Fréttablaðið - 29.09.2005, Page 50
> Við hrósum ...
... Sebastian Alexanderssyni, þjálfara og
markverði Selfyssinga, sem átti
stórbrotinn leik í 29–26 sigri
Selfoss á Þór í gær. Sebastian
varði 30 skot í leiknum,
þar af 3 víti, og skoraði
auk þess síðasta mark
Selfoss í leiknum.
Selfoss hefur komið
mörgum á óvart með
því að næla í 3 stig í
fyrstu 3 umferðunum.
Heyrst hefur ...
... að Olga Færseth, sem lék með ÍBV
undanfarin tvö sumur, gerir sér vonir um
að spila á fasta landinu næsta sumar og
öll helstu liðin á suðvesturhorninu eru
sögð gera hosur sínar grænar fyrir mestu
markadrottningu íslenskrar kvennaknatt-
spyrnu frá upphafi. Nú er að sjá hvaða lið
vinnur kapphlaupið um Olgu.
sport@frettabladid.is
34
> Við veltum fyrir okkur ...
.... hvort Bogdan Kowalczyk viti af því að
Sigurður Valur Sveinsson sé að þjálfa besta
varnarlið DHL-deildar-
innar – lið sem hefur
aðeins fengið á sig
tæpt 21 mark að
meðaltali í fyrstu
þremur umferðum
DHL-deildar karla.
Átta leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Skora› var í fleim
öllum a› leik Liverpool og Chelsea í undanskildum.
Baráttan var í fyrirrúmi
FÓTBOLTI Það var sannkallaður stór-
meistaraslagur á Anfield í Liver-
pool þegar núverandi Evrópu-
meistarar Liverpool og Englands-
meistarar Chelsea gerðu marka-
laust jafntefli í bragðdaufum bar-
áttuleik. Liverpool taldi sig í
tvígang eiga að fá vítaspyrnu en
Masssimo Di Santis dómari frá
Ítalíu var ekki á sama máli. Í fyrra
skiptið virtist Didier Drogba
brjóta á Sami Hyypia og í seinna
skiptið varði William Gallas skalla
frá Jamie Carragher með hendi.
„Við spiluðum betur en Chelsea og
það var hreint með ólíkindum að
við skyldum ekki fá víti í leiknum.
En svona er fótboltinn, stundum
fær minna liðið ekki neitt frá dóm-
urunum,“ sagði Rafael Benitez
knattspyrnustjóri Liverpool.
Það var greinilegt að Jose
Mourinho, knattspyrnustjóri Chel-
sea, lagði leikinn upp með að ná
jafntefli því í lokin tók hann sinn
fremsta mann, Didier Drogba, af
velli og setti Þjóðverjann Robert
Huth miðvörð inn á í hans stað.
Eiður Smári Guðjohnsen sat allan
tímann á bekknum og á því enn
eftir að koma við sögu í Meistara-
deild Evrópu þetta leiktímabilið.
„Vanalega er heimaliðið ósátt með
að ná ekki sigri en mér sýnist sem
þeir séu ánægðir,“ sagði Jose
Mourinho, knattspyrnustjóri Chel-
sea.
Hjá Real Madrid var tvítugur
strákur, Roberto Soldado, hetja
liðsins þegar hann gerði sigur-
mark þeirra gegn Olympiakos í 2-
1 sigri á Bernabeau-vellinum í
Madríd. Fyrra mark Real gerði
Raúl sem var hans 50. í Meistara-
deildinni. Englendingurinn David
Beckham lagði upp bæði mörkin
fyrir heimamenn sem eru þeir sig-
ursælustu í sögu Meistaradeildar-
innar.
Í Mílanó á Ítalíu sigruðu heima-
menn lið Glasgow Rangers frá
Skotlandi með einu marki gegn
engu. Mark Inter gerði David Piz-
arro í fyrri hálfleik. Skömmu áður
hafði Julio Cruz klúðrað víta-
spyrnu fyrir Inter. Í Þrándheimi í
Noregi töpuðu heimamenn fyrir
frönsku meisturunum í Lyon. Eitt
mark skildi liðin að og það gerði
Brasilíumaðurinn Chris á loka-
mínútu fyrri hálfleiks.
