Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 62
46 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
„Allar mínar bernskuminningar
tengjast mat og á gömlum óskalista
sem ég skrifaði átta ára var mat-
reiðslubók,“ segir matargyðjan
Nanna Röngvaldardóttir, sem í dag
opnar stærsta matarvef landsins,
nefnilega gestgjafinn.is, en Nanna
hefur um árabil starfað sem blaða-
maður Gestgjafans ásamt því að
skrifa matreiðslubækur með eigin
göldróttu og girnilegu matarupp-
skriftum og lostætisfróðleik.
„Í eldhúsinu fór ég barnung að
gera ýmsar tilraunir í eldhúsinu,
sem ekki voru alltaf vinsælar,“
segir Nanna, sem í dag er annálað-
ur kokkur af Guðs náð, þótt hún
hafi aldrei unnið á veitingahúsi.
„En ég er með sjókokkapróf
þótt ég hafi aldrei farið á sjó. Tók
það í menntaskóla til tvöfaldra ein-
inga upp í einingatap vegna slakrar
mætingar í tímum,“ segir Nanna,
sem ásamt ritstjóra Gestgjafans og
forseta Íslands mun opna vefinn í
Ásmundarsafni í dag og ritstýra
upp frá því.
„Þetta er gamall draumur sem
nú verður loks að veruleika. Á vefn-
um er uppskriftabanki með 5.000
uppskriftum, en við munum sífellt
bæta við nýjum og gömlum, enda til
þúsundir úr eldri Gestgjöfum, auk
þess sem ég mun setja inn áður
óbirtar uppskriftir úr eigin safni,“
segir Nanna, sem sjálf hefur aldrei
getað farið eftir mataruppskrift.
„Ég á gífurlegt safn matreiðslu-
bóka og gríp hugmyndir hér og þar,
en hef alltaf leikið af fingrum fram
yfir pottunum. Því var strembið
þegar ég þurfti að venja mig á að
skrifa uppskriftir,“ segir hún
brosmild, en á nýja matarvefnum
mun Nanna svara spurningum,
halda úti matarbloggi og stýra
spjallvef um allt sem tengist mat-
arnautninni.
„Íslendingar hafa æ meiri
áhuga á mat og matarmenningu, og
við alltaf fengið mikið af fyrir-
spurnum, sem eykst stöðugt. Ég
hef alltaf viljað hafa mikil sam-
skipti við fólk um mat og reynt að
bregðast fljótt við þeim fyrir-
spurnum. Ef ég þekki sjálfa mig
reikna ég með að engu skipti hvaða
dagur sé eða klukkan slær; fólk má
alltaf reyna að ná til mín á vefnum.
Það er aldrei að vita nema ég sé við
tölvuna og svari.“
Samhliða opnun vefsíðunnar í
dag kemur út fyrsta bókin í mat-
reiðslubókaflokki Gestgjafans sem
koma mun út nokkrum sinnum á
ári í 100 síðna formi með 45 upp-
skriftum. Að þessu sinni er bókin
um lambakjöt.
„Bókina fá áskrifendur Gest-
gjafans fría í tilefni dagsins, og að-
gang að uppskriftum vefjarins
munu þeir einir hafa, auk greina úr
blaðinu. Hver áskrifandi fær sitt
eigið svæði þar sem hann getur
safnað uppskriftum af vefnum og
skrifað inn nýjar úr eigin ranni. Að
öðru leyti verður aðgangur opinn
með uppskrift, víni og hráefni vik-
unnar, auk aðgangs að spjalli,
bloggi og fleiru, en ekki verður
hægt að kaupa aðgang að síðunni
án þess að gerast áskrifandi að
Gestgjafanum líka.“
thordis@frettabladid.is
NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR, RITSTJÓRI GESTGJAFINN.IS Tímaritið Gestgjafinn opnar í dag stærsta matarvef landsins með yfir
5.000 uppskriftum. Nanna er ritstjóri vefsins og mun verða notendum innan handar með ráðgjöf, spjall, fróðleik og fleira, enda knúin
brennandi þörf fyrir samskipti við aðra um töfra matarlistar og matarlystar.
Gúrkan skorin í litla teninga.
Tómatarnir skornir í helminga, fræin
skafin úr þeim með skeið og þeir
síðan skornir í teninga. Rauðlaukurinn
skorinn í litla bita og paprikurnar
fræhreinsaðar og skornar í teninga.
Öllu blandað saman í skál. Safinn
kreistur úr sítrónunni og hristur
saman við olíu, steinselju, graslauk,
pipar og salt. Hellt yfir grænmetið og
blandað vel. Látið standa nokkra
stund.
Borið fram t.d. sem meðlæti með
grillmat eða steiktu kjöti eða fiski.
