Fréttablaðið - 01.10.2005, Page 16
Enn hefur Ríkisskattsjóri birt töl-
ur um ráðstöfunartekjur lands-
manna. Síðan 1993 hefur ójöfnuð-
ur stöðugt aukist og nú er svo
komið að sá helmingur hjóna á Ís-
landi sem hærri launin hefur, hef-
ur 130 prósent hærri laun en hinn
helmingurinn. Árið 1993 var mun-
urinn 80 prósent.
Launamunur er mældur með
svokölluðu Gini hlutfalli, en því
hærra sem það er, því meiri er
launamunurinn. Nú er svo komið
að launamunur á Íslandi er 31,
mun meiri en á öllum Norðurlönd-
unum, meiri en í Belgíu, Hollandi,
Austurríki, Þýskalandi og Japan.
Boðaðar skattalækkanir ríkis-
stjórnarinnar munu líklegast enn
auka á launamuninn og verður
hann ef til vill svipaður og í
Bandaríkjunum að þeim loknum
en þar er hann 40. Viljum við sam-
félag eins og Bandaríkin? Samfé-
lag þar sem sum fylkin eyða
meiru í rekstur fangelsa en í bæði
framhaldsskóla og háskóla. Þar
sem ungbarnadauði er mestur
meðal vestrænna þjóða. Þar sem
börn frá tekjumeiri heimilum eru
sex sinnum líklegri til að ljúka há-
skólanámi en þau frá þeim tekju-
lægri. Þar sem 40 prósent nýrra
húsa í Kaliforníu eru innan múra
og þar sem hlutfall fátæktar er
mest meðal vestrænna þjóða.
Vilja Íslendingar kannski frek-
ar samfélag eins og það norska?
Þar sem lífsgæðin eru best að
mati Sameinuðu þjóðanna og þar
sem fátæktin er með því minnsta
sem gerist í heiminum. Launa-
munur er einnig dýr. Hann leiðir
til lægri hagvaxtar og eru til
dæmis vaxtarlönd suðaustur Asíu
með lægri launamun en vestræn-
ar þjóðir. Einnig er launamunur
almennt lítill meðal velmegandi
þjóða og eru aðeins þrjár þjóðir af
þeim 30 sem búa við bestu lífs-
gæðin í heiminum með svipaðan
eða meiri launamun en Bandarík-
in. Mestur er launamunurinn í
Afríku þar sem lífskjörin eru
lægst.
Merkilegast er að um þessar
spurningar er ekkert rætt. Þrátt
fyrir að hafa viljandi valdið bylt-
ingu í launamun með breytingu á
skattkerfi, gjafakvóta og einka-
væðingu til vildarvina, hefur rík-
isstjórnin ekki sótt neitt umboð til
þess frá þjóðinni. Reyndar hefur
byltingunni verið að haldið
leyndri að mestu leyti og grein-
ingar á launamun hafa ekki verið
birtar síðan Þjóðhagsstofnun var
lögð niður. ■
1. október 2005 LAUGARDAGUR
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
FRÆG BÖRN FRÆGRA
Bls. 6
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 223. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005
Helgarblað
Bls. 4
Ævintýrið um
Jónínu BenSannleikurinn í sláandi Nærmynd
Syrgir son
sinn og
eiginkonu
i
i
i i
Bls. 30–31
Bls. 32–33
Sjaldan fellur
eplið langt
frá eikinni
Í slagtogi
með eiturlyfja-
smyglurum Bls. 26–27
Þórhildur Ólafsútvarpskona:
Íslensku
Playboy-stúlkurnar
Eignaðist
kærustu á
Hrauninu
Hákon
Eydal
Bls. 39
Bls. 52
Bls. 16–19
5 ÁR FRÁ MORÐINU Á EINARI ERNI BIRGISBirgir Birgis syrgir son sinn sem myrtur var af Atla Helgasyni lögfræðingi. Í opinskáu viðtali viðHelgarblað DV lýsir hann reynslu sinni og sorginnisem heltók hann og konu hans. Hún lést úr krabbameini í sumar.
Mennirnir í lífi
Svölu Björgvins
D
V
-M
Y
N
D
V
A
LLI
5 ár liðin
frá morðinu
á Einari
Erni Birgis
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, hefur verið mikið
í umræðu manna á meðal þessa
vikuna. Styrmir átti í samskiptum
við Jónínu Benediktsdóttur vegna
deilu hennar og Jóns Ger-
alds Sullenberger við stjórn-
endur og eigendur Baugs. Í
ljós kom að Styrmir lagði
hönd á plóg í aðdraganda
málsins og hafa af því
spunnist miklar umræður
sem óþarft er að endurtaka
hér.
Styrmir hefur lengi verið
einn mesti þungavigtarmað-
ur í íslenskri fjölmiðlun sem
ritstjóri Morgunblaðsins,
sem lengi vel bar höfuð og
herðar yfir aðra prentmiðla
landsins. Í raun var það svo
á tímabili að blaðið réði al-
gjörlega ferðinni á mark-
aðnum og Mogginn jafn
sjálfsagður partur af dag-
legu lífi þorra þjóðarinnar
og að nótt tæki við af degi og
dagur af nótt.
Styrmir er stúdent frá
Menntaskólanum í Reykja-
vík árið 1958 og lauk lög-
fræðinámi frá Háskóla Ís-
lands árið 1965. Það sama ár
hóf hann störf á Morgun-
blaðinu og varð aðstoðarrit-
stjóri þess í byrjun árs 1971
og ritstjóri síðari hluta árs
1972. Hann hefur því unnið á
blaðinu í fjóra áratugi, þar
af rúma þrjá sem æðsti maður rit-
stjórnarinnar.
