Fréttablaðið - 01.10.2005, Side 18
Umsjón: nánar á visir.is
Endurfundur stjórnarmanna
Miklar umræður voru í kringum stjórnarskipti í FL
Group þegar hluti stjórnarmanna hætti í stjórninni
og stórir hluthafar seldu sinn hlut. Í Smáralindinni í
gær sátu þrír stjórnarmenn Flugleiða í hádeginu og
lá vel á þeim, enda margt framundan hjá félaginu.
Þetta voru Magnús Ármann, Sigurður Bollason og
Þorsteinn Jónsson sem ásamt Baugi
keyptu hluti Saxbyggs sem er í
eigu Nóatúnsfjölskyldunnar og
verktakanna Gunnars og Gylfa.
Þar sem núverandi stjórnar-
mennirnir snæddu hádeg-
isverðinn sinn á TGI
Friday’s komu
einmitt Gunnar,
Gylfi, Einar
Jónsson
og
Pálmi
Kristins-
son sem áður fylltu sæti hinna í stjórn FL Group.
Vel fór á með þessum tveimur hópum og
skemmtu menn sér vel yfir þessu „reunioni“ stjórn-
armanna félagsins.
Flýgur fiskisaga
Menn bíða enn spenntir eftir því að til tíðinda
dragi í þreifingum FL Group og Sterling. Ekki sást
til ferða Hannesar Smárasonar og Pálma Haralds-
sonar í Smáralindinni, en þeir leika lykilhlutverkin í
framvindu þess máls. Orðrómur er um það í Dan-
mörku að viljayfirlýsing um kaupin sé klár. Það
hefur ekki fengist staðfest, en margir eru þeirrar
skoðunar að málið sé lengra komið en menn vilja
vera láta. Aðrir telja að langt sé í land að einhverjir
samningar séu klárir. Hverju sem því líður er líklegt
að til tíðinda dragi og líklegra en hitt að FL Group
kaupi Sterling. Ekki er ólíklegt að fleiri flugfélög
séu á matseðlinum og fyrir utan easyJet er ekki
ólíklegt að FL menn horfi einnig til Finnair sem
Burðarás á hlut í.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.630 Fjöldi viðskipta: 302
Velta: 112.955 millj.
+0,37%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
> Heildarvelta á skuldabréfamarkaði í
gær var 16,7 milljarðar króna sem telj-
ast lífleg viðskipti. Það tengist viðbrögð-
um við vaxtahækkun Seðlabankans.
> Actavis hefur keypt ungverska lyfja-
fyrirtækið Kéri Pharma. Kaupverð er
ekki gefið upp. Kéri sérhæfir sig í þró-
un, sölu og markaðssetningu á sam-
heitalyfjum í Mið- og Austur-Evrópu.
> Íslandsbanki hefur gefið út og selt
skuldabréf fyrir 2,5 milljarða króna fyrir
kanadíska matvælafyrirtækið Clearwa-
ter Seafoods.
> Í ár eru fimmtíu ár síðan byrjað var
að gefa út þjóðhagsskýrslu, sem nefnist
Þjóðarbúskapurinn. Á þeim tímamót-
um verður ritið gefið út í nýjum búningi
á mánudaginn.
18 1. október 2005 LAUGARDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,30 +1,23% ...
Bakkavör 43,50 -0,23% ... Burðarás 18,00 +0,00% ... FL Group
14,70 +0,00% ... Flaga 3,60 +0,00% ... HB Grandi 9,20 +0,00%
... Íslandsbanki 15,10 +1,34% ... Jarðboranir 20,60 +0,00% ... KB
banki 596,00 +0,00% ... Kögun 55,80 +0,89% ... Landsbankinn
22,20 +0,45% ... Marel 66,50 -0,30% ... SÍF 4,62 -1,49% ...
Straumur 13,80 +0,73% ... Össur 85,50 +0,00%
Sláturfél. Suðurl. +33,33%
Mosaic +2,21%
Íslandsbanki +1,34%
SÍF -1,49%
Icelandic Group -1,01%
Kögun -0,89%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Gengi krónunnar styrkt-
ist um 2,8 prósent í gær.
fia› er mesta styrking
krónunnar á einum degi
frá árinu 2001. Sagt er
a› Se›labankinn reyni
a› endurheimta trúver›-
ugleika sinn í Peninga-
málum.
Gengi krónunnar styrktist um 2,8
prósent í gær og hefur ekki
styrkst meira á einum degi frá ár-
inu 2001. Gengisvísitalan endaði í
103 stigum við lok viðskiptadags
og hefur ekki áður verið svo lág.
