Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 28
28 1. október 2005 LAUGARDAGUR
Verksmiðjan við Nýlendu-götu lætur lítið yfir sér ogfellur vel inn í íbúabyggð-
ina í hverfinu. Engin skilti gefa til
kynna hvurslags starfsemi fer
fram innan dyra, enginn reyk-
háfur stendur upp úr húsinu líkt
og á sumum verksmiðjum.
Það er eins og tíminn leiki á
mann þegar inn er komið enda er
þar flest með svipuðum hætti og
var þegar framleiðslan hófst fyrir
næstum hálfri öld. Það er líka
ástæðulaust að breyta því sem
gott er og það á vel við um Royal,
hvort sem litið er til vörunnar
sjálfrar, framleiðsluhátta eða um-
búða.
Agnar Ludvigsson stórkaup-
maður hóf innflutning á Royal
vörunum 1941 og náðu þær fljót-
lega góðri fótfestu á íslenskum
markaði. Þá þegar voru þær út-
breiddar um allan heim, ekki síst í
Bandaríkjunum þar sem þær eru
upprunnar.
Aðstæður í samfélaginu urðu
þess valdandi að Agnar hóf fram-
leiðslu Royal varanna á Íslandi
upp úr 1955 og hefur fátt breyst
þó Umboðs- og heildverzlun John
Lindsay hafi keypt starfsemina
fyrir áratug.
The Royal family
Starfsfólk Royal verksmiðjunnar
er fámennur en samhentur hópur.
Í gamni kalla þau sig The Royal
family og má því segja að við Ný-
lendugötu starfi hin eiginlega ís-
lenska konungsfjölskylda. Hand-
tökin eru fumlaus og við færi-
bandið er spjallað um heima og
geima í takt við malið í vélunum.
Royal vörurnar sem seldar eru
á Íslandi eru tvenns konar. Annars
vegar lyftiduftið sem þekkist svo
vel af einstæðum umbúðunum og
hins vegar skyndibúðingarnir sem
fást í fimm bragðtegundum.
Hvort tveggja nýtur mikilla vin-
sælda og þrátt fyrir stóraukið
framboð á bökunarvörum, tilbún-
um kökublöndum og eftirréttum
hafa þær bæði staðist tímans tönn
og samkeppnina.
Ekki er að merkja á framleiðsl-
unni að dregið hafi úr bakstri á ís-
lenskum heimilum líkt og ætla
mætti. Af færibandinu á Nýlendu-
götu streyma jafn margar dósir af
lyftidufti og fyrir áratug.
Bragðbetri og fallegri
Þegar saga Royal á Íslandi er
skoðuð má glögglega sjá breyting-
arnar sem orðið hafa á blaðaaug-
lýsingum. Fyrirsögn þessarar
greinar, „Það má ætíð treysta
Royal“ er fengin að láni úr einni
slíkri en allt frá upphafi hefur
mikið verið gert með gæði vör-
unnar í auglýsingum. „Kökur yðar
og brauð verða bragðbetri og
fallegri ef bezta tegund af lyfti-
dufti er notuð“ er texti sem eitt
sinn var notaður. „Þér þarfnist
þess í sérhvern bakstur“ var sagt
um lyftiduftið í annarri auglýs-
ingu og í enn annarri sagði:
„Vandlát húsmóðir notar Royal
lyftiduft í páskabaksturinn.“
Svipaða sögu er að segja af
búðingunum, þeir hafa verið aug-
lýstir með afar persónulegum
hætti og áhersla lögð á gæði og
hve fljótlegt er að laga þá.
„Heimilisfólk yðar og gestir
njóta gæðanna“ segir í einni aug-
lýsingunni. „Royal skyndibúðing-
arnir – ávallt fremstir – engin
suða“ er dæmi um aðra og enn
önnur hljóðar svo: „Köldu Royal
búðingarnir eru ljúffengasti
eftirmatur sem völ er á. Svo auð-
velt er að matreiða þá, að ekki
þarf annað en hræra innihaldi
pakkans saman við kalda mjólk
og er búðingurinn þá tilbúinn til
framreiðslu. Reynið Royal búð-
ingana og þér verðið ekki fyrir
vonbrigðum.“
Vinsæl brúðargjöf
Sem vænta má er það helst fólk
sem hyggur á bakstur sem kaupir
Royal lyftiduft. Það kann því að
koma á óvart að eigendur Royal á
Íslandi hafa orðið þess varir að
lyftiduftið er orðin vinsæl brúðar-
gjöf. Þykir ekkert heimili geta án
þess verið og er það kannski
merki um ráðdeild, myndarskap
og staðfestu þegar lyftiduftsdós
er að finna í eldhúsinu.
Burt séð frá innihaldinu hafa
umbúðir Royal lyftiduftsins fyrir
löngu öðlast sess meðal þjóðarinn-
ar og þykja þær gott dæmi um
góða og klassíska hönnun. Fátt í
markaðssamfélaginu hefur hald-
ist óbreytt í áratugi enda auglýs-
inga- og ímyndarfræðingar ötulir
við að benda á að nýir tímar kalli
á nýtt útlit. Royal lyftiduftið
hefur verið í eins umbúðum um
langt árabil og fullyrða framleið-
endurnir að því verði ekki breytt.
Landsmenn geta því áfram gengið
að rauðu og hvítu dósunum vísum
í hillum verslana vítt og breitt um
landið.
ROYAL LYFTIDUFT Í ROYAL ALBERT
HALL Stuðmenn klæddust djúpbláum
göllum á hljómleikum sínum í Lundúnum
á vordögum og báru merki Royal lyftidufts
á bakinu.
Fullkominn
árangur
Royal lyftiduft er notað af mörgum
milljónum húsmæðra um allan
heim. Það veitir fullkominn árang-
ur við hvers konar bakstur, svo
sem: kökur alls konar og brauð,
vöflur, mótkökur, tertur, kex o.fl.
Sérfræðingar í kökugerð álíta, að
árangurinn af heimabakstrinum sé
mikið undir því kominn, að góð
tegund sé notuð af lyftidufti. Royal
lyftiduft fæst nú í verslunum í
smekklegum og vel þéttum um-
búðum.
Úr uppskriftabæklingi Royal sem
kom út um miðja síðustu öld.
KONUNGLEGA FJÖLSKYLDAN Á ÍSLANDI Sigrún Torfadóttir og Sigurbjörg Elín Sigurbjörnsdóttir sitja við færibandið og stinga
pokum með Royal búðingi með súkkulaðibragði í pakka. Jónína Flosadóttir raðar þeim í kassa og Svanur Ólafsson límir fyrir.
Royal lyftiduft og Royal skyndibú›ingar hafa fylgt íslenskri fljó› í hartnær 65 ár. Framlei›sla og pökkun
fer fram í litlu verksmi›juhúsi vi› N‡lendugötu í Reykjavík og fást vörurnar í flestum matvöruverslunum
landsins. Björn fiór Sigbjörnsson heimsótti Royal og kynnti sér söguna.
Það má ætíð treysta Royal