1 stór íslensk gúrka
3 íslenskir tómatar, þroskaðir
1 lítill rauðlaukur
1/2 íslensk græn paprika
1/4 íslensk gul paprika, má
vera rauð
1 sítróna
3 msk. ólífuolía
1/2-1 steinseljuknippi, saxað
3-4 msk. graslaukur, saxaður
(má nota vorlauk)
3/4 tsk. nýmalaður pipar,
helst regnbogapipar (fimmlit
piparblanda)
salt
Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
G
RA
2
85
65
06
/2
00
5
gúrkusalsa
Jólabakstur me› ömmu og mömmu
Bjór og snafs þykja góðir meðreiðar-
sveinar í haustkuldanum og víst er að
Faxe Extra Strong, 10% bjórinn frá Faxe,
yljar mönnum hressilega. Má segja að
vegna hins háa alkóhólinnihalds sé hann
bjór og snafs í senn, eins og einn ágætur
maður orðaði það. Þrátt fyrir styrkleik-
ann er Faxe Extra Strong óvenjulega
bragðmildur, hefur ekki remmuna sem
oft einkennir sterka bjóra.
Faxe Extra Strong er nú kominn í nýj-
an búning, hálfgerð víkingaklæði, eins og
aðrir bjórar frá Faxe. Þar leikur litli vík-
ingurinn aðalhlutverk sem tákn Faxe.
Verð í vínbúðum 399 kr. í 50 cl dós
FAXE 10%:
Gó›ur í kuldanum
...........@frettabladid.is
MATGÆÐINGURINN MARGRÉT ELÍSA HARÐARDÓTTIR FEGURÐARDROTNING
> kryddaðu tilveruna ...
...með hreinu og aukefna-
lausu kryddi frá Potta-
göldrum.
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Ég gæti síst verið án matar frá Mexíkó.
Fyrsta minningin um mat? Jólabakst-
ur með ömmu og mömmu stendur
upp úr. Það var alltaf bakað fyrir hver
jól. Hálfmánar með rabarbarasultu
voru í miklu uppáhaldi hjá mér.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Nei. Ég hef lagt það í vana
minn að prófa allan mat allavega einu
sinni. Ég er samt ekkert voðalega hrifin
af ostrum.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Það var máltíð sem ég fékk þegar ég
var úti í San Felipe í Mexíkó. Þar fékk
ég fiskrétt með pico di gallo sem
smakkaðist mjög vel. Eftir á fékk ég að
vita að fiskurinn væri hrár. Eftir þetta
fór ég að borða sushi.
Leyndarmál úr eldhússkápnum? Það
er kryddið herbamare. En það eru
grænmeti og jurtir úr lífrænni ræktun.
Ég nota það mjög mikið við elda-
mennskuna.
Hvað borðar þú þegar þú þarft að
láta þér líða betur? Þá borða ég
súkkulaði. Ég fer yfirleitt niður í Nóa
Siríus og kaupi mér fullt af súkkulaði.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Ég á
alltaf til skyr. Það er nú bara það eina.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju,
hvaða mat myndir þú taka með
þér? Ég myndi taka með mér
„big burrito“. Það er svo rosa-
lega matarmikið. Næstum
heilt kíló.
Hvað er það skrítnasta
sem þú hefur borðað?
Það var kengúrukjöt
sem ég smakkaði úti í
Ástralíu. Það var svolít-
ið svipað kjúklingi á
bragðið. Lyktin var
samt svolítið svipuð
hrossakjöti. Ég held
að ég myndi ekki vilja
smakka það aftur.
Þráði matreiðslubók átta ára
GLENFIDDICH: Skemmtilegt smakksafn
William Grant's var fyrsta fyrirtækið til að
setja maltviskí á almennan markað utan
Skotlands, hið heimskunna viskí Glenfiddich
sem er mest selda maltviskí veraldar. Mest-
allt viskí sem er framleitt er blandað viskí,
oft frá ýmsum brugghúsum. Betri brugg-
húsin höfðu hins vegar alltaf búið til gæða
maltviskí en þau fengust ekki utan
Skotlands fyrr en Grant's setti Glenfidd-
ich á markaðinn árið 1963. Þótti það ákaf-
lega djarfur leikur en það reyndist svo
sannarlega markaður fyrir gæðaviskí. Í
dag er Glenfiddich vinsælasta maltviskí
veraldar.
Þeir sem vilja kynna sér þetta eðalviski
ættu að fjárfesta í smakksafninu Glenfidd-
ich Tasting Collection. Það fæst í Heiðrúnu
og Kringlunni og inniheldur 12 ára Reser-
ve, 15 ára Solera Reserve sem þroskað er í
sjerrítunnum og 18 ára Ancient Reserve.
Verð í vínbúðum 5.990 kr.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A