Í Þýskalandi fór fram skemmti-
legur leikur þegar Schalke náði
tvívegis að jafna gegn AC Milan
og gera 2-2 jafntefli við ítölsku ris-
ana. Clarence Seedorf gerði fyrsta
mark Milan í leiknum eftir aðeins
22 sekúndur. Annað mark Milan
gerði Andriy Schevchenko. Mörk
Schalke gerðu þeir Sören Larsen
frá Danmörku og Tyrkinn Halit
Altintop.
En aðalsigurvegarar kvöldsins
voru strákarnir í Artmedia frá
Bratislava í Slóvakíu. Þeir gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu fyrrum
Evrópumeistara Porto 3-2 á úti-
velli eftir að hafa lent 2-0 undir.
hjorvar@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
DHL-deild karla í handb.:
VALUR–HAUKAR 29–32
Mörk Vals: Mohamadi Lotoufi 9,
Sigurður Eggertsson 7, Baldvin
Þorsteinsson 6/1, Ingvar Árnason 2,
Kristján Karlsson 2, Hjalti Pálmason 2,
Davíð Höskuldsson 1.
Mörk Hauka: Jón Karl Björnsson 8/2,
Árni Þór Sigtryggsson 7, Freyr Brynjarsson
5, Gísli Jón Þórisson 4, Kári Kristjánsson
3, Andri Stefan 3, Ólafur Björnsson 1,
Arnar Pétursson 1.
FYLKIR–FH 27–22 (12–10)
Mörk Fylkis: Heimir Örn Árnason 8,
Arnar Þór Sæþórsson 6, Hreinn Þór
Hauksson 6, Brynjar Þór Hreinsson 3,
Ingólfur Axelsson 1, Arnar Jón Agnarsson
1, Ásbjörn Stefánsson 1.
Mörk FH: Andri Berg Haraldsson 6, Linas
Kalasauskas 4, Pálmi Hlöðversson 3,
Valur Örn Arnarson 3, Hjörtur Hinriksson
3, Daníel Berg Grétarsson 2, Tómas
Sigurbergsson 1.
FRAM–AFTURELDING 26–21 (14-11)
Mörk Fram: Sergei Serenko 7, Jóhann
Gunnar Einarsson 5, Haraldur
Þorvarðarson 4, Þorri Gunnarsson 3,
Guðjón Drengsson 2, Jón Björgvin
Pétursson 2, Sigfús Sigfússon 2,
Guðlaugur Arnarsson 1.
Mörk Aftureldingar: Ernir Hrafn
Arnarson 7, Einar Ingi Hrafnsson 4, Daníel
Jónsson 2, Hrafn Ingvarsson 2, Haukur
Sigurvinsson 2, Vlad Trúfan 1, Hilmar
Stefánsson 1, Ásgeir Jónsson 1, Magnús
Einarsson 1.
KA–HK 29–29
Tölfræðin barst ekki áður en Fréttablaðið
fór í prentun.
STJARNAN–ÍR 30–38 (15–19)
Mörk Stjörnunnar: Arnar Theódórsson 6,
Björn Friðriksson 5, David Kekelia 5,
Patrekur Jóhannesson 5, Kristján
Kristjánsson 4, Þórólfur Nielsen 3,
Gunnalaugur Garðarsson 2. Jacek Kowal
varði 14 skot.
Mörk ÍR: Ragnar Már Helgason 9, Ólafur
Sigurjónsson 8, Tryggvi Haraldsson 7,
Hafsteinn Ingason 5, Andri Númason 5,
Ísleifur Sigurðsson 2, Þorleifur Björnsson
1, Davíð Ágústsson 1. Gísli
Guðmundsson varði 16 skot.
SELFOSS–ÞÓR AK. 29–26 (17–14)
Mörk Selfoss: Vladimir Duric 9, Ívar
Grétarsson 8, Ramunas Mikalonis 6, Gylfi
Már Ágústsson 3, Hörður Bjarnason 2,
Sebastian Alexandersson 1. Sebastian
Alexandersson varði 30 skot þar af 3 víti.
Mörk Þórs: Rúnar Sigtryggsson 6, Aigars
Lazdins 4, Sindri Haraldsson 4, Arnór Þór
Gunnarsson 3, Heiðar Aðalsteinsson 3,
Sindri Viðarsson 2, Sigurður B.
