Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 20
„Það kemur mér á óvart
hvað þetta er skemmtileg-
ur vinnustaður. Þetta er
fjölbreytt og skemmtilegt
starf og ég hlakka virkilega
til að komast inn í fastar
nefndir,“ segir Sigurrós
Þorgrímsdóttir, sem í dag
tekur sæti Gunnars I. Birg-
issonar á þingi. Sigurrós
hefur síðustu ár verið vara-
þingmaður og því kynnst
þingstörfum töluvert.
Sigurrós hefur verið
bæjarfulltrúi í Kópavogi í
átta ár og er virk í ýmsum
nefndarstörfum bæði á
vegum Kópavogsbæjar og
Sambands íslenskra sveit-
arfélaga. Hún hefur í nokk-
ur ár verið formaður
stjórnar Menntaskólans í
Kópavogi og hefur mikinn
áhuga á menntamálum sem
mun nýtast henni vel í
menntamálanefnd sem hún
fær sæti í. Þá fer hún
einnig í umhverfisnefnd.
„Það er málaflokkur sem
við sveitarstjórnarmenn
höfum mikinn áhuga á,“
segir Sigurrós, sem einnig
hefur brennandi áhuga á
utanríkismálum. Hún hefur
skrifað bók um Evrópska
efnahagssvæðið og skrifaði
mastersritgerð sína um
áhrif EES-samningsins á
opinber innkaup.
Sigurrós er ekki farin að
hugsa hvort hún sækist
eftir áframhaldandi þing-
mennsku á næsta kjörtíma-
bili. „Ég er ekki einu sinni
búin að gera upp við mig
hvort ég ætli í prófkjör,“
segir Sigurrós, en sveitar-
stjórnarkosningar verða í
byrjun næsta árs.
Sigurrós á stjóra fjöl-
skyldu og reynir að eyða
með henni eins miklum
tíma og auðið er. Hún á
þrjú börn, einn stjúpson og
sjö barnabörn. Það er því
fjör í þeim fjölmörgu mat-
arboðum sem Sigurrós
býður börnum sínum í.
Þrátt fyrir annríkið á Sig-
urrós sín áhugamál eins og
aðrir. „Ég hef mikið gaman
af að lesa, sérstaklega
sakamálasögur til að slaka
á. Síðan spila ég golf eins
og hálf þjóðin gerir orðið,“
segir Sigurrós kímin.
Sigurrós hefur aðeins
eitt út á Alþingi að setja
sem vinnustað. „Mér fynd-
ist að það ætti að vera ein-
hvers konar námskeið
fyrir nýliða. Kynna þeim
hvernig þetta er, hvernig
mál eru afgreidd og
hvernig eigi að haga sér
þegar fara á fram með
eitthvert mál,“ segir Sig-
urrós, sem annars er mjög
ánægð með verðandi sam-
starfsfélaga sem hún segir
alla mjög hjálplega, alveg
óháð flokkum. ■
20 1. október 2005 LAUGARDAGUR
WALTER MATTHAU
(1920-2000) fæddist þennan dag.
Vantar námskeið fyrir nýliða
SIGURRÓS ÞORGRÍMSDÓTTIR TEKUR SÆTI GUNNARS I. BIRGISSONAR Á ÞINGI
„Læknirinn sagði að ég myndi lifa í sex
mánuði. Þegar ég gat ekki borgað reikning-
inn gaf hann mér sex mánuði til viðbótar.“
Walter Matthau var bandarískur gamanleikari og einna best þekktur
fyrir leik sinn í myndunum The Odd Couple og Grumpy Old Men þar
sem hann lék á móti félaga sínum Jack Lemmon.
timamot@frettabladid.is
FJÖLSKYLDUKONA Sigurrós á stóra fjölskyldu, fjögur börn og sjö barnabörn. Hún reynir að eyða eins miklum
tíma með þeim og hún getur.
Á þessum degi árið 1936 var Francisco Franco valinn leiðtogi fasista-
stjórnar uppreisnarmanna á Spáni.
Franco fæddist í bænum El Ferrol árið 1892. Hann gekk í herskóla fjórtán
ára gamall og sannaði sig snemma sem hermaður og hæfur stjórnandi í
nýlenduskærum Spánverja í Marokkó og forframaðist á skömmum tíma.
Árið 1931 var konungsvaldið afnumið á Spáni og Franco féll í ónáð hjá
frjálslyndum leiðtogum lýðveldisins og var lækkaður í tign. Hann hlýddi
möglunarlaust.
Íhaldsmenn komust aftur til valda í kosningunum 1933 og Franco var
hækkaður í tign yfirhershöfðingja og síðar herráðsforingja. Í kosningum
árið 1936 komst hins vegar samsteypustjórn vinstri flokka til valda og
Franco var sendur til Kanaríeyja. Af ótta við að ríkisstjórnin myndi greiða
götu marxískrar byltingar, lögðu yfirmenn í hernum á ráðin um valda-
rán. Eftir nokkurt hik ákvað Franco að ganga til liðs við þá. Í júlí árið
1936 hófst uppreisnin í Marokkó og breiddist yfir á meginland Spánar
daginn eftir. Undir stjórn Francos sölsaði herinn undir sig nokkur héruð landsins.
