Fréttablaðið - 01.10.2005, Page 17

Fréttablaðið - 01.10.2005, Page 17
Bollaleggingar Bolli [Thoroddsen], ásamt Heimdelling- um í heild sinni, hefur gengisfellt allt sem heitir alvöru stjórnmál og ung-póli- tík með slíkum vinnubrögðum. Ung- menni eru höfð að fíflum þegar þau eru beðin að skrá sig í tiltekinn stjórnmála- flokk til þess að eins að kjósa í stjórn og fá frían bjór á kosningavöku. Dagur Snær Sævarsson – murinn.is Ekki drepa á vélinni Í vitundarvakningarherferð Reykja- víkurborgar er því haldið fram að loftgæði í Reykjavík eigi undir högg að sækja vegna útblásturs úr púströrum bifreiða og því oftar og meira sem menn drepa á bílum sín- um því minni verði mengunin. Þar með er gefið í skyn að með því að drepa á bíl þegar hlaupið er inn með barn á leikskóla eða við önnur slík tækifæri megi bæta gæði andrúms- loftsins í borginni. Líklega er dæmið af leikskólanum þó frekar óheppilegt því þegar menn sitja börnin sín af við leikskóla eru bílar oft enn kaldir enda leikskólar oft í næsta nágrenni við heimili manna. Við óþarfar kaldræs- ingar fer eldsneyti til spillis og bruni er ófullkominn sem veldur auknum útblæstri óæskilegra efna. Vefþjóðviljinn – andriki.is Málfrelsi ekki í hættu Það hefur verið nefnt sem dæmi um að málfrelsi sé fyrir bí í Bretlandi að öldruðum manni – hinum 82 ára Walter Wolfgang, gyðingi og flótta- manni undan nasistum, félaga í Verkamannaflokknum í 57 ár – var vísað út af þingi Verkamannaflokks- ins í Brighton fyrir að grípa fram í ræðu Jacks Straw utanríkisráðherra. [...] Málfrelsið er þó ekki minna en svo að síðan hafa verið linnulausar fréttir um Walter Wolfgang í öllum fjölmiðlum í Bretlandi og löng viðtöl við hann á sjónvarpsstöðvum þar sem hann segir skoðun sína á flokknum, Blair, kjarnorkuvopnum og Íraksstríðinu. Egill Helgason – visir.is Ekkert öryggisráð Framboðið er svo óvinsælt innan Framsóknarflokksins að það hefur aldrei tekist að ná fram ákvörðun um málið innan þingflokksins einsog Hjálmar Árnason formaður þing- flokksins hefur upplýst. Í röðum Sjálfstæðismanna er uppi enn harðari andstaða. Ungu þing- mennirnar tala hæðnislega um fram- boðið og þungavigtarmaður einsog Einar Oddur sem er vestfirskur dönskumaður hefur kallað framboð- ið „det gale vanvid“. Hann sagði í Kastljósi á dögunum að við hefðum ekkert sérstakt markmið með 2ja ár setu í öryggisráðinu og framboðið væri bara það sem hann kallaði „mont“ og „snobb“. Össur Skarphéðinsson - ossur.hexia.net Sæll Guðni. Í ljósi nýjustu frétta af uppsögn umboðsmanns ís- lenska hestsins sem þú réðst í vinnu þann 1. ágúst 2003 í sam- vinnu við samgönguráðuneytið og utanríkisráðuneytið má ég til með að spyrja hvað þetta ævintýri hefur kostað? Það kemur fram í viðtali við Jónas R. að aðalástæða þess að hann sé að hætta sé vegna þess að ekki hafi náðst samstaða meðal þeirra sem að verkefninu stóðu, um að veita þeim fjármunum sem upphaflega hafi verið áætlað í verkefnið. Hverjir voru þessir fjármunir og í hvað fóru þeir? Í skýrslu sem umboðsmaður sendir frá sér í nóvember 2004 er ekki tekið fram hversu miklum fjármunum sé varið í þetta verk- efni og