Styrmir hefur alla tíð verið mik-
ill áhugamaður um stjórnmál og
margir þeir sem kynntust honum
ungum töldu að hann myndi verða
einn af forystumönnum Sjálfstæð-
isflokksins. Hann var formaður
Heimdallar 1963 til 1966 og sat í
stjórn SUS. Starf ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík var fjölbreytt
undir stjórn Styrmis og var meðal
annars tekist á um varnir landsins
og hækkun skyldusparnaðar svo
dæmi séu tekin. Styrmir hefur síð-
an skrifað mikið um mikilvægi
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
á síðum Morgunblaðsins.
Vorið 1966 er Styrmir í níunda
sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórnarkosning-
unum á eftir Birgi Ísleifi Gunnars-
syni. Sjálfstæðisflokkurinn heldur
meirihluta en nær ekki nema átta
mönnum inn í borgarstjórn – miss-
ir einn borgarfulltrúa – og verður
Styrmir varaborgarfulltrúi. Síðar
segir hann af sér þegar hann flytur
í Kópavog, þar sem hann hefur
búið síðan.
Eiginkona Styrmis er Sigrún
Finnbogadóttir, en foreldrar henn-
ar, Finnbogi Rútur Valdimarsson
og Hulda Dóra Jakobsdóttir, voru
mikið forystufólk í bæjarmálum
Kópavogs. Finnbogi Rútur var
bróðir Hannibals Valdimarssonar,
en mikil vinátta er á milli Jóns
Baldvins sonar Hannibals og
Styrmis.
Sú vinátta var um tíma tor-
tryggð í hörðum kjarna Sjálfstæð-
isflokksins, sem fannst sitt gamla
málgagn Morgunblaðið hallt undir
Alþýðuflokkinn undir forystu Jóns
Baldvins. Styrmir hefur sjálfur
lýst því yfir að mjög köldu hafi
andað milli ritstjóra Morgunblaðs-
ins og forystu Sjálfstæðisflokksins
eftir að Davíð tók við sem formað-
ur flokksins. Snerust átökin meðal
annars um gjaldtöku af útgerðinni
fyrir að nýta auðlindina í sjónum.
Þótt margir hafi gert ráð fyrir
að Styrmir færi í pólitík er vart
hægt að segja að hann hafi stigið
stórt skref burt frá þeim velli. Rit-
stjórastóll Morgunblaðsins var
ráðherraígildi í Sjálfstæðisflokkn-
um. Staða Styrmis var því ein af
lykilstöðunum í valdakerfi flokks-
ins. Síðustu árin hefur verið lögð
meiri áhersla á sjálfstæði blaðsins
gagnvart flokknum en engum dylst
að Styrmir Gunnarsson hafði
mikil áhrif inn í flokkinn.
Frá því að Styrmir hóf störf
á Morgunblaðinu hefur hann
verið vakinn og sofinn yfir út-
gáfu blaðsins. Enn í dag fylgist
hann náið með fréttaskrifum
og hefur góða yfirsýn yfir öll
mál. Hann þykir hafa mikla
innsýn í þjóðmálin og góða til-
finningu fyrir því sem máli
skiptir. Enginn efast um hæfi-
leika Styrmis til að stýra Morg-
unblaðinu og fá það út úr blaða-
mönnum sem þarf til að búa til
gott blað.
Hins vegar þykir Styrmir
ekki mikill valddreifingarmað-
ur á ritstjórninni. Hann hefur
alla þræði í hendi sér og blaða-
menn blaðsins kvarta stundum
undan miðstýringaráráttu á
ritstjórninni.
Þá hefur Styrmir í gegnum
tengslanet sitt oft búið yfir upp-
lýsingum sem ekki hafa ratað
inn í blaðið og ekki orðið að
fréttum. Gildir þetta meðal ann-
ars um hræringar í viðskiptalíf-
inu, en Styrmir vissi um allar
slíkar hræringar á árum áður.
Kvað svo rammt að því að fyrir-
tækjakaup og sameiningar voru
í einhverjum tilvikum bornar
undir ritstjóra Morgunblaðsins og
beðist blessunar hans.
Breytingar á eignarhaldi helstu
fyrirtækja landsins hafa þó orðið til
þess að viðskiptalífið sækir ekki
lengur blessun á ritstjórn Morgun-
blaðsins í sama mæli og áður var.
Styrmir hefur heldur ekki legið á
því að honum hugnast einstakir
kaupsýslumenn misjafnlega og hef-
ur í leiðurum fagnað sérstaklega
framtaki sumra þeirra, meðan aðrir
hafa verið taldir miður til þess falln-
ir að eiga og reka tiltekin fyrirtæki.
Þetta sýnir líka að Styrmir hef-
ur notið trausts bæði viðmælenda
og starfsmanna Morgunblaðsins.
Hann er vinur vina sinna. Starfs-
fólkið hefur getað leitað til hans
með vandamál sem koma upp og
reyna hann og aðrir yfirmenn að
leysa úr þeim. Undir hans stjórn
hefur verið lögð áhersla á að
starfsfólk sinni fjölskyldu sinni
fyrst og vinnunni svo. Með það að
leiðarljósi verði Morgunblaðið gott
blað unnið af góðu starfsfólki.
MAÐUR VIKUNNAR
Steig ekki langt
frá pólitíkinni
STYRMIR GUNNARSSON
RITSTJÓRI MORGUNBLAÐSINS
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
–
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON
VERKFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
LAUNAMUNUR
Launamunur á Íslandi