Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 31
3LAUGARDAGUR 1. október 2005 Hyundai Getz kom nýr á markað síðla árs 2002 og hefur síðan selst í meira en 550 þúsund eintökum. Hann er því orðinn einn söluhæsti bíllinn frá Hyundai í Evrópu, enda markaði tilurð hans sókn Hyundai inn á þann markað. Á bílasýningunni í Frankfurt á dögunum var kynnt ný útgáfa af bílnum sem væntanleg er hingað til lands í nóvember. Farið er varlega í breytingar á heildarsvip bílsins en þær breytingar sem gerðar eru miða að því að ná fram stílhreinni og sportlegri áhrifum, auk þess sem mismunandi útfærslur í inn- réttingu bílsins er ætlað að höfða sérstaklega til ungs fólks. Nýi Getzinn verður þannig fáanlegur með annað hvort rauðri eða blárri innréttingu auk þeirrar stöðluðu. Þá hefur innanrýmið fengið stíl- færðara yfirbragð með álburstaðri áferð á miðju mælaborðsins ásamt nýrri hönnun á stýri, gírhnúð og mæli- og stjórntækjum. Að utanverðu eru breytingarnar helstar á framhlið bílsins. Vélar- hlíf, grill og stuðari mynda sam- felldari heild sem ásamt brotum í húddi, innfelldum þokuljósum og nýrri ljósaumgjörð, gefur sport- legra útliti. Þá kemur ný 1400cc 101 hestafla vél í stað 1300cc vélarinn- ar, auk þess sem bíllinn verður í boði með nýrri 62 ha 1100cc vél. Jafnframt verður hann fáanlegur með 1600 cc kraftmikilli vél og ESC-stöðugleikastýringu með spól- vörn. Nýi Getzinn er með innbyggða árekstravörn, fjóra loftpúða og af- tengingu fyrir farþegapúðann að framverðu. ■ Kia-jeppar eru bestir í sínum flokki. Ánæg›ir eigendur Kia Kia Sportage og Kia Opirus hlutu hæstu einkunnir í sín- um flokkum í nýrri könnun. Eigendur nýrra bíla í Bandaríkj- unum gáfu jeppunum Kia Sport- age og Kia Opirus hæstu ein- kunnir í sínum flokkum í könnun JD Power and Associates fyrir árið 2005 í rannsókn sem lýtur að frammistöðu, notagildi og skipu- lagi. Þessar niðurstöður voru birtar fyrir skömmu. Sportage og Opirus hlotnast því fyrstum bíla frá Kia útnefn- ing sem bestir í sínum flokki í þessari árlegu könnun. Leitað var til 115.000 nýrra bíleigenda á fyrsta þriggja mánaða tímabilinu sem þeir áttu bíl sinn og þeir beðnir um að meta ánægju sína (eða óánægju) með tilliti til átta skilgreindra þátta, útlitsfrá- gangs, þæginda og notagildis, vélar og gírkassa, aksturseigin- leika, stjórnunar og hemlunar, sæta, stjórntækja og mæla, hitun- ar, loftræstingar og kælingar auk hljómflutningskerfis. ■ Nýjum Hyundai Getz svipar mjög til fyrirrennarans í útliti en er þó heldur sportlegri. Sportlegri Hyundai Getz Nýr Hyundai Getz er væntanlegur hingað til lands í nóvember. verðlaun } Forester fær verðlaun FORESTER 2,5XT VALINN Í HÓP 5 BESTU JEPPA ÁRSINS 2005 AF TÍMARITINU CAR AND DRIVER. Forester 2,5XT var valinn besti smájeppi ársins 2005 af Car and Driver í valinu „2005 5 Best Trucks“, annað árið í röð. Í umsögn kemur meðal annars fram að forþjöppuvélin í Forester 2,5XT drífi hann í hundraðið á um 5,3 sekúndum sem sé með því besta sem þekkist í flokki smájeppa. Ingvar Helgason hefur um langt árabil selt Subaru Forester. Í sept- ember kom á markað nýr Forest- er hér á Íslandi. Um er að ræða nýtt straumlínulagaðra módel sem hefur kraftmeiri vél en áður. Fiesta ST150 er 8,4 sekúndur úr kyrrstöðu í hundrað. Sportútgáfa af Fiestu Ford Fiesta ST150. Nýverið kynnti Brimborg Ford Fiesta ST150 sem er sannkölluð sportútgáfa af Fiestu með 2,0 lítra vél sem er 150 hestöfl. Það ætti að vera nægilegt afl fyrir bíl sem er rétt um 1.000 kg enda er hann að- eins 8,4 sekúndur úr kyrrstöðu í hundrað. Fiesta ST150 er sportleg í útliti. Bílnum fylgja 16“ felgur, „spoiler- kit“ að neðan, samlit vindskeið að aftan, samlitir hurðarlistar og hurðarhandföng og ST kastarar að framan. Að innan er hann ekki síð- ur glæsilegur. Aksturseiginleikar eru frábær- ir og hefur bíllinn hlotið gríðar- lega góða dóma hjá helstu bíla- blöðum í Evrópu. Sportfjöðrun er í bílnum ásamt sérstökum ST gír- kassa og öflugum bremsum. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.