ekki minnst á það í hvað þeir fóru. Þetta embætti hefur verið frekar lokað og mjög erfitt að að fá upplýsingar eða fréttir af því hvað fráfarandi umboðsmað- ur hefur verið að gera í þágu hestamanna, minnir helst á lokað- an klúbb þar sem menn eru skammaðir ef falast er eftir frétt- um og upplýsingum um verkefn- ið. Umboðsmaður segir það sjálf- ur að starfið hafi falist í ýmiss konar fyrirgreiðslu og þjónustu sem ekki hefur blasað við öllum. Undarlegt að svona stórt verkefni skuli ekki vera með vefsíðu þar sem komið er á framfæri helstu verkefnum og hvað umboðsmaður sé að gera í hverju landi fyrir sig. Þar hefði fólk getað sent inn fyrir- spurnir og fengið svör, það hefði bætt ímynd þessa embættis til muna svo ekki sé minna sagt. Ég hef gagnrýnt þetta embætti frá stofnun þess og oft verið skammaður fyrir, en tek það fram að í öllum mínum skrifum var aldrei ætlun mín að ganga nærri persónu umboðsmannsins og biðst forláts á ef svo hefur verið lesið úr mínum greinum. Hins vegar hef ég gengið nærri emb- ættinu eins og það kemur fyrir sjónir almennings og stend við það. Kæri Guðni, það er kominn tími til að endurskoða þetta emb- ætti í stórum skilningi, eitt stöðu- gildi sem umboðsmaður íslenska hestsins er alls ekki nægilegt til að þjóna öllum þeim sem vilja leita til hans. Ég legg til að þetta embætti verði lagt niður í þeirri mynd sem það er núna og sett á stofn vel upplýst þjónustumiðstöð íslenska hestsins sem hefur tvo til þrjá starfsmenn. Forstöðumaður hennar ætti helst af öllu að vera viðskiptamaður góður með mikla hæfileika varðandi markaðsmál og ópólitískur að öllu leyti. Helst af öllum myndi ég vilja sjá Ragn- ar Tómasson hæstaréttarlögmann sem forstöðumann og Huldu G. Geirsdóttur og nöfnu hennar Gústafsdóttur honum við hlið. Þar væri komið fyrsta flokks fólk sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á hestamennsku, markaðsmálum og samningagerð. Guðni minn hlust- aðu nú og breyttu rétt. Höfundur er ritstjóri vefsíðunn- ar 847.is. Þessa helgi stendur yfir 38. þing Sambands ungra sjálfstæðis- manna í Stykkishólmi undir kjör- orðinu „til sigurs!“. Þetta vígorð okkar ungra sjálfstæðismanna hefur fleiri merkingar en við fyrstu sýn kann að virðast. Þjóðfélagið er frjálsara Í fyrsta lagi vísar slagorðið til þess að hugsjón ungra sjálfstæðis- manna um frelsi einstaklingsins og minnkandi ríkisafskipti hefur sigr- að í hugmyndabaráttunni. Á meðan aðrir flokkar skipta í sífellu um nöfn og kennitölur og þurfa að hylja fortíð sína geta ungir sjálf- stæðismenn stoltir rifjað upp 75 ára sögu SUS og þurfa ekkert að fela. Allan þennan tíma hafa ungir sjálfstæðismenn barist fyrir sömu hugsjóninni og sú hugsjón hefur reynst Íslandi vel. Ríkið hefur að mestu verið dregið út úr verslunar- rekstri og af fjármálamarkaðnum. Skattar hafa verið lækkaðir, losað um margvísleg höft og bönn og einkaframtakið nýtt í auknum mæli í menntakerfinu, ekki síst á háskólastigi. Þótt auðvitað megi alltaf gera betur er ljóst að mikill árangur hefur náðst og þeir eru ekki margir sem krefjast þess að skrefin verði stigin til baka. Hvað er sigur í pólitík? Í