Sigurðsson 2, Brendan Þorvaldsson 1,
Bjarni Gunnar Bjarnason 1. Shota
Tevzadze varði 16 skot.
ÍBV–VÍKINGUR/FJÖLNIR 33–31 (14–13)
Mörk ÍBV: Mladen Cacic 10, Goran
Kuzmanoski 9, Jan Vtípil 3, Grétar Þór
Eyþórsson 3, Michal Dostalín 3, Ólafur
Víðir Ólafsson 2, Erlingur Richardsson 2,
Davíð Þór Óskarsson 1.
Mörk Víkings: Sverrir Hermannsson 10,
Árni Björn Þórarinsson 9, Björn
Guðmundsson 8, Brjánn Bjarnason 4.
STAÐAN:
FRAM 3 3 0 0 80–67 6
KA 3 2 1 0 87–78 5
HAUKAR 3 2 0 1 80–75 4
ÍR 3 2 0 1 104–89 4
VALUR 3 2 0 1 99–83 4
FYLKIR 3 2 0 1 65–62 4
AFTURELD. 3 1 1 1 73–77 3
SELFOSS 3 1 1 1 81–89 3
HK 3 1 1 1 89–87 3
ÞÓR AK. 3 1 0 2 75–79 2
ÍBV 3 1 0 2 82–107 2
STJARNAN 3 1 0 2 87–85 2
FH 3 0 0 3 64–75 0
VÍK./FJÖL. 3 0 0 3 74–87 0
MEISTARADEILDIN
E-RIÐILL:
SCHALKE–AC MILAN 2–2
0–1 Seedorf (1.), 1–1 Larsen (3.), 1–2
Shevchenko (59.), 2–2 Altintop (70.)
FENERBAHCE–PSV 3–0
1–0 Alex, víti (40.), 2–0 Alex (68.), 3–0
Appiah (90.)
Staðan:
AC MILAN 2 1 1 0 5–3 4
FENERB. 2 1 0 1 4–3 3
PSV 2 1 0 1 1–3 3
SCHALKE 2 0 1 1 2–3 1
F-RIÐILL:
ROSENBORG–LYON 0–1
0–1 Cris (45.)
REAL MADRID–OLYMPIAKOS 2–1
1–0 Raul (9.), 1–1 Kafes (48.), Soldado
(86.).
Staðan:
LYON 2 2 0 0 4–0 6
ROSENB. 2 1 0 1 3–2 3
R. MADRID 2 1 0 1 2–4 3
OLYMP. 2 0 0 2 2–5 0
G-RIÐILL:
LIVERPOOL–CHELSEA 0–0
ANDERLECHT–REAL BETIS 0–1
0–1 Olivieira (69.)
Staðan:
LIVERPOOL 2 1 1 0 2–1 4
CHELSEA 2 1 1 0 1–0 4
REAL BETIS 2 1 0 1 2–2 3
ANDERL. 2 0 0 2 0–2 0
H-RIÐILL:
INTERNAZIONALE–RANGERS 1–0
1–0 Pizarro (49.)
PORTO–ARTMEDIA 2–3
1–0 Lucho Gonzales (32.), 2–0 Diego
(39.), 2–1 Petras (45.), 2–2 Kozak (54.),
2–3 Borbely (74.)
Staðan:
INTER 2 2 0 0 2–0 6
ARTMEDIA 2 1 0 1 3–3 3
RANGERS 2 1 0 1 3–3 3
PORTO 2 0 0 2 4–6 0
Valsmenn töpuðu sínum fyrstu stigum í DHL-deild karla í Höllinni í gær:
HANDBOLTI Haukar unnu mikil-
vægan sigur á Val, 32-29, í DHL-
deildinni í leik sem var jafn og
spennandi lengst af.
Valsmenn byrjuðu betur og
höfðu góð tök á leiknum framan
af. Það virtist taka Haukana
nokkurn tíma að venjast hraðan-
um í leik Valsmanna en þeir röð-
uðu inn mörkunum á upphafs-
mínútunum. Munurinn varð
mestur 4 mörk þökk sé góðri
markvörslu Hlyns Jóhannesson-
ar en Haukar áttu góðan enda-
sprett og minnkuðu muninn í eitt
mark fyrir hálfleik.
