Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 58
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Gunnar Guðbjörnsson ten-
ór og Antonía Hevesi píanóleikari
flytja aríur og ítölsk ljóð eftir Verdi,
Donaudy, Buratti og Cilèa á hádegis-
tónleikum í Hafnarborg.
20.30 Be bop septett Óskars
Guðjónssonar leikur á Djasshátíðar-
tónleikum á Kaffi Reykjavík. Septett-
inn skipa þeir Óskar Guðjónsson og
Ólafur Jónsson á tenórsaxófóna,
Jón Páll Bjarnason og Ómar Guð-
jónsson á gítara, Jóhann Ásmunds-
son á bassa, Pétur Grétarsson á
slagverk og Matthías Hemstock á
trommur.
22.30 Karmelgebach á Djasshátíð
í Þjóðleikhúskjallaranum. Róbert
Reynisson leikur á gítar, Tobias
Schirrer á saxófón, Noko Meinhold
á píanó, Eiríkur Orri Ólafsson á
trompet og Helgi Svavar Helgason
á trommur.
23.00 Kvartettinn Landrover leikur
á klúbbi Djasshátíðar á Póstbarnum.
Japanski víbrófónleikarinn Taiko
Saito og þýski píanólaikarinn Niko
Meinhold leika á miðnæturtónleik-
um Djasshátíðar í Þjóðleikhúskjallar-
anum.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Nemendaleikhús Listahá-
skóla Íslands frumsýnir í samvinnu
við CommonNonsense leikritið
Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson
á litla sviði Borgarleikhússins. Leik-
stjórar eru Stefán Jónsson og Ólöf
Ingólfsdóttir.
29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Fös. 30. september
Lau. 1. október
Lau. 8. október
16. sýn. sun. 02/10 kl. 14 Annie; Solveig
17. sýn. sun. 16/10 kl. 14 Annie; Thelma Lind
18. sýn. laug. 22/10 kl. 15 Annie; Solveig
STÓRA SVIÐ
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Lau 1/10 kl. 14, Sun 2/10 kl. 14,
Sun 9/10 kl. 14, Sun 16/10 kl. 14
WOYZECK - 5 FORSÝNINGAR
Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt.
Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000,-
Í kvöld kl. 20 UPPSELT, Fö 30/9 kl 20
UPPSELT, Lau 1/10 kl 20 (sýning á ensku),
Fi 27/10 kl. 20.HÍBÝLI VINDANNA
HÍBÝLI VINDANNA
Örfáar aukasýningar í haust
Su 2/10 kl. 20, fö 7/10 kl. 20, Su 16/10 kl. 20
SALKA VALKA
fim 15/10 FRUMSÝNING UPPSELT
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
FORÐIST OKKUR
– NEMENDALEIKHÚSIÐ/COMMON NONSENSE
Höf. Hugleikur Dagsson
Í kvöld Frumsýning UPPSELT
Lau 1/10 kl. 20
Su 2/10 kl. 20
MANNTAFL
Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, Fö 14/10 kl. 20,
RILLJANT
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Lau 1/10 kl. 16 aukasýn., Lau 1/10 kl. 20 UPPSELT,
Fi 6/10 kl. 20 UPPSELT, Lau 8/10 kl. 16 UPPSELT,
Lau 8/10 kl. 20 UPPSELT, Su 9/10 kl. 20 UPPSELT,
Sun 16/10 kl. 20 AUKASÝNING
BELGÍSKA KONGÓ
Sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar
Fö 31/9 kl. 20, Lau 1/10 kl. 20
LÍFSINS TRÉ
Fö 21/10 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 22/10 KL. 20, Fi 27/10 kl. 20
Sími miðasölu 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
TVENNU TILBOÐ
Ef keyptur er miði á
Híbýli vindanna og Lífsins tré
fæst sérstakur afsláttur
5. sýn fös. 31 kl. 20 Örfá sæti
6. sýn lau 1. okt kl. 20 Örfá sæti
7. sýn fös 7 okt Nokkur sæti
8. sýn lau 8 okt UPPSELT
9. sýn fös 14 okt
10. sýn lau 15 okt
11. sýn fös 21 okt
12. sýn lau 22 okt
HAFNARFJARÐAR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur
SEPTEMBER
27 28 29 30 31
Smáskáldsagan Manntafl eftir aust-
urríska rithöfundinn Stefan Zweig
hefur heillað unnendur bókmennta
frá því hún kom út um miðbik síð-
ustu aldar. Ég var mjög ungur að
árum þegar ég hlustaði hugfanginn
á útvarpsleikgerð sögunnar sem flutt
var einhvern tíma snemma á sjö-
unda áratugnum. Þá þótti spenn-
andi fjölskylduskemmtun að setjast
fyrir framan útvarpið og hlusta á góð
leikrit.
