Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 57
FIMMTUDAGUR 29. september 2005 41
Ráðstefnan er haldin af Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands,
Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School),
Listaháskóla Íslands og Iðntæknistofnun.
Andy Pratt, prófessor
Ágúst Einarsson, prófessor
Hallgrímur Jónasson,
forstjóri Iðntæknistofnunar
Hjálmar H. Ragnarsson,
rektor LHÍ
Mark Lorenzen, prófessor
ATVINNUGREINAR
Ráðstefna um skapandi atvinnugreinar verður haldin í Háskóla Íslands,
Odda stofu 101, laugardaginn 1. október nk. frá kl. 10 til 16.
Erindi ráðstefnunar eru flutt á ensku. Allir velkomnir.
DAGSKRÁ
10.00-10.10 Ávarp ráðherra
Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
10.10-11.30 Skapandi atvinnugreinar - yfirlit
Mark Lorenzen, prófessor í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Umgjörð skapandi atvinnugreina.
Smári S. Sigurðsson, fjármála- og gæðastjóri Iðntæknistofnunar.
Norræna nýsköpunarmiðstöðin.
Ása Richardsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins.
There is no business like show business....
Stjórnandi: Ágúst Einarsson, prófessor í Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands.
11.30-12.30 Þættir innan skapandi atvinnugreina
Andy Pratt, prófessor í London School of Economics.
Auglýsingar, sköpun og stefna stjórnvalda.
Ágúst Einarsson, prófessor í Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Skapandi atvinnugreinar og hagræn áhrif menningar á Íslandi.
Kjartan Ólafsson, prófessor í Listaháskóla Íslands.
Atvinnusköpun í tónlistargeiranum.
Stjórnandi: Gylfi Magnússon, forseti Viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands.
12.30-13.30 Hlé
13:30-15.00 Hönnun
Nicholas O´Keefee, MS, Háskóli Íslands.
Íslenski hönnunarmarkaðurinn.
Tina Brandt Husman, prófessor í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Danski hönnunarmarkaðurinn.
Margrét Sigrún Sigurðadóttir, MS, Háskóli Íslands og CBS.
Tískuhönnun á Íslandi.
Guðbjörg Gissurardóttir, grafískur hönnuður.
Hönnunarvettvangur.
Stjórnandi: Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og rektor Listaháskóla Íslands.
15.15-16.00 Pallborð
Skipta skapandi atvinnugreinar máli fyrir Ísland?
Skilgreiningar, listsköpun, opinber stuðningur og stefna, vaxtarmöguleikar,
samstarf milli landa.
Þátttakendur:
Stjórnandi: Margrét Sigrún Sigurðardóttir, doktorsnemi
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands
H
2
h
ön
nu
n
28. sept. – 2. okt. 2005
Reykjavik Jazz Festival
Í kv
öld
Tíu ungir leiklistarnemar stíga á
svið í Borgarleikhúsinu í kvöld og
frumsýna leikritið Forðist okkur,
sem unnið er upp úr myndasögu-
bókum Hugleiks Dagssonar.
„Þessi húmor er orðinn hluti af
lífi manns í dag,“ segir Stefán Hall-
ur Stefánsson, einn leikaranna. „Við
erum búin að vera svo lengi í þessu
að við erum orðin dofin fyrir því að
þetta geti verið svolítið á grensunni,
en svo fattaði ég það allt í einu núna
fyrir skömmu hvað við erum að
fjalla um.“
Sögur Hugleiks þykja skemmti-
legar, kaldhæðnar, grófar, ljótar,
fallegar, ósmekklegar, gróteskar og
rómantískar, allt þetta í senn og ef-
laust gæti vafist fyrir einhverjum
að setja þær á svið í leikhúsi svo vel
fari.
„Hann Hugleikur skrifaði sjálf-
ur verk upp úr sögunum sínum og
við höfum verið að prófa ýmsar
ólíkar aðferðir til að nálgast þetta
verk hans. Þetta eru í rauninni bara
brandararnir hans í leikrænu formi,
ákveðnar kringumstæður sem við
komum inn í annað hvort rétt á und-
an eða rétt á eftir. Samt er rauður
þráður í gegnum verkið, það er sögð
þarna saga. Brandararnir tengja þá
sögu saman, en svo er það spurning
hvort kemur á undan, hænan eða
eggið, sagan eða brandararnir.“
Auk Stefáns Halls er leikhópur-
inn skipaður þeim Aðalheiði Hall-
dórsdóttur, Birgittu Birgisdóttur,
Dóru Jóhannsdóttur, Halldóru
Malín Pétursdóttur, Jörundi Ragn-
arssyni, Magneu Björk Valdimars-
dóttur, Sveini Ólafi Gunnarssyni,
Vali Frey Gunnarssyni og Víði Guð-
mundssyni.
Hver leikari fer með mörg lítil
hlutverk, en auk þess fara þeir
flestir með stærri hlutverk sem
áberandi eru í verkinu.
„Minn aðalgæi heitir Orri og
hann er metrómaðurinn frá helvíti,“
segir Stefán Hallur. „Hann er bara
siðferðisglæpamaður, hefur enga
siðferðiskennd í rauninni og lifir
eingöngu fyrir útlitið. Hann lifir og
hrærist í yfirborðsmennskunni, er
alltaf tipp topp en á sér mjög inni-
haldslaust líf.“
Sýningin er samvinnuverkefni
CommonNonsense og Nemenda-
leikhúss LHÍ. Leikstjórar eru Stef-
án Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir,
leikmynd og búningar eru í höndum
Ilmar Stefánsdóttur, lýsingu annast
Egill Ingibergsson og hljóðmynd
skapar Davíð Þór Jónsson.
Svolíti› á grensunni
STÖKKTU BARA Sveinn Ólafur Gunnarsson fer með hlutverk Viðars sem lendir á eintali
við Guð í Forðist okkur.