Gengisvísitalan lækkar þegar
gengi krónunnar styrkist. Í fyrra-
dag kostaði einn bandaríkjadalur
63,2 krónur en 61,7 krónur í lok
gærdagsins. Alls voru viðskipti
með krónur fyrir 22 milljarða
króna í gær. Má rekja þessi við-
brögð til þess að Seðlabankinn
ákvað að hækka stýrivexti um
0,75 prósent í fyrradag – meira en
gert hafði verið ráð fyrir og ítrek-
aði skyldu sína að halda verð-
bólgu í kringum 2,5 prósent.
Ásgeir Jónsson, hagfræðing-
ur hjá greiningardeild KB
banka, segir að frá því að fjár-
magnsflutningar voru gefnir
frjálsir á Íslandi árið 1995 hafi
krónan tvisvar sinnum styrkst
meira en í gær. Það var 9. maí og
21. júní árið 2001 eftir að Seðla-
bankinn hvarf frá fastgengis-
stefnunni, sem hann hafði áður
fylgt, og tók upp verðbólgumark-
mið. Krónan hefði lækkað mikið
dagana á undan og var að ein-
hverju leyti að rétta sig af eftir
yfirskot ólíkt því sem átti sér
stað í gær.
Ásgeir segir að athyglisvert
verði að fylgjast með þróun á
skuldabréfamarkaði næstu vik-
urnar því búast megi við að auk-
inn vaxtamunur við útlönd lokki
fleiri erlenda fjárfesta til að gefa
út skuldabréf í íslenskum krón-
um. Það geti unnið á móti því að-
haldi peningamálastefnunnar
sem Seðlabankinn boðaði í fyrra-
dag.
Edda Rós Karlsdóttir, for-
stöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, segir að Seðla-
bankinn reyni að endurheimta
trúverðugleika sinn í nýjustu út-
gáfu Peningamála. Í spám grein-
ingardeilda og könnunum Gallup
hafi komið fram vísbendingar um
að fólk og fyrirtæki tryðu því að
verðbólga yrði langt fyrir ofan
verðbólgumarkmið Seðlabankans
næstu misserin. Það, hversu langt
hafi liðið á milli vaxtahækkana,
eigi þátt í því að bankinn hafi
misst trúverðugleika.
Edda Rós segir að Seðlabank-
inn kveði mjög fast að orði um
áform sín um að ná niður verð-
bólgu í Peningamálum. Bankinn
megi ekki hvika frá þeirri stefnu,
annars muni trúverðugleiki hans
bíða meiri skaða. „Seðlabankinn
spilar djarft og leggur mjög ríka
áherslu á að endurheimta trú-
verðugleikann. Til þess þurfa at-
hafnir að fylgja orðum,“ segir
Edda Rós. bjorgvin@frettabladid.is
Krónan aldrei sterkari
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Landsbankinn bau› best í
Lánasjó› landbúna›arins
Landsbanki Íslands bauð best í til-
greindar eignir og skuldir Lána-
sjóðs landbúnaðarins eða
2,653 milljarða króna. Næst-
hæsta boðið átti Kaupþing
banki, 2,624 milljarða eða
290 milljónum lægra en
Landsbankinn og Íslands-
banki átti lakasta tilboðið,
bauð 2,301 milljarða.
Landbúnaðar-
ráðherra ákvað í
gær að höfðu sam-
ráði við ráðherra-
nefnd um einka-
væðingu að sam-
þykkja tillögu
f r a m k v æ m d a -
nefndar um einka-
væðingu um að taka tilboði Lands-
bankans í Lánasjóðinn. Gert
er ráð fyrir því að undirrit-
un kaupsamnings fari fram
í næstu viku.
Eigið fé Lánasjóðs land-
búnaðarins var 3,47 millj-
arðar við sex mánaða upp-
gjör sjóðsins í ár og er salan
því tæpum milljarði
undir eigið fé
sjóðsins. - hb
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Hefur gengið frá sölu á
Lánasjóði landbúnaðar-
ins til Landsbankans.
Íslandsbanki gekk í gær frá sam-
komulagi um að gefa út skulda-
bréf fyrir rúmlega einn milljarð
bandaríkjadala eða fyrir um 66
milljarða íslenskra króna. Um
fjörutíu prósent af útgáfu bank-
ans voru seld til bandarískra lang-
tímafjárfesta en fjármögnunar-
verkefni bankans er liður í því að
laða til bankans nýja fjár-
festa.
