Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 24
Það er ekki erfitt að ímyndasér hvers vegna Beirút, höf-uðborg Líbanons, var allt fram á áttunda áratuginn kölluð París Mið-Austurlanda. Borgin var miðstöð fjármála- og við- skipta í heimshlutanum og sam- búð ólíkra trúar- og þjóðfélags- hópa – þótt oft væri hún stirð – tryggði fjölskrúðugt mannlíf. Svo dundi ógæfan yfir. Um miðjan áttunda áratuginn sauð upp úr á milli kristinna íbúa landsins og múslima vegna deilna um veru palestínskra flótta- manna. Næstu fimmtán árin log- aði Líbanon í átökum, þjóðfélagið var gjörsamlega stjórnlaust og er- lend ríki á borð við Ísrael, Íran, Sýrland og Bandaríkin blönduðu sér í stríðið með beinum eða óbeinum hætti. Síðustu fimmtán árin hefur verið friðsamlegra í landinu en til skamms tíma hélst sá friður einungis vegna hersetu og margvíslegra ítaka Sýrlend- inga. Í kjölfar morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráð- herra, í febrúar síðastliðnum reis stór hluti þjóðarinnar upp gegn Sýrlendingum og þegar alþjóðleg- ur þrýstingur bættist við hafði herlið þeirra sig á brott. Það eru því spennandi en óvissir tímar framundan hjá Líbönum, því um leið og sjálfstæði landsins hefur aukist hefur ólgan gert vart við sig á ný. Iðandi mannlíf Andrúmsloftið í Beirút er reyndar sérstaklega vingjarnlegt og þar er fátt sem minnir á stríð – nema kannski kúlnagötin sem eru á býsna mörgum húsum. Glæpa- tíðni er þar með minnsta móti og erlendir ferðamenn eru án efa mun öruggari þar en í mörgum borgum Vesturlanda. Einna helst eru það bílarnir og bifhjólin sem þjóta í allar áttir sem túristarnir verða að gæta sín á. Gestrisni og hjálpfýsi heimamanna virðast hins vegar engin takmörk sett, þeir veita greinilega höfðinglegar móttökur hverjum þeim sem kær- ir sig kollóttan um fréttaflutning- inn og heimsækir landið. Enda þótt mannskætt sprengju- tilræði hafi verið framið í borginni kvöldið áður en ég kom þangað virtist almenningur ekki láta það raska ró sinni, enda ýmsu vanur. Alls staðar var ys og þys, kaffihús- in full af fólki reykjandi vatnspíp- ur og þambandi límonaði í hitan- um. Við grýtta strandlengjuna gættu unglingar sem svömluðu í sjónum sín á því að flækjast ekki í önglum stangveiðimanna sem renndu fyrir smáfisk í gruggugum sjónum. Þrátt fyrir fjörið er við- búnaðurinn samt aldrei langt und- an. Lögreglumenn með stóra sjálf- virka riffla voru á hverju strái og vopnaður vörður er yfirleitt við stofnanir á borð við opinberar skrifstofur og banka, jafnvel stöku íbúðarhús. Til að geta gengið fram hjá þinghúsinu verða vegfarendur að leyfa lögreglu að gramsa í tösk- um sínum og húsakynni Samein- uðu þjóðanna, stofnunar sem mað- ur hefði búist við að nyti vinsælda og trausts, eru umkringd sandpok- um og þangað fær enginn að fara nema að hann geti sannarlega sýnt fram á lögmætt erindi. Sýrlensk ítök enn til staðar Skýringin á þessum ráðstöfunum við bygginguna er í sjálfu sér skiljanleg því um þessar mundir rannsakar nefnd á vegum Samein- uðu þjóðanna morðið á Rafik Hariri. Á grundvelli rannsókna nefndarinnar voru fjórir menn handteknir fyrir um mánuði síð- an. Þeir gegndu allir mikilvægu hlutverki í öryggiskerfi landsins, leyniþjónustu eða her, og allir höfðu þeir náin tengsl við Sýr- landsstjórn, tengsl sem Hariri barðist fyrir að skorið yrði á. Þótt herlið Sýrlendinga hafi haft sig á brott úr landinu er ljóst að ítök þeirra eru