Haukar hófu seinni hálfleik-
inn af miklum krafti og mestu
munaði um að Árni Sigtryggsson
vaknaði til lífsins eftir slakan
fyrri hálfleik og skoraði grimmt.
Valsmenn héngu í þeim og jafnt
var á flestum tölum allt þar til 10
mínútur voru eftir. Góður leik-
kafli hjá Haukum kom þeim í
fjögurra marka forskot þegar
fimm mínútur voru eftir og það
reyndist Valsmönnum um megn
að vinna það upp.
Hjá Val var Hlynur Jóhannes-
son sterkur í fyrri hálfleik með
14 skot varin en markvarslan hjá
Val datt niður í seinni hálfleik.
Mohamadi Loutoufi og Sigurður
Eggertsson voru illviðráðanlegir
í sókninni en aðrir skiluðu ekki
nógu miklu.
Haukaliðið náði loks að sýna
sitt rétta andlit eftir tvo slaka
leiki. Birkir Ívar sýndi jafna og
góða markvörslu og þeir Jón
Karl Björnsson, Árni Sigtryggs-
son og Freyr Brynjarsson léku
vel og þá átti Gísli Jón Þórisson
góða innkomu í seinni hálfleik.
- hrm
Íslandsmeistarar Hauka sterkari í lokin
Grétar Sigfinnur Sigurðsson, sem lék
með Val í Landsbankadeild karla í sum-
ar, hefur áhuga á því að vera áfram
leikmaður hjá Val en framtíð hans til
þessa hefur verið óljós þar sem Grét-
ar er einungis á lánssamningi frá
Víkingi, sem komst upp úr 1. deild-
inni í sumar. „Mér hefur liðið vel hjá
Val og vonandi verð ég áfram hjá
félaginu. Eftir að Sigurður Jóns-
son ákvað að hætta sem þjálfari
Víkings fór nú eiginlega minn
áhugi á því að vera hjá fé-
laginu því hann kenndi
mér margt og ég ber
mikla virðingu fyrir hon-
um sem þjálfara. Ég hef
nú ekki trú á því að Vík-
ingur vilji halda mér
óánægðum en félögin
verða að ná samkomulagi um það
hvernig félagaskiptum mínum verður
háttað.“
Grétar stefnir á að verða Íslands-
meistari með Val á næsta tíma-
bili og vonast eftir
því að geta ver-
ið hjá félaginu
að minnsta
kosti eitt ár í
viðbót. „Ég vil
taka
þátt í
því
uppbyggingarstarfi sem nú er hafið að
Hlíðarenda og ég er viss um að við get-
um orðið Íslandsmeistarar á næstu leik-
tíð. En ég stefni á að komast í atvinnu-
mennsku í framtíðinni og svo vil ég líka
komast í landsliðið eins og allir metn-
aðarfullir leikmenn.“
Enginn stjórnarmaður Víkings hafði tal-
að við Grétar um að koma aftur til fé-
lagsins. „Ég hef ekki heyrt í neinum hjá
Víkingi um að koma aftur til baka. Það
þarf ekkert að vera neitt undarlegt þar
sem stjórnin er örugglega að ganga frá
samningamálum við leikmenn og þjálf-
ara. En það væri þægilegt ef málin
myndu skýrast sem fyrst því það er
slæmt að hafa þessi mál í lausu lofti.
Það hlýtur að vera farsælast að fá nið-
urstöðu í þessi mál sem fyrst.“
GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐSSON: VILL EKKI FARA AFTUR TIL VÍKINGS Á NÆSTA SUMRI
Spennandi a› vera áfram me› Valsli›inu
29. september 2005 FIMMTUDAGUR
FYRSTA TAPIÐ Valsmaðurinn Sigurður Eggertsson sést hér skora eitt af sjö mörkum
sínum gegn Haukum í gær en það dugði þó ekki til. RÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÞETTA VAR EKKERT Fyrirliði Chelsea, John Terry, fær hér gult spjald fyrir brot á Xabi
Alonso í leik Liverpool og Chelsea á Anfield í gær. GETTYIMAGES