Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 67
Á sunnudagskvöld voru fyrstu
rokktónleikarnir haldnir í nýja
óperuhúsinu í Kaupmannahöfn.
Það var Nick Cave sem varð þess
heiðurs aðnjótandi að fá fyrstur
rokkara að stíga á svið. Tilefnið
var afhending menningarverð-
launa Friðriks krónprins og konu
hans Mary Donaldsson. Mary sem
er áströlsk eins og Nick Cave gat
því miður ekki sótt tónleikana
vegna óléttu, en hún á von á sér
eftir mánuð. Aðeins voru 1700
miðar seldir á tónleikana og seld-
ust þeir upp á mettíma. Danska
hljómsveitin Swan Lee átti líka að
spila á tónleikunum en þar sem
hún lagði upp laupana daginn áður
hlupu landar þeirra í hljómsveit-
inni Mew í skarðið.
Nick Cave var greinilega ekki
á því að vera penn innan um
prinsinn og aðra hátíðargesti.
Hann arkaði inn á sviðið og barði
á flygilinn í byrjun tónleikanna.
En fyrsta lagið var sýnt í beinni
útsendingu í danska ríkissjón-
varpinu. Síðan tóku við eins og
hálfs tíma tónleikar sem fóru vel í
gesti og ekki síður gagnrýnendur,
en tónleikarnir hafa fengið ákaf-
lega góða dóma í dönskum fjöl-
miðlum. ■
BYRJAÐI MEÐ LÁTUM Áður en tónleikarnir hófust afhenti Friðrik prins kvikmyndaleik-
stjóranum Per Fly verðlaunaféð, 500.000 danskar krónur og verðlaunagrip sem Ólafur
Elíasson hannaði. Nýjasta mynd Per Fly, Drabet, var nýlega frumsýnd í Danmörku en hún
er síðasta myndin í þriggja mynda syrpu sem leikstjórinn fékk verðlaunin fyrir.
Leikkonan Alyson Hannigansem þekktust er fyrir leik
sinn í American Pie mynd-
unum segir aðdáendur sína
vera afar gjafmilda. Einn að-
dáandinn er jafnvel svo gjaf-
mildur að hann gaf henni
hest. „Hún mætti fyrir fram-
an húsið mitt með hestinn
og sagðist vera með send-
ingu handa mér. Ég fór út
og hún sagðist vilja gefa
mér þennan hest,“ segir
Alyson. „Hún var víst
hestaþjálfari og vildi deila
list sinni með mér. Þetta
var afar fallegt af henni en hvar átti
ég að geyma hann? Átti ég að tæma
sundlaugina og hafa hestinn þar? Ég
sannfærði hana um að ég gæti ekki
tekið við hestinum og nú sendir
hún mér reglulega myndir af hon-
um,“ segir Alyson.
Ljóshærða fegurðardísin CharlizeTheron er orðin hundleið á að
fólk geri sér ýmsar hug-
myndir um hana ein-
ungis vegna þess að
hún er falleg. „Þessi hug-
mynd um að fallegar
konur hafi ekki tilfinn-
ingar, finni ekki fyrir
sársauka og skilji ekki
mannlega erfiðleika og
allt sé auðvelt fyrir
þær er algjört
kjaftæði,“ segir
hún reið. „Ég get
ekki breytt útliti
mínu eða setið
og horft á
meðan útlitið
stjórnar lífi mínu
þegar ég veit í
hjartanu að ég er
venjuleg stúlka.“
Nick Cave fyrsti rokkarinn í
n‡ja óperuhúsinu
FRÉTTIR AF FÓLKI