Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 60
Nú er sá tími að kvikmyndahúsin
eru að hreinsa út af lagernum. Það
styttist í stórmyndir vetrarins og á
þær má ekkert skyggja. Á föstu-
daginn verða fjórar nýjar kvik-
myndir frumsýndar. Þær eru þó
þess eðlis að ekki hefur mikið farið
fyrir þeim í kvikmyndaheiminum.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin fer
enda af stað í dag en hún mun
væntanlega draga eitthvað úr að-
sókn á hinar „hefðbundnu“ myndir.
Það telst þó alltaf til stórtíðindi
þegar Wes Craven frumsýnir nýja
mynd. Hann er maðurinn á bak við
Scream-myndirnar svo ekki sé
minnst á Freddy Kruger. Hans
nýjasta verk heitir Red Eye og
skartar Rachel McAdams í aðal-
hlutverki en hún heillaði Owen
Wilson síðast upp úr skónum í
Wedding Crashers. Myndin segir
frá Lisu Reisert sem er nauðbeygð
til að taka þátt í morði á heima-
varnarráðherra Bandaríkjanna ef
hún vill bjarga föður sínum sem er
í haldi mannræningja. Minnir
söguþráðurinn óneitanlega á Nick
of Time með Johnny Depp en
fingraför Cravens verða eflaust út
um allt.
Það eru þau Diane Lane og John
Cusack sem fara með aðalhlut-
verkin í Must Love Dogs. Segir
myndin frá leikskólakennaranum
Söruh Nolan sem er nýskilin.
Áhugamál fjölskyldu hennar er að
koma stúlkunni á stefnumót en þau
eru flest misheppnuð. Eftir nokkra
stund ákveður Sarah að hún vilji
aldrei fara aftur á stefnumót. Hún
lætur þó tilleiðast að fara á stefnu-
mót þar sem dálætis á hundum er
krafist. Sarah á engan hund en fær
lánaðan einn. Það sem hún veit
ekki er að maðurinn sem hún á að
hitta hefur líka fengið sinn hund
lánaðan.
Knattspyrna hefur á undan-
förnum árum orðið að einni vin-
sælustu íþrótt í heimi og má í raun
líkja uppgangi íþróttarinnar við
„bítlaæði“. Fjölda drengja og
stúlkna dreymir um að feta í fót-
spor Davids Beckham, Ronaldinho
og Thierry Henry. Kvikmyndin
Goal! fjallar um Santiago sem
dreymir um að verða atvinnu-
knattspyrnumaður. Þar sem hann
býr í Los Angeles fyllist drengur-
inn vissu um að þetta sé einungis
draumur. Honum býðst þó óvænt
tækifæri þegar útsendarar
Newcastle koma auga á hann og
bjóða honum samning. Fjöldi
þekktra knattspyrnumanna kemur
við sögu í myndinni, þeirra á með-
al áðurnefndur Beckham og Zida-
ne auk leikmanna Newcastle.
Að endingu verður hér minnst
á barnamyndina Óskar og Jóse-
fínu sem er sjálfsætt framhald
jóladagatalsins vinsæla sem sýnt
var á Stöð 2. Að þessu sinni
kemst Jósefína yfir tímavél sem
getur flutt hana á milli árhund-
ruða eins og ekkert sé. Sögusvið
þessarar myndar er þó fyrst og
fremst miðaldir.
44 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Óskar og Jósefína
Aðeins var kominn einn dómur um
myndina.
Red Eye
Internet Movie Database: 6,7 / 10
Rottentomatoes: 81% / Fresh
Metacritic: 7,2 / 10
Goal!
Ekki voru komnir neinir dómar um
myndina.
Must Love Dogs
Internet Movie Database: 5,9 / 10
Rottentomatoes: 35 % / Rotten
Metacritic: 4,8 / 10
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
(DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM) Mannrán, tímavél og fótbolti
STAR WARS Átta aðilar hafa verið kærðir fyrir að stela eintaki af nýjustu Stjörnustríðs-
myndinni og dreifa henni á vefinn.
You can’t do
this to me,
I’m an
AMERICAN.
Marion er með það á hreinu hver réttindi hennar
eru þegar henni er rænt í Indiana Jones-myndinni
Raiders of the Lost Ark.
bio@frettabladid.is
John Cusack er af mikilli skemmti-
iðnaðarætt. Öll fjölskylda hans lifir
og hrærist í þessum heimi. Það eru
þó einungis hann og systir hans,
Joan Cusack, sem hafa náð að
skapa sér eitthvað nafn.