enn mikil. Emile Lahoud, forseti Líbanons, er hall- ur undir ráðsherrana í Damaskus og þeir sem voga sér að troða þeim um tær eiga ekki von á góðu. Þessu komst blaðakonan May Chi- diac að í síðustu viku, en eftir að hún ræddi opinskátt um möguleg- an hlut sýrlensku leyniþjónust- unnar í morðinu á Hariri í sjón- varpsþætti var sprengju komið fyrir undir bílsstjórasætinu í bif- reið hennar. Hún slasaðist alvar- lega í tilræðinu. Hetjan Hariri Í þeim hluta Beirút þar sem múslimar eru fjölmennir er Hariri nánast haldið í dýrlinga- tölu. Alls staðar hanga myndir af forsætisráðherranum fyrrver- andi, og oftast er Saad, sonur hans á myndunum líka. Saad leiddi flokk föður síns til sigurs í þing- kosningunum í júní og binda menn miklar vonir við að hann feti í fótspor föður síns. Sú mikla uppbygging sem átt hefur sér stað í Beirút síðastliðinn áratug er jafnframt Hariri að stórum hluta að þakka en mið- borgin sem lögð var í rúst á styrj- aldarárunum hefur verið byggð upp nánast frá grunni. Hariri hafði forgöngu um að stofna fyrir- tæki sem sjá átti um alla upp- byggingu á svæðinu og voru hlut- hafar í því þeir sem áttu fasteign- ir og lóðir í miðborginni fyrir borgarastríðið. Hariri var reynd- ar beggja megin borðsins því hann var sjálfur stærsti hluthaf- inn og auðgaðist verulega. Horft fram á veginn Þrátt fyrir uppganginn er efna- hagur landsins enn í lamasessi. 18 prósent vinnufærra manna eru atvinnulaus og tæpur þriðj- ungur þjóðarinnar býr við fá- tæktarmörk á meðan lítill hluti landsmanna á umtalsverð auð- æfi. Tíu milljónir Líbana búa er- lendis en aðeins fjórar í sjálfu landinu. Auk þeirra dvelur ein milljón erlendra verkamanna í landinu og ekki má gleyma 500.000 Palestínumönnum sem búa þar í flóttamannabúðum. Það er erfitt að segja hvernig mál munu þróast fyrir þetta litla og stríðshrjáða land á næstu miss- erum enda er staðan þar flókin. Sú þjóð sem við mér blasti þá daga sem ég dvaldi þar virtist hins veg- ar einhuga um að horfa fram á veginn og byggja upp samfélag sáttar og samlyndis í stað þess að festast í vítahring hefndarinnar. Vonandi verður henni að ósk sinni. 24 1. október 2005 LAUGARDAGUR Ímynd umheimsins af Líbanon hefur veri› allt önnur en jákvæ› sí›asta aldarfjór›unginn. Sjálfsagt er fla› engin fur›a flví um árabil geisa›i bló›ug borgarastyrjöld í landinu. fiótt fri›ur hafi komist á fyrir fimmtán árum er sta›an enn ótrygg. Sveinn Gu›marsson komst hins vegar a› raun um a› á bak vi› fréttirnar b‡r litrík fljó› í gullfallegu landi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S VE IN N G U Ð M AR SS O N VIÐ PÖNNUNA Líbanskur matur er annálaður fyrir gæði. Hvort sem um er að ræða ódýrt manaeesh bi-zaatar á götuhorni eða kræsingar á veitingahúsi bráðnar allt uppi í manni. ÓHUGNANLEGUR MINNISVARÐI Holiday Inn hótelið var opnað í miðborg Beirút rétt áður en borgarastyrjöldin skall á. Háreist bygg- ingin varð eftirlætishreiður leyniskyttna sem höfðust við á þaki hennar. Linnulaus eldflauga- og fallbyssuskothríð dundi á byggingunni í staðinn. Ekki er vitað hver verða afdrif þess, sumir vilja taka það aftur í notkun en aðrir vilja að það verði rifið. DÝRLINGAR Í Hamra-hverfinu hanga myndir af Hariri-feðgunum á hverju horni. Á STRÖNDINNI Múslimakonur láta ekki strangar reglur um klæðaburð stöðva sig í að njóta veðurblíðunnar. Beirút getur líka brosa›
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.