öðru lagi kallar yfirskrift þings- ins á vangaveltur um það hvað felist í raunverulegum sigri. Það að sigra í pólitík á ekki bara að snúast um það að komast til valda vald- anna vegna. Þannig pólítík er inni- halds- og tilgangslaus. Raunveru- legur pólitískur sigur á að felast í því að koma hugsjónum sínum til framkvæmda, vinna þeim fylgi og sjá þær hafa áhrif til hins betra á samfélagið. Á SUS þinginu í Stykk- ishólmi setja ungir sjálfstæðis- menn fram sjónarmið sín um það hver næstu skref í íslenskum stjórnmálum eigi að vera. Sigur okkar felst svo í því að vinna skoð- unum okkar fylgi og hafa bætandi áhrif á umhverfi okkar. Samband ungra sjálfstæðismanna á að vera samviska Sjálfstæðisflokksins og uppspretta frjórra hugmynda. Sveitarstjórnarkosningar Að lokum vísar svo vígorð okkar ungra sjálfstæðismanna að sjálfsögðu einnig til næstu sveitarstjórnarkosninga. Sjálf- stæðismenn ætla að sigra í þeim kosningum. Sérstaklega hart verður tekist á í höfuðborginni og mikilvægt að við göngum samhent til leiks og tökumst á við vinstriflokkana með upp- byggilegar og jákvæðar hug- myndir að vopni. Slíkar hug- myndir verða ræddar af þrótti á SUS þinginu í Stykkishólmi. Sjálfur hef ég gegnt for- mennsku í SUS síðastliðin tvö ár og mun ekki vera í framboði til endurkjörs. Ég vil því nota tæki- færið og þakka þeim þúsundum sem komið hafa að starfi SUS undanfarin ár með einum eða öðrum hætti innilega fyrir sam- starfið. Það hefur verið einstak- lega gefandi og skemmtilegt. 17LAUGARDAGUR 1. október 2005 FJÖLSKYLDUHÁTÍ‹ Í BREI‹HOLTI Laugardaginn 1. október, kl. 14.00, göngugötunni Mjódd. Í TILEFNI AF OPNUN fiJÓNUSTUMI‹STÖ‹VAR BREI‹HOLTS Á fiJÓNUSTUMI‹STÖ‹INNI Í fiÍNU HVERFI! Hrund sérkennslurá›gjafi Ragnar framkvæmdastjóri firáinn frístundará›gjafi Hákon sálfræ›ingur fijónustumi›stö› Vesturbæjar, Vesturgar›ur - Hjarðarhaga 45-47 • fijónustumi›stö› Mi›borgar og Hlí›a - Skúlagötu 21 • fijónustumi›stö› Laugardals og Háaleitis - Síðumúla 39 fijónustumi›stö› Grafarvogs og Kjalarness, Mi›gar›ur - Langarima 21 • fijónustumi›stö› Brei›holts - Álfabakka 12 • fijónustumi›stö› Árbæjar - Bæjarhálsi 1 Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, fær› flú allar uppl‡singar um fljónustu og starfsemi borgarinnar og samband vi› flá starfsmenn sem flú flarft a› ná í. Ávarp borgarstjóra Söngur leikskólabarna Lögreglukórinn Kynning á grunnskólum hverfisins Selma Björnsdóttir syngur Vinabandið, hljómsveit eldri borgara í Breiðholti leikur Kassaklifur, danssýning, taekwondo, veitingar ofl. ofl. www.reykjavik.is Til sigurs! HAFSTEINN ÞÓR HAUKSON FORMAÐUR SUS UMRÆÐAN ÞING SAMBANDS UNGRA SJÁLF- STÆÐISMANNA UMRÆÐAN UMBOÐSMAÐUR ÍSLENSKA HESTSINS Opi› bréf til hr. Gu›na Ágústs- sonar landbúna›arrá›herra Allan flennan tíma hafa ungir sjálfstæ›ismenn barist fyrir sömu hugsjón- inni og sú hugsjón hefur reynst Íslandi vel. Undarlegt a› svona stórt verkefni skuli ekki vera me› vefsí›u flar sem komi› er á framfæri helstu verkefnum og hva› umbo›sma›ur sé a› gera í hverju landi fyrir sig. DANÍEL BEN ÞORGEIRSSON AF NETINU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.