Hann kom fyrst fram í kvikmynd-
inni Class, þá aðeins sautján ára
gamall. Meðleikarar hans í henni
voru Rob Lowe og Andrew
McCarthy sem báðir voru taldar
miklar vonarstjörnur fyrir
Hollywood. Það mó þó segja að
aðeins Cusack hafi haldið sér í ná-
lægð við toppinn.
Cusack er þessi ólíklega hetja. Per-
sónur hans eru yfirleitt frekar örar
en ákaflega klárar, með munninn
fyrir neðan nefið og sjá lausnir í
hverju horni. Í Grosse Point Blank
lék hann leigumorðingjann Martin
Q. Blank sem sækir endurfundi
skólafélaga sinna til að drepa einn
þeirra. Hann breytti þó algjörlega
um stíl þegar hann gekk til liðs við
Jerry Bruckheimer og lék í hasar-
myndinni Con Air. Sjálfur útskýrði
Cusack val sitt með því að stund-
um yrðu menn að taka fjárhagslega
skynsamar ákvarðanir. Stærsti leik-
sigur Cusacks var þó í kvikmynd-
inni Being John Malkovich en þar
var hann í hlutverki Craigs
Schwartz sem villist inn í heila
Johns Malkovich.
Ferill Cusacks er á stöðugri uppleið
og hefur hann eignast mjög traust-
an aðdáendahóp. Leikarinn er enn
fremur með sína eigin klíku í
Hollywood sem heitir The New
Criminals sem stóð einmitt að
Gross Point Blank.
> Ekki missa af ...
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykja-
vík. Framtak aðstandenda er til fyrir-
myndar þó eflaust séu einhverjir sem
þekki engan af þeim gestum sem hing-
að koma. Þarna gefst okkur tækifæri til
að kynnast
kvikmynda-
gerðarmönn-
um sem hafa
kosið að
standa fyrir
utan mark-
aðsvæðingu og
sölumennsku.
Meðal athyglis-
verðra mynda
má nefna Veg-
irnir, My Sum-
mer of Love og Adam’s Æbler. Þetta er
hátíð sem enginn ætti að láta framhjá
sér fara. Formaður dómnefndar verður
Pawel Pawlikowski.
Óvænta hetjan
!"#!$%&'()*+
,-(&.$!"/!('0
.()"&/! ",1(*$%(,'$
'1"+"*&1$$()#"
22
'()*+&'()*+
,-(&.$!",-(
.()"&/! ",1(*$%(,'$
3
4
3
3
,-(&,-(
$!-"&$!-"
/,$)&,-(
'1"+"*&'1"+"*
$
%
&&
$'($
%
&)
3
4
3
3
,-(&,-(
,-(&/,$)&,-(
,-(&$!-"&$!-"
,-(&.()"&.()"
,-(&'1"+"*&'1"+"*
Átta einstaklingar hafa verið
kærðir af bandarískum yfirvöld-
um fyrir að dreifa ólöglegum upp-
tökum af síðustu Stjörnustríðs-
myndinni en myndin var frum-
sýnd um jólin í fyrra. Degi áður
en Lucas rölti eftir rauða dreglin-
um í Los Angeles gátu netverjar
hlaðið henni niður af netinu.
Samkvæmt málskjölum réttar-
ins í Los Angeles var eintaki af
myndinni rænt frá framleiðslu-
deild í Kaliforníu en talið er að
einn sakborninga hafi unnið þar.
Samkvæmt saksóknaranum í
Los Angeles hefur Albert Valente
verið kærður fyrir stuld frá
vinnustað sínum en hann virðist
vera höfuðpaurinn í þessu máli.
Sex aðrir hafa verið kærðir fyrir
brot á höfundarrétti og Marc
Hoaglin hefur verið kærður fyrir
að dreifa efninu á vefnum.
Hoaglin gæti átt yfir höfði sér
þriggja ára fangelsi ef hann verð-
ur fundinn sekur en réttarhöldin
fara fram í næsta mánuði. Það er
ljóst að kvikmyndagerðamenn
munu fylgjast vel með þessum
málum enda hafa þeir barist ötul-
lega gegn ólöglegum eintökum á
vefnum. ■
Átta kær›ir í
Stjörnustrí›smálinu
CUSACK Hann hefur þótt mikill kvennabósi enda átt í
ástarsambandi við Minnie Driver og Neve Campell.
Cusack hefur alltaf haldið tryggð við fjölskyldu sína sem
kemur reglulega fram í myndum hans.
ÓSKAR OG JÓSEFÍNA Kvikmyndin er sjálfstætt framhald af jóladagatalinu vinsæla sem var sýnt á Stöð 2 síðustu jól.