Í þeirri trú að sigur væri yfirvofandi völdu uppreisnarmenn Franco leiðtoga ríkisstjórnar sinnar en reyndin
varð sú að borgarastyrjöldin stóð í tvö ár enn þar til Spánn var allur á valdi Francos. Hann stjórnaði land-
inu með harðri hendi til dauðadags árið 1975.
FRANCISCO FRANCO
ÞETTA GERÐIST > 1. OKTÓBER 1936 MERKISATBURÐIR
1846 Hús Lærða skólans í
Reykjavík er vígt.
1874 Kvennaskólinn í Reykjavík
tekur til starfa.
1880 Möðruvallaskóli í Hörgár-
dal, fyrsti gagnfræðaskóli á
Íslandi, tekur til starfa.
1908 Kennaraskólinn tekur til
starfa í Reykjavík.
1946 Tólf nasistaforingjar eru
dæmdir til dauða af stríðs-
glæpadómstólnum í Nürn-
berg.
1955 Fyrsta kjörbúðin er opnuð
í Reykjavík, það er sjálfs-
afgreiðslubúðin Liverpool.
1945 Muhammad Ali sigrar Joe
Frazier og endurheimtir
heimsmeistaratitilinn í
boxi.
1987 Sjónvarpið hefur útsend-
ingar alla daga vikunnar.
Þá hætta fimmtudags-
kvöld að vera sjónvarps-
laus.
Franco foringi fasistastjórnarinnar
Móðir okkar,
Helga Katrín Gísladóttir
Unufelli 44, Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 28.
september.
Sigurjón Magnússon
Brynjar Mikael Mikaelsson
Birkir Rafael Mikaelsson.
sem lést sunnudaginn 25. september sl. verður
jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 8.
október nk. kl. 14.00.
Guðrún Áskelsdóttir Örn Gíslason
Steinunn Áskelsdóttir Birgir Steingrímsson
Ása B. Áskelsdóttir Stefán Ómar Oddsson
Ólafía Áskelsdóttir Haraldur Jóhannsson
Einar Áskelsson María Sif Sævarsdóttir
Valdimar Steinar Guðjónsson Eygerður Bj. Þorvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Áskell Einarsson
fyrrv. framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlendinga,
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
hjartkærs sambýlismanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóhanns Eyþórssonar
Sléttuvegi 17, Reykjavík.
Guð blessi okkur öll.
Borghildur Þórðardóttir
Hólmfríður Svala Jóhannsdóttir
Hrafnhildur Björk Jóhannsdóttir
Páll Eyþór Jóhannsson Sesselja Bjarnfríður Jónsdóttir
Einar Jörundur Jóhannsson Þórdís Ólafsdóttir
Heiðar Ingi Jóhannsson Kristjana Andrésdóttir
Ólafur Unnar Jóhannsson Oddrún Elfa Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jóhann Bragi Hermannsson
Víkurbakka 2, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni
miðvikudagsins 28. september.
Guðrún Ingadóttir
Kristín Jóhannsdóttir Steinar B. Valsson
Ragna Jóhannsdóttir Pálmar Viggósson
Björk Bragadóttir
og barnabörn.
www.steinsmidjan.is
ANDLÁT
Hrefna Ingimarsdóttir íþrótta-
kennari, Skólagerði 3, Kópavogi,
lést mánudaginn 26. september.
Anna Einarsdóttir, Ársölum 3,
Kópavogi, lést á Landspítalanum
í Fossvogi miðvikudaginn 28.
september.
Jóhann Bragi Hermannsson,
Víkurbakka 2, Reykjavík, lést á
líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi miðvikudaginn 28. septem-
ber.
Rannveig Böðvarsson, Vestur-
götu 32, Akranesi, lést á Sjúkra-
húsi Akraness miðvikudaginn 28.
september.
Soffía I.S. Sigurðardóttir, dvalar-
heimilinu Hrafnistu, Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 28.
september.
JAR‹ARFARIR
13.00 Ólafur Ketill Gamalíels-
son frá Stað, Ásvöllum 3,
Grindavík, verður jarðsung-
inn frá Grindavíkurkirkju.
13.00 Vigfús Sigurðsson frá
Brúnum, Hólavangi 3,
Hellu, verður jarðsunginn
frá Oddakirkju.
14.00 Guðrún Reykdal, Hlíðar-
vegi 27, Siglufirði, verður
jarðsungin frá Siglufjarðar-
kirkju.
14.00 Ingibergur Bjarnason,
Rauðanesi III, Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju.
14.00 Ingibjörg Halldórsdóttir,
verður jarðsungin frá Þórs-
hafnarkirkju.
14.00 Vigdís Guðbrandsdóttir
frá Reyðará verður jarð-
sungin frá Hafnarkirkju.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
BRÚ‹HJÓN
Gefin voru saman þann 27. ágúst
í Kópavogskirkju þau Hafdís Mjöll
Guðmundsdóttir og Róbert Erics-
son, af séra Ægi Fr. Sigurgeirssyni.
Þau eru til heimilis í Kópavogi.
LJ
Ó
SM
YN
D
AS
TO
FA
H
AF
N
AR
FI
RÐ
I
AFMÆLI
Magnús Stefánsson
þingmaður
er 45 ára