Fréttablaðið - 29.09.2005, Page 48
Guðmundur Páll Jónsson
hefur verið oddviti fram-
sóknarmanna í bæjar-
stjórn Akraness í ellefu
ár. Hinn 1. nóvember
tekur hann við starfi Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra,
sem verður hafnarstjóri
Reykjavíkurhafnar. „Það
kom mér ekki á óvart að
sóst væri eftir Gísla Gísla-
syni í þetta starf. Hann er
okkar hæfasti maður til að
takast á við þetta verk-
efni,“ segir Guðmundur
Páll, sem hefur starfað
með Gísla sem bæjarfull-
trúi í ellefu ár. „Ég þekki
mjög vel til allra verka
Gísla og fyrir hvað hann
stendur,“ segir Guðmund-
ur og telur það gott vega-
nesti fyrir sig inn í starfið.
Guðmundur hefur unn-
ið hjá HB Granda og áður
Haraldi Böðvarssyni í um
nítján ár og lengst af sem
starfsmannastjóri. Hann
fær nú tímabundið leyfi
frá störfum meðan hann
sinnir bæjarstjórastarfinu
en hann er ráðinn út kjör-
tímabilið. Hvað verður
eftir það vill Guðmundur
ekki upplýsa heldur segir
tímann verða að leiða það
í ljós.
Guðmundur hlakkar
mikið til að takast á við
starfið. „Sveitarstjórnar-
vettvangurinn er mjög
spennandi vettvangur.
Samfélagið er þróttmikið
og mikið að gerast. Til
dæmis hafa aldrei fleiri
hús verið byggð en á
þessu ári. Mitt hlutverk er
bara að fylgja eftir þess-
um mikla þrótti og krafti,“
segir Guðmundur Páll,
sem hefur mikinn áhuga á
íþróttum og þjóðmálum.
Hann segir ljóst að ekki sé
hægt að búa á Akranesi án
þess að hafa áhuga á fót-
bolta. „Ég er alæta á
íþróttastarf og íþróttalíf,“
segir Guðmundur, sem
æfði og keppti í sundi á
sínum yngri árum. „Ég er
Skagamaður út í gegn
enda fæddur og uppalinn
á Akranesi,“ segir Guð-
mundur, sem segir ótrú-
lega gott að búa á Akra-
nesi sem íþróttaáhuga-
maður og -iðkandi og sem
faðir ungra barna sem
stunda íþróttir.
Guðmundur og eigin-
kona hans hafa fallið fyrir
golfíþróttinni eins og svo
margir. „Okkar fyrsta
reynsla er mjög áhuga-
verð og gott að geta átt
sameiginlegar stundir og
áhugamál,“ segir Guð-
mundur og telur mjög
heppilegt að hjón fari
saman á golfnámskeið. ■
32 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
SILVIO BERLUSCONI (1936-)
á afmæli í dag.
GUÐMUNDUR PÁLL JÓNSSON VERÐUR BÆJARSTJÓRI Á AKRANESI
Alæta á íþróttir
„Aðeins ég get snúið gæfuhjólunum
þessu landi í vil.“
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, er jafnan kok-
hraustur en ófáum þykir hann ekki vandur að meðulum.
timamot@frettabladid.is
Á þessum degi árið 1997 staðfestu breskir vísinda-
menn að þeim hefði tekist að sýna fram á tengsl
milli heilasjúkdóma í mönnum og kúm. Þá sögðu
þeir líklegt að 21 einstaklingur í Bretlandi sem hafði
fengið nýtt afbrigði af Creutzfeldt-Jakob heilasjúk-
dómnum hefðu líklega veikst eftir að hafa borðað
nautakjöt sýkt af kúariðu.
Vísindamennirnir töldu sig einnig geta sýnt fram á
að líkurnar á því að sýkjast af Creutzfeldt-Jakob yltu
að einhverju leyti á erfðasamsetningu fólks. Um 38
prósent landsmanna í Bretlandi voru með erfða-
samsetningu sem gerði þá líklegri til að fá sjúk-
dóminn en ekki neyttu þeir sýkts kjöts.
Kúariða greindist fyrst í Bretlandi árið 1986 og ára-
tug síðar vöknuðu grunsemdir um tengsl veikinnar
og Creutzfeldt-Jakob sjúkdómsins. Evrópusamband-
ið lét setja útflutningsbann á breskt nautakjöt í kjöl-
farið. Árið 1998 leiddi
opinber rannsókn í
ljós 3.253 tilfelli af
kúariðu og að átján
hefðu látist úr Creutz-
feldt-Jakob eftir að
hafa borðað sýkt kjöt.
Kúariða hefur hingað
til ekki valdið nærri
eins miklum búsifjum
og til dæmis gin- og
klaufaveiki, en hefur
engu að síður vakið athygli og ótta meðal manna
vegna smithættunnar og hinna hræðulegu afleið-
inga sem hún hefur í för með sér. Kúariða og
Creutzfeldt-Jakob veldur heilarýrnun sem leiðir að
lokum til dauða.
ÞETTA GERÐIST > 29. SEPTEMBER 1997 MERKISATBURÐIR
1567 Húgenottar reyna að ræna
Karli IX Frakklandskonungi
í trúarbragðastríðunum.
1906 Landssími Íslands tekur til
starfa við hátíðlega athöfn.
1938 Adolf Hitler, Benito Mus-
solini, Édouard Daladier
og Neville Chamberlain
undirrita Münchenarsam-
komulagið.