Þessi magnaða saga tók sér ból-
festu í huga mér og þegar kom fram
á unglingsár greip ég á bókasafninu
lítið brúnt kver sem hafði að geyma
þessa sögu ásamt annarri eftir sama
höfund, flýtti mér með hana heim
og las hana með áfergju. Þá rifjuðust
strax upp fyrstu kynni mín af þessari
sögu og þá orðinn nokkuð eldri með
örlítið meiri skilningi naut ég sög-
unnar til hins ýtrasta. Það var eink-
um þess vegna að ég var fullur til-
hlökkunar að sjá Manntafl lifna á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
Þór Tulinius hefur gert einfalda og
aðgengilega leikgerð upp úr þýðingu
Þórarins Guðnasonar og þótti mér
einkar ánægjulegt og mikil tilbreyt-
ing frá hversdagslegum og raunsæ-
islegum leiktexta sem alla jafna ber
fyrir hlustir manns í samtíma leikrit-
um að heyra fallegar myndlíkingar
og skáldskap í leikhúsinu. Þrátt fyrir
að maður hafi ekki nema mjög tak-
markaða og yfirborðslega innsýn í
heim skáklistarinnar þá er svo sann-
arlega hægt að njóta verksins og sú
spenna sem getur falist í því að tefla
eina skák kristallast einkar vel í þess-
ari litlu sögu.
En hún fjallar ekki bara um mann-
tafl lífsins heldur færir manni heim
sanninn um það hve skammt er á
milli þess að rækta með sér hæfi-
leika sem geta orðið að snilligáfu og
þess að hverfa inn í heim vitfirringar-
innar þaðan sem maður á aldrei aft-
urkvæmt. Margir eru þeir listamenn-
irnir sem feta hið vandrataða einstigi
þarna á milli og margir eru þeir sem
hafa tortímt sjálfum sér þrátt fyrir
snilligáfuna en sem betur fer eru
alltaf til þeir sem skilja eftir sig eitt-
hvað handa okkur hinum meðaljón-
unum til að læra af og gefa okkur
möguleika á að komast þó ekki væri
nema upp að hliðinni á þeim.
Einleikur Þórs Tuliniusar er falleg-
ur, smekklegur og einlægur. Hér er
það handverk leikarans sem mestu
ræður um hvort sýningin heppnast
eður ei. Vissulega er einföld og
smekkvís leikmynd Rebekku Ránar
þénanleg og til þess fallin að styðja
við leikarann og sömuleiðis beiting
ljósanna í hárfínu samspili við lát-
lausa hljóðmynd Davíðs Þórs. En að
öllum sem að sýningunni standa
ólöstuðum er það túlkun leikarans á
sviðinu sem skiptir höfuðmáli.
Þór Tulinius er bæði fær og reynd-
ur leikari og það kann kollegi hans
Hilmir Snær að færa sér í nyt. Hér
eru tveir leikarar að vinna saman þar
sem annar er í hlutverki leikstjórans.
Þessi samvinna skilar sér afskaplega
fallega inn í þessa sýningu og það
sem rís hæst er lýtalaus einlægni
Þórs í túlkun sinni á Dr. B. Þór spinn-
ur hárfínan þráð í gegnum þau þrjú
lög að vera sögumaður, persónan að
segja sögu sína og lifir svo þá at-
burðarás sem gerir Dr. B að þeirri
brothættu persónu sem við sjáum í
byrjun og lok verksins. Inn á milli
dregur hann upp úr skúffu sinni aðr-
ar persónur á borð við nýríka Amerí-
kanann Connor og hinn einþykka
sveitadurg sem á að heita margfald-
ur heimsmeistari í skák.
Þær persónur vekja kátínu áhorf-
andans og er það auðvitað alltaf
þakklátt, en hin erfiða reynsla Dr. B
af einangrunarvist þar sem skynfær-
in eru vísvitandi svelt þar til hann
drekkur í sig skákbókina góðu segja
okkur annars konar sögu af þeim
sem ekki nutu þeirrar náðar að geta
ræktað mannsandann í friðsamlegu
og kærleiksríku umhverfi. Þeirra sem
verða undir í valdabrölti og styrjald-
arátökum óvandaðra manna sem
svífast einskis til að ná markmiðum
sínum hversu afkáraleg sem þau
kunna að vera. Listamennirnir sem
standa að þessari sýningu nálgast
viðfangsefni sitt af virðingu og auð-
mýkt og gera sér ljóst hve dásam-
lega sigra mannsandinn og getur
unnið.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Leiklist
Eftir: Stefan Zweig
Borgarleikhúsið
Samvinnuverkefni Þíbilju og L.R.
Þýðing: Þórarinn Guðnason. Leikgerð:
Þór Tulinius. Leikmynd: Rebekka Rán
Samper. Tónlist: Davíð Þór Jónsson.
Lýsing: Kári Gíslason. Leikstjóri: Hilmir
Snær Guðnason. Leikari: Þór Tulinius
Niðurstaða: Listamennirnir sem standa
að þessari sýningu nálgast viðfangsefni
sitt af virðingu og auðmýkt og gera sér
ljóst hve dásamlega sigra mannsandinn
og getur unnið.
Snilldin og vitfirringin