Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 60

Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 60
■ ■ KVIKMYNDIR  16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir Óskarsverðlaunamyndina The Giant frá árinu 1956 með James Dean og Elizabeth Taylor í aðalhlutverkun- um. ■ ■ TÓNLEIKAR  15.00 Markús B. spilar á Kaffi Hljómalind, á horni Laugavegs og Klapparstígs.  16.00 Systurnar Þóra Einarsdóttir sópransöngkona og Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari halda tón- leika Salnum í TÍBRÁ tónleikaröð Kópavogs.  17.00 „Á ljúfum nótum“ er yfirskrift einsöngstónleika sem haldnir verða í Kópavogskirkju. Kristín R. Sigurðar- dóttir sópran og Julian Hewlett pí- anóleikari flytja óperuaríur og íslensk sönglög.  17.00 Anna Helga Björnsdóttir leikur einleik með Hljómsveit Tónlist- arskólans í Reykjavík á tónleikum í Neskirkju. Stjórnandi er Gunnsteinn Ólafsson.  20.00 Krakkbot, Markús B., Hall- varður og Amelía og Isidor spila á tónleikum á vegum Grandmothers Records á Kaffi Hljómalind við Laugaveg.  23.00 Dikta verður með tónleika á Grand Rokk.  Brain police spilar á Gauknum ásamt sænsku hljómsveitinni Sub- sonic Mind og norsku hljómsveitinni Zensor. ■ ■ OPNANIR  15.00 Sýning Elínar Hansdóttur verður opnuð í Gallerí BOX á Akur- eyri. Elín sýnir verkið SPOT sem hefur ekki verið sýnt á Íslandi fyrr. Sýningin stendur til 22. október.  15.00 Listvinafélagið Skúli í túni opnar vinnustofusýningu að Skúla- túni 4, þriðju hæð.  19.00 Darri Lorensen opnar sýn- ingu í Bananananas, Laugavegi 80.  Sýning tuttugu og átta félagsmanna Myndhöggvarfélagsins í Reykjavík verður opnuð í Hafnarborg í Hafnar- firði. ■ ■ SKEMMTANIR  23.00 Hljómsveitin Upplyfting verður með dansleik á Kringlukránni.  Garðar Garðars spilar á Catalinu.  Danshljómsveit Friðjóns skemmtir í Vélsmiðjunni á Akureyri.  Hljómsveitin Logar frá Vestmanna- eyjum með stórdansleik í Klúbbnum við Gullinbrú. ■ ■ ÚTIVIST  13.00 Gönguferð verður farin Þing- vallasvæðið á vegum þjóðgarðsins á Þingvöllum. Gengið verður frá Gjá- bakka að þjónustumiðstöðinni á Leirum og farið yfir um þær gjár sem afmarka sigdældina Hrafnagjá að austanverðu og Almannagjá að vest- an. Á leiðinni verður fjallað um sögu og náttúru Þingvallasvæðisins. ■ ■ FYRIRLESTRAR  14.00 Björg Bjarnadóttir sálfræð- ingur heldur fyrirlestur um drauma í þjóðtrú Íslendinga í sal Zontaklúbbs Akureyrar, Aðalstræti 54.  14.00 Viðar Guðmundsson, pró- fessor í eðlisfræði við HÍ, fjallar um eðlisvísindi í tölvum í erindi sínu í fyrirlestraröðinni „Undur veraldar“ í Háskólabíói. ■ ■ SAMKOMUR  14.00 Fjölbreytt dagskrá verður á sviði í göngugötunni í Mjódd í tilefni af Breiðholtsdeginum, sem efnt er til í dag. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. 1. október 2005 LAUGARDAGUR STÓRA SVIÐ KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í dag kl. 14, Sun 2/10 kl. 14, Sun 9/10 kl. 14, Sun 16/10 kl. 14 WOYZECK - 5 FORSÝNINGAR Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt. Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000,- Í kvöld kl. 20 (sýning á ensku), Fi 27/10 kl. 20.HÍBÝLI VINDANNA HÍBÝLI VINDANNA Örfáar aukasýningar í haust Su 2/10 kl. 20, fö 7/10 kl. 20, Su 16/10 kl. 20 SALKA VALKA fim 15/10 FRUMSÝNING UPPSELT NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ FORÐIST OKKUR – NEMENDALEIKHÚSIÐ/COMMON NONSENSE Höf. Hugleikur Dagsson Í kvöld kl. 20 UPPSELT, Su 2/10 kl. 20, Fi 6/10 kl. 20, Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, Lau 8/10 kl. 20 