Þetta mun vera í fyrsta
sinn sem íslenskur banki
gengur frá skuldabréfaút-
gáfu þar sem skilyrði
bandaríska fjármálaeftir-
litisins, 144A, eru upp-
fyllt. Útgáfurnar munu
verða skráðar í Kaup-
höllina í London og er
þannig um svo-
kallaða alheims-
útgáfu skuldabréfa að ræða.
Skuldabréfaútgáfan er annars
vegar til þriggja ára og hins vegar
til fimm ára.
Markaðssetningu skuldabréf-
anna var einkum beint að fjárfest-
um í Bandaríkjunum og Asíu en
einnig var selt til evrópskra fjár-
festa. Búist er við því að Íslands-
banki muni vera reglulegur
útgefandi skuldabréfa í
bandaríkjadölum á
markaði ytra í
framtíðinni. - hb
SKULDABRÉF Í
BANDARÍKJA-
DÖLUM
Íslandsbanki hefur
gefið út skuldabréf
fyrir um 66 millj-
arða í Bandaríkja-
dölum.
Skuldabréf fyrir einn
milljar› bandaríkjadala
Ómar Benediktsson, forstjóri
flugfélagsins Air Atlanta Iceland,
hefur ákveðið að láta af störfum 1.
nóvember næstkomandi.
Ómar stýrði sameiningu Ís-
landsflugs og Atlanta og er því
ferli lokið. Ómar hyggst eiga hlut
sinn í móðurfélaginu Avion Group
sem stefnt er að fari á markað í
byrjun næsta árs.
Ómar var einn af stofnendum
Íslandsflugs og hefur hann orðið
við þeirri beiðni stjórnar Avion
að sinna áfram sérverkefnum
fyrir félagið. Við starfi Ómars
tekur Hafþór Hafsteinsson sem
mun tímabundið sinna bæði því
starfi og núverandi starfi sem
forstjóri flugflutningasviðs
Avion Group. ■
Ómar hættir hjá Atlanta
STANDA VÖRÐ UM TRÚVERÐUGLEIKA SEÐLABANKANS Jón Sigurðsson, Eiríkur
Guðnason, Arnór Sighvatsson og Birgir Ísleifur Gunnarsson á fundi Seðlabankans í fyrra-
dag. Þar ítrekaði Birgir að það væri skylda bankans samkvæmt lögum að verja verðbólgu-
markmið sín.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
Danskt atvinnulíf horfir
til Íslendinga flegar leit-
a› er lei›a til a› komast
í hóp sigurvegara í vi›-
skiptum.
Ársfundur samtaka iðnaðarins í
Danmörku, Dansk Industri, bar
yfirskriftina „Meet the winners“,
eða stefnumót við sigurvegar-
anna.
Þar horfir iðnaðurinn í Dan-
mörku til Íslands, Írlands og
fylkisins Massachusetts í Banda-
ríkjunum. Umræðufundur með
þáttöku 200 stjórnenda í dönsku
atvinnulífi, þingmanna og ráð-
herra hófst með sýningu kynn-
ingarmyndar frá Íslandi þar sem
rætt var við stjórnendur í fyrir-
tækjunum Marel og Marorku.
Umræða um íslenskt við-
skiptalíf var um skeið neikvæð í
Danmörku, sérstaklega í kjölfar
kaupa íslenskra fjárfesta á
Magasin du Nord. Þorsteinn
Pálsson, sendiherra Íslands í
Danmörku, segir umræðuna
vera orðna öllu jákvæðari. Hann
segir sendiráðið vinna skipulega
að því að kynna viðskiptalífið á
breiðum grundvelli fyrir dönsk-
um fjölmiðlum og hagsmunaaðil-
um í dönsku atvinnulífi. Hann
segir íslensk fyrirtæki sem fjár-
fest hafa í Danmörku hafa sýnt
það og sannað að þau eigi fullt
erindi inn á danska markaðinn.
Það ásamt starfi sendiráðsins,
Útflutningsráðs og dansk-ís-
lenska verslunarráðsins hafi
skilað þeirri jákvæðu umræðu
sem einkennt hafi fund Dansk
Industri. - hh
HORFT TIL SIGURVEGARANNA Danir eru farnir að horfa til Íslands í leit að fyrirmynd-
um í viðskiptalífinu. Um tvö hundruð stjórnendur atvinnulífs í Danmörku og stjórnmála-
menn, þeirra á meðal Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra, horfðu á mynd um
frumkvöðla og frjálsræði í viðskiptum á Íslandi.
Umræ›a Dana jákvæ›ari