.is
Fékk hrærivél í
sjötugsafmælisgjöf
Borðstofuborðið hennar Guðrúnar er smíðað af skáldinu Böðvari Guðmundssyni. Það gengur undir nafninu nægtaborðið.
Í dag kemur út bók Guðrúnar
Helgadóttur Í Guðrúnarhúsi,
Greinasafn um bækur Guðrún-
ar Helgadóttur. Þótt þar sé há-
leitara efni á ferð en það sem
tengist íbúðarhúsi nýttum við
okkur titilinn og knúðum dyra
hjá rithöfundinum.
Það er gengið beint af götunni inn
í Guðrúnarhús. Þarna kveðst Guð-
rún vera orðin býsna rótföst enda
hefur hún búið þar í 21 ár. Hún
segir frá því sposk á svip að afi og
amma Þorsteins Pálssonar, sendi-
herra og fyrrverandi forsætisráð-
herra, hafi átt þar sitt heimili á
undan henni og þegar hún hafi
flutt inn hafi stór borði hangið
uppi á vegg með slagorðinu X-D!
Þar sem Guðrún hefur ávallt
verið vinstrisinnuð er því slegið
föstu af blaðamanni að hún hafi
verið fljót að losa sig við borðann.
„Nei, ég hélt lengi upp á hann en
líklega er hann þó týndur nú,“
svarar hún hlæjandi.
Guðrún átti stórafmæli á dög-
unum og þá gerðust þau tíðindi að
hún eignaðist sína fyrstu hrærivél
en hingað til hefur hún fengið orð
fyrir að vera þrautseig á þeytar-
anum. Þótt eldhúsið sé ekki stórt
kveðst hún mikið búin að malla
þar og bralla enda fjölskyldan
stór og samheldin. Tólf manna
borðstofuborðið er sprungið utan
af fjöldanum svo fólk verður að
dreifa sér um húsið. En borðið,
sem hefur fengið nafnið nægta-
borðið, á sína sögu.
„Ég tók að mér að vélrita BA-
ritgerð Böðvars Guðmundssonar
skálds og þó hann sé með
skemmtilegri mönnum var rit-
gerðin fremur þurr og þung. Þeg-
ar kom að borgun hjá Böðvari var
um þrennt að velja. Hann bauðst
til að yrkja fyrir mig, syngja fyrir
mig eða smíða fyrir mig. Með
hálfgerðri skömm yfir því hvað
ég væri hversdagsleg valdi ég síð-
asta kostinn því ég var svo fátæk
af húsgögnum. Þannig að nægta-
borðið er frá Böðvari komið.“
Garðurinn bak við húsið ber
vott um natni og þar kveðst Guð-
rún eiga margar yndisstundir
enda er hún ræktunarkona í víð-
um skilningi orðsins.
gun@frettabladid.is
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Guðrún hefur búið í Guðrúnarhúsi í 21 ár
og er þar býsna rótföst.