1944 Sovétmenn ráðast inn í
Júgóslavíu.
1974 Auður Eir Vilhjálmsdóttir
tekur prestvígslu fyrst ís-
lenskra kvenna.
1978 Jóhannes Páll I páfi deyr
eftir aðeins 33 daga í
embætti.
1988 Bandaríkjamenn skjóta
fyrstu mönnuðu geimferj-
unni á loft eftir Challenger
slysið hálfu þriðja ári fyrr.
Tengsl kúari›u og Creutzfeldt-Jakob sta›fest
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér a› ofan
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma 550 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Einarsdóttir
fyrrverandi kaupmaður, Hofteigi 30,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 30.
september klukkan. 15.00.
Elísabet Erlingsdóttir Atli Ásbergsson
Hörður Erlingsson Erna J. Sigmundsdóttir
Oddi Erlingsson Sigurborg E. Billich
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona, dóttir, móðir,
tengdamóðir, systir, mágkona, amma og
langamma,
Kristín Hallsdóttir
Kedjevägen 5, Örebro, Svíþjóð,
sem lést miðvikudaginn 14. september, verður
jarðsungin þann 30. september í Mäster Olofs kapell,
Örebro, Svíþjóð.
Kjell Söderberg
Guðný Ólafía Stefánsdóttir
Hallur Viggósson Linda Sigurðardóttir
Kristrún Birna Viggósdóttir Jón Rafn Einarsson
Dagný Viggósdóttir Óskar Rúnar Samúelsson
Guðni Þór Viggósson Ylva Viggósson
Vernharður Sveinn Vígsteinsson Maria Jannesson
Þórunn Kristín Vígsteinsdóttir Martin Widö
Björn Hallsson Jarþrúður Rafnsdóttir
Edda Hallsdóttir Finnbogi Gústafsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, dóttur, tengdadóttur og
ömmu,
Guðnýjar (Nínu) Jóhannesdóttur
Einhamri (áður Jörundarholti 26), Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness.
Hjörleifur Jónsson
Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir Elvar Trausti Guðmundsson
Lísbet Fjóla Hjörleifsdóttir Gunnar Sigurðsson
Guðrún Hjörleifsdóttir Hilmar Ægir Ólafsson
Fjóla Guðbjarnadóttir
Lilja Helgadóttir
og barnabörn.
!
! "##$
%
&
! Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristín Jónsdóttir
Tjarnarbóli 10, Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 20. september.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
29. september klukkan 15.00.
Reynir Jóhannesson
Elísabet Reinhardsdóttir Sigvaldi H. Ægisson
Reinhard Reinhardsson Karólína I. Guðlaugsdóttir
Stefanía Reinhardsdóttir Khalifeh
og barnabörn.
www.steinsmidjan.is
Afmæli
Þann 5. október verður frú Árbjörg
Ólafsdóttir, Suðurhólum 30, 90 ára.
Í tilefni afmælisins mun hún taka á móti
ættingjum og vinum í safnaðarheimili Fella-
og Hólakirkju sunnudaginn 2. október á
milli klukkan 15 og 17.
AFMÆLI
Sigmundur Guðbjarnason pró-
fessor er 74 ára.
Þórunn Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar, er 61
árs.
Ólafur Örn Haralds-
son, framkvæmda-
stjóri Ratsjárstofnun-
ar, er 58
ára.
Pálmi Gunnarsson
tónlistarmaður
er 55 ára.
Árni Bjarnason, forseti Far-
manna- og fiskimannasambands
Íslands, er 53 ára.
Bera Nordal listfræðingur er 51 árs.
ANDLÁT
Pétur Guðni Kristbergsson,
Brunnstíg 5, Hafnarfirði, andaðist á
Landspítalanum Fossvogi föstudag-
inn 16. september. Útför hefur
farið fram í kyrrþey.
Hulda Guðbjartsdóttir, Elliðavöll-
um 10, Keflavík, andaðist á Land-
spítalanum Fossvogi miðvikudag-
inn 21. september. Útför hefur
farið fram í kyrrþey.
Gísli Viðar Harðarson slökkviliðs-
og sjúkraflutningamaður, Óðins-
völlum 4, Keflavík, lést fimmtudag-
inn 22. september.
Sigríður Rakel Þórarinsdóttir frá
Þernuvík, áður búsett í Akurgerði
34, lést á heimili sínu, Norðurbrún
1, sunnudaginn 25. september.
Franz E. Pálsson, Granaskjóli 1,
Reykjavík, lést á Landspítala
Landakoti mánudaginn 26. sept-
ember.
Aðalbjörg Halldórsdóttir frá
Grenjaðarstað, lést þriðjudaginn
27. september.
JAR‹ARFARIR
13.00 Aðalsteinn Valdimar
Jónsson vélstjóri, Stigahlíð
6, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Grafarvogs-
kirkju.
13.00 Einar Sigurðsson, Hátúni
10b, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogs-
kapellu.
13.30 Valgerður Guðmunds-
dóttir ljósmóðir frá Selja-
brekku, Mosfellssveit, síðar
búsett á Dalvík, verður
jarðsungin frá Dalvíkur-
kirkju.
15.00 Kristín Jónsdóttir, Tjarnar-
bóli 10, Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
BÆJARSTJÓRINN VERÐANDI Guðmundur er Skagamaður út í gegn
enda fæddur og uppalinn á Akranesi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L