MANNTAFL Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, Fö 14/10 kl. 20, RILLJANT ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Í dag kl. 16 aukasýn., Lau 1/10 kl. 20 UPPSELT, Fi 6/10 kl. 20 UPPSELT, Lau 8/10 kl. 16 Aukasýn Lau 8/10 kl. 20 UPPSELT, Su 9/10 kl. 20 UPPSELT, Sun 16/10 kl. 20 AUKASÝNING BELGÍSKA KONGÓ Sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar Í kvöld kl. 20 LÍFSINS TRÉ Fö 21/10 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Lau 22/10 kl. 20, Fi 27/10 kl. 20 Sími miðasölu 568 8000 midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudag TVENNU TILBOÐ Ef keyptur er miði á Híbýli vindanna og Lífsins tré fæst sérstakur afsláttur Frábær fjölskylduskemmtun! - Fréttablaðið eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN Sun. 2/10 kl. 14 Sun. 16/10 kl. 14 Laug. 22/10 kl. 15 Miðasala í s:551 4700 alla daga frá kl.13-17 í gamla AUSTURBÆJARBÍÓI www.annie.is www.midi.is **** af 5 mögulegum - DV „Abba – hvað er nú það?“ sögðu djasskempurnar Drew Gress og John Hollenbeck við þau Krist- jönu Stefánsdóttur söngkonu og Agnar Má Magnússon píanóleik- ara, sem brugðu sér til New York nýverið til þess að taka upp disk með nokkrum vel völdum popp- lögum í djössuðum útsetningum þeirra sjálfra. Þar á meðal má nefna lög á borð við Abba-lagið Knowing Me Knowing You, Duran Duran- smellinn Save a Prayer og Owner Of a Lonely Heart sem hljóm- sveitin Yes flutti í eina tíð. „Þeim fannst þetta allt saman frábær lög,“ segir Kristjana. „En eftir hvert lag sögðu þeir: Af- skaplega eru þetta skemmtileg lög hjá ykkur krakkar, hvar tókst ykkur eiginlega að grafa þau upp?“ Diskurinn kom út núna seinni partinn í september og heitir Ég um þig. Titillagið er eftir Agnar Má, en önnur lög á plötunni eru gamlir smellir sem allir voru í uppáhaldi hjá þeim Agnari og Kristjönu á sínum tíma. Óhætt er að segja að lögin birtast hlustend- um í gjörsamlega nýjum búningi eftir að þau Kristjana og Agnar hafa farið höndum um þau. „Þetta er búið að vera óskap- lega skemmtilegt ferli og það kom í ljós að mörg þessara laga eru miklu ljóðrænni en maður hélt að þau væru. Það er svo gam- an þegar maður strípar lögin nið- ur þannig að eftir stendur bara laglínan og textinn. Svo setur maður undir bara eitthvað sem manni finnst fallegt.“ Kristjana hefur annars í nógu að snúast þessa dagana, því á morgun syngur hún einsöng með Kirkjukór Langholtskirkju og Stórsveit Reykjavíkur á tónleik- um Djasshátíðar í Langholts- kirkju. „Þetta er útsett fyrir sjötíu manna kór og stórsveit, og svo kemur hann Ole Kock Hansen frá Danmörku að stjórna okkur. Við ætlum að flytja helgisöngvana hans Duke Ellington. Þessi tónlist er ofsalega falleg og líka kraft- mikil á köflum.“ Félagi hennar, píanóleikarinn Agnar Már, er sömuleiðis býsna upptekinn í tengslum við djass- hátíðina, því á morgun leikur hann með oktett Ragnheiðar Gröndal á lokatónleikum djass- hátíðar á Kaffi Reykjavík. Þegar um hægist ætla þau að halda í tónleikaferð um landið með djassaða poppið sitt og enda síðan túrinn í Reykjavík 22. nóv- ember. Þeir Drew Gress bassaleikari og John Hollenbeck trommari verða þó fjarri góðu gamni, en þeir hafa fullan hug á að koma til landsins á næstunni til þess að flytja þessi gömlu dægurlög með Kristjönu og Agnari. ■ AGNAR OG KRISTJANA Þau standa í stórræðum þessa dagana, hafa nýverið sent frá sér djassaðan disk með gömlum poppsmellum og taka auk þess þátt í stórum viðburðum á djasshátíðinni, sem lýkur á morgun. Abba